Gagnrýna „afkomubætandi ráðstafanir“ og vilja breyta fjármálareglum

Sér­fræð­inga­hópur á vegum ASÍ og BSRB varar stjórn­völd við að beita nið­ur­skurði í yfir­stand­andi kreppu og segir að fjár­mála­reglur hins opin­bera þurfi að vera sveigj­an­legri í nýrri skýrslu um efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins.

Samkvæmt ASÍ og BSRB er skuldasöfnun ríkisins ekki áhyggjuefni þegar vextir eru lágir
Samkvæmt ASÍ og BSRB er skulda­söfnun rík­is­ins ekki áhyggju­efni þegar vextir eru lágir Mynd: Bára Huld Beck

Breyta þarf lög um opin­ber fjár­mál hér á landi til þess að auka sveigj­an­leika í rík­is­út­gjöldum og skulda­söfnun í kreppum, sam­kvæmt sér­fræð­inga­hópi á vegum ASÍ og BSRB. Svo­kall­aðar „afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir“ sem rík­is­stjórnin hyggst leggja í fælu aftur á móti í sér nið­ur­skurð í kreppu, sem gæti haft slæmar afleið­ingar á efna­hags­líf lands­ins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hóps­ins um efna­hags­leg áhrif COVID-19.

Sveigjanlegri reglur nauðsynlegar

Hópurinn, sem er leiddur af Höllu Gunn­ars­dóttur, fram­kvæmda­stjóra ASÍ, telur rík­is­skuldir ekki vera vanda­mál svo lengi sem vextir eru lægri en hag­vöxtur. Í þeim aðstæðum gæti hið opin­bera aukið efna­hags­um­svif með skuld­setn­ingu og vaxið svo út úr henni með sjálf­bærum hætti.

Meiri­háttar skulda­aukn­ing rík­is­ins hefði hins vegar ekki verið mögu­leg hér­lendis ef fjár­mála­regl­urnar, sem voru lög­festar í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins árið 2008, væru enn við gildi. Regl­urnar, sem Alþingi ákvað tíma­bundið að afnema í des­em­ber síð­ast­liðnum, kveða meðal ann­ars á um að árlegur halli í rekstri hins opin­bera fari ávallt undir 2,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu og að skuldir megi ekki vera hærri en 30 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Skýrslu­höf­undar segja yfir­stand­andi kreppu gera það ómögu­legt að stand­ast skil­yrði þess­ara reglna. Hefði verið haldið fast í fjár­mála­regl­urnar hefðu afleið­ing­arnar orðið „skelfi­legar fyrir efna­hags­lífið og sam­fé­lagið í heild,” að mati sér­fræð­inga­hóps­ins.

Meiri niðurskurður ef kreppan verður verri

Hópurinn gagn­rýnir einnig svo­kall­aðar afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir, sem eru fyr­ir­hug­aðar á árunum 2023, 2024 og 2025, en þær fela annað hvort í sér nið­ur­skurð á útgjöldum rík­is­ins eða skatta­hækk­anir til að bæta afkomu rík­is­sjóðs og lækka skulda­hlut­fall hins opin­bera. Í skýrsl­unni segir að þessi áform séu ekki í sam­ræmi við þá sýn til COVID-krepp­unnar sem ráð­andi sé erlendis, jafnt hjá ríkjum sem alþjóð­legum stofn­unum.

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður hyggst rík­is­stjórnin ráð­ast í allt að helm­ingi meiri nið­ur­skurð eða skatta­hækk­anir ef yfir­stand­andi kreppa reyn­ist þyngri en búist var við. Samkvæmt skýrslu­höf­undum eru þetta sömu aðferðir og voru beittar í ýmsum Evr­ópu­löndum í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins og höfðu slæm og lang­vinn áhrif á fátækt og ójöfnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármálaáætlun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár