Aðhaldsaðgerðir minni og byrja seinna

Rík­is­stjórnin ætlar að fresta fyr­ir­hug­uðum aðhalds­að­gerðum um eitt ár og draga veru­lega úr þeim. Enn er þó búist við skatta­hækk­unum eða nið­ur­skurði í opin­berum útgjöldum til að bæta afkomu hins opin­bera á þarnæsta ári.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Búast má við skatta­hækk­unum eða nið­ur­skurði í opin­berum útgjöldum að and­virði 36 millj­arða króna á tíma­bil­inu 2024-2027 til að draga úr skulda­söfnun hins opin­bera. Þetta kemur fram í nýbirtri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir næstu fimm árin.

Bætt afkoma minnkar þörfina á aðhaldi

Rík­is­stjórnin gerði einnig ráð fyrir þessum aðhalds­að­gerðum í síð­ustu fjár­mála­á­ætlun sinni sem gefin var út í fyrra, en þá var búist við að þær myndu hefj­ast á næsta ári og nema um 34 millj­örðum króna á hverju ári.

Í nýju fjár­mála­á­ætl­un­inni er nú búist við að aðgerð­irnar, sem eru kall­aðar afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir, hef­ist ekki fyrr en á þarnæsta ári. Enn frekar er áætlað umfang þeirra mun minna en áður, en búist er við að þær muni nema níu millj­örðum króna á hverju ári.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði Kjarn­anum í fyrra­haust að þörfin á aðhalds­að­gerðum hefði minnkað tölu­vert, í ljósi þess að afkomu­horfur rík­is­sjóðs hefðu batnað tölu­vert. Samkvæmt Bjarna skýrð­ist bætta afkoman mest af auknum skattekjum, en einnig myndi áfram­hald­andi sala Íslands­banka og breytt fyr­ir­komu­lag varð­andi elds­neyt­is­notkun og öku­tækja­kaup skipta máli.

Meira aðhald ef horfur versna

Þó stendur einnig í fjár­mála­á­ætl­un­inni að umfang aðhalds­að­gerð­anna muni fara eftir efna­hags­þróun inn­an­lands. Verði þró­unin jákvæð­ari en búist var við, t.d. vegna auk­ins fram­leiðni­vaxtar og meiri útflutn­ings í atvinnu­greinum sem byggja á tækni og hug­viti, gæti verið að engin þörf verði á því að hækka skatta eða draga úr opin­berum gjöldum.

Á hinn bóg­inn gæti rík­is­stjórnin hert ólina tölu­vert ef efna­hags­spár verða undir vænt­ingum, til dæmis vegna minni alþjóða­hag­vaxtar, meiri hækk­ana hrá­vöru­verðs og færri ferða­manna. Samkvæmt fjár­mála­á­ætl­un­inni gætu aðhalds­að­gerð­irnar tæp­lega fimm­fald­ast ef það ger­ist og numið um 42 millj­örðum króna á hverju ári.

Samkvæmt rík­is­stjórn­inni þyrftu þessar aðhalds­að­gerðir að eiga sér stað svo að hægt væri að fram­fylgja afkomu­mark­miði eigin fjár­mála­stefnu, sem var sam­þyktk fyrr á árinu. Þó bætir hún við að þær séu það harka­legar að ólík­legt sé að hún myndi sam­rým­ast hag­stjórn­ar­hlut­verki hins opin­bera eða grunn­gildum laga um opin­ber fjár­mál um stöð­ug­leika.

Því seg­ist rík­is­stjórnin munu slaka á eigin afkomu­mark­miðum ef hag­þró­unin versnar til muna, í ljósi þess hversu mikið opin­ber þjón­usta myndi skerð­ast vegna aðhalds­að­gerð­anna sem væru nauð­syn­legar til að fram­fylgja þeim. Þó segir hún ekki hversu mikil slík til­slökun gæti verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármálaáætlun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár