„Þetta eru tölur sem við höfum aldrei séð áður“

53 þús­und manns fá nú greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun. For­stjór­inn seg­ist vona að toppnum í fjölda sé náð en á von á upp­sögnum um næstu mán­aða­mót.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

53 þús­und manns eru nú í greiðslu­þjón­ustu hjá Vinnu­mála­stofnun. 35.600 þeirra eru að fá greiðslur vegna skerts starfs­hlut­falls. „Þetta eru tölur sem við höfum aldrei séð áður,“ sagði Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hún sagði að ólíkt því sem væri að ger­ast í þróun á fjölda smita af veirunni væri vinna stofn­un­ar­innar ekki á nið­ur­leið en hún sagð­ist vona að fjöldi þeirra sem þurfa greiðslur sé um það bil að ná hámarki.

Lang­flestir þeirra sem fá greiðslur hjá Vinnu­mála­stofnun starfa eða störf­uðu við ferða­þjón­ustu eða um 19 pró­sent. Önnur 19 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum er fólk sem var í störfum tengdum ferða­þjón­ust­unni.

Unnur sagði að vissu­lega væri kreppan djúp „en ég held að við verðum fljót að ná okkur aftur upp. Ferða­þjón­ustan hefur sýnt það áður og oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, að hún er snögg að taka við sér og hröð upp“.

Búist er við því að til upp­sagna komi hjá fyr­ir­tækjum nú um mán­aða­mótin. Engu að síður von­ast Unnur til þess að fjöldi þeirra sem fá nú bætur hjá stofn­un­inni muni ekki aukast mikið þar sem upp­sagnir verði mögu­lega flestar meðal þeirra sem þegar eru komnir í skert starfs­hlut­fall. „Ég er hrein­lega að vona það að toppnum sé náð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár