Fjögur dótturfélög Norwegian gjaldþrota

Fjögur dótt­ur­fé­lög Norwegian í Svíþjóð og Danmörku hafa verið lýst gjald­þrota. Um fjögur þús­und og sjöhund­ruð manns missa vinn­una í þessum svipt­ingum. Norwegian rær nú líf­róður sem aldrei fyrr.

Fjögur dótt­ur­fé­lög flug­fé­lags­ins Norwegian, þrjú í Danmörku og eitt í Svíþjóð, hafa verið lýst gjald­þrota, en um er að ræða fyr­ir­tæki sem önn­uð­ust starfs­manna­hald flug­fé­lags­ins í Svíþjóð, Danmörku, Finn­landi, Bret­landi, Spáni og Banda­ríkj­unum.

Í frétt danska rík­is­út­varps­ins DR segir að alls hafi 1.571 flug­maður og 3.134 flug­freyjur og -þjónar nú misst vinn­una vegna gjald­þrota félag­anna fjög­urra.

Eftir standa hjá flug­fé­lag­inu um 700 flug­menn og 1.300 flug­þjónar með starfs­stöðvar í Noregi, Frakk­landi og á Ítalíu, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Norwegian.

„Þetta er versta krísa sem flug­brans­inn hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir og við höfum gert allt sem í okkar mætti stendur til þess að hindra það, sem nú hefur gerst með dótt­ur­fé­lög okkar í Svíþjóð og Danmörku,“ er haft eftir Jacob Schram, for­stjóra Norwegian, í til­kynn­ingu félags­ins.

For­stjór­inn segir að það verði erfitt verk­efni að koma flug­fé­lag­inu í gegnum þessar hremm­ingar. Norwegian hefur staðið höllum fæti um nokk­urt skeið og vand­ræði þess hafa ekki minnkað eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn setti ferða­lög á milli landa í algört upp­nám sem ekki sér fyrir end­ann á.

Samkvæmt frétt DR skuldar Norwegian í heild­ina um 60 millj­arða norskra króna, eða um 835 millj­arða íslenskra króna. Mark­aðsvirði félags­ins í kaup­höll­inni í Ósló er undir millj­arði norskra króna og hefur hrapað um meira en 80 pró­sent frá því í árs­byrjun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Fréttirflugsamgöngur

Ekki hægt að opna neyð­ar­braut­ina aftur án skaða­bóta

Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu sést að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar um að loka skuli flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, svo­kall­aðri neyð­ar­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu við braut­ina gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafa þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár