Vilja einkafjárfesta að Keflavíkurflugvelli

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill að einka­að­ilar komi að fjár­mögnun 70 til 90 millj­arða króna upp­bygg­ingar á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í Evrópu tíðk­ist að flug­vellir séu að hluta eða að öllu leyti í eigu einka­að­ila.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar telur að huga eigi að því að fá einka­að­ila til að taka þátt í fjár­mögnun á upp­bygg­ingu flug­vall­ar­mann­virkja í Keflavík. Á næstu árum er gert ráð fyrir að fram­kvæmdir við Kefla­vík­ur­flug­völl muni kosta á bil­inu 70 til 90 millj­arða króna og að flug­völl­ur­inn geti tekið við um 14 millj­ónum far­þega eftir þær ef álag dreif­ist á sama hátt og það ger­ist nú. Meiri­hlut­inn telur það „umhugs­un­ar­efni að á síð­ustu sex árum hefur þeim flug­völlum í Evrópu sem eru í bland­aðri eigu ríkis og einka­að­ila eða alfarið í eigu eink­að­ila fjölgað hlut­falls­lega úr 23% í 55%. Nú fara 80% flug­far­þega til og frá Evrópu og innan Evrópu um slíka flug­velli. Á sama tíma ætlar íslenska ríkið að fjár­magna og taka áhætt­una alfarið af þessum stóru fram­kvæmdum. Meiri hlut­inn telur að huga beri að nýjum fjár­mögn­un­ar­leiðum við fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu flug­vall­ar­mann­virkja í Keflavík.“

Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar vegna til­lögu til þings­á­lykt­unar um fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2017–2021 sem Kjarninn hefur undir höndum. Undir álitið skrifa þeir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna sem sitja í fjár­laga­nefnd. Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er for­maður nefnd­ar­innar og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er vara­for­maður hennar. Nánar verður fjallað um nefnd­ar­á­litið á Kjarn­anum síðar í dag.

Á við tvö hátæknisjúkrahús

Guð­laugur Þór segir við Morg­un­blaðið í dag að fjár­fest­ing Isavia í stækkun Kefla­vík­ur­flug­vallar sé mikil og nauð­syn­leg. Fyr­ir­tækið sé hins vegar í eigu rík­is­ins, á ábyrgð þess og fjár­fest­ingin ekki áhættu­laus. „Þarna erum við að tala um fjár­fest­ingu sem jafn­gildir nær tveimur hátækni­sjúkra­húsum, hvorki meira né minna. Og þetta eru sann­ar­lega mjög mik­il­vægar fram­kvæmdir og lúta að einni mik­il­væg­ustu burð­ar­stoð íslensks efna­hags­lífs, ferða­þjón­ust­unni. En þegar þetta mikla fjár­magn fer í þessa upp­bygg­ingu þá er ekki hægt að ráð­ast af sama krafti í aðra mjög mik­il­væga upp­bygg­ingu sem er ekki síður nauð­syn­leg.“

Nýverið var greint frá því í Frétta­tím­anum að Icelandair sé að kanna af mik­illi alvöru að reisa nýjan inn­an­lands­flug­völl í Hvassa­hrauni með mögu­leika á milli­landa­flugi, þar sem ljóst sé að Reykja­vík­ur­flug­velli verði lokað. Fyr­ir­tækið ætlar að hefja til­rauna­flug af svæð­inu vegna þessa. Hvassa­hraun var sá staður sem Rögnu­nefndin svo­kall­aða komst að nið­ur­stöðu um að væri hent­ugastur fyrir inn­an­lands­flug. Ef af yrði myndi Icelandair reisa flug­völl­inn sjálft.

Skúli Mogensen, for­stjóri WOW air, hefur hins vegar sagt að hann telji það skelfi­lega fjár­fest­ingu að byggja nýjan flug­völl skammt frá þeim sem fyrir er. Stækkun Kefla­vík­ur­flug­vallar væri mun betri leið. Skúli sagði í sam­tali við Túrista.is að það vel koma til greina að WOW myndi byggja eigin flug­stöð við núver­andi flug­vall­ar­svæði, en þá myndi vera um einka­fjár­fest­ingu að ræða. „Það er alþekkt fyr­ir­komu­lag og eitt­hvað sem við hefðum áhuga á að skoða og ég hef áður nefnt.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Fréttirflugsamgöngur

Ekki hægt að opna neyð­ar­braut­ina aftur án skaða­bóta

Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu sést að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar um að loka skuli flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, svo­kall­aðri neyð­ar­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu við braut­ina gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafa þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár