Ekki hægt að opna neyðarbrautina aftur án skaðabóta

Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu sést að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar um að loka skuli flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, svo­kall­aðri neyð­ar­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu við braut­ina gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafa þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist ekki má ætla að skaða­bóta­skylda stjórn­valda skap­ist gagn­vart þeim, ákveði þau síðar að hætta við lokun neyð­ar­braut­ar­innar. Þeir þurfa þó að sýna fram á það fjár­hags­lega tjón sem slík ákvörðun skapar. Þetta kemur fram í svari Bjargar Thoraren­sen, pró­fess­ors við laga­deild Háskóla Íslands, á stað­reynda­vakt Vís­inda­vefs skól­ans.

Lesandi hafði spurt Vís­inda­vef­inn hvort stjórn­völd gætu raun­veru­lega tekið lokun neyð­ar­braut­ar­innar á Reykja­vík­ur­flug­velli til baka eftir kosn­ingar.

Svarið í dómi Hæstaréttar

Í svari Bjargar segir að svar spurn­ing­ar­innar sé í meg­in­at­riðum að finna í dómi Hæsta­réttar Íslands sem gekk 9. júní síð­ast­lið­inn í máli sem Reykja­vík­ur­borg höfð­aði gegn íslenska rík­inu til við­ur­kenn­ingar á því að inn­an­rík­is­ráð­herra yrði gert að loka NA/SV-flug­braut á Reykja­vík­ur­flug­velli í sam­ræmi við samn­ing milli aðila þess efnis sem byggð­ist á til­greindu skjali und­ir­rit­uðu af þáver­andi borg­ar­stjóra og inn­an­rík­is­ráð­herra.

Dómurinn taldi að þegar efni skjals­ins væri túlkað væri hafið yfir skyn­sam­legan vafa að með því hefði inn­an­rík­is­ráð­herra gengið undir þá skuld­bind­ingu að til­kynna um lokun flug­braut­ar­innar sam­tímis því að nýtt deiliskipu­lag fyrir flug­vall­ar­svæðið yrði aug­lýst og að þá skyldi jafn­framt end­ur­skoða gild­andi skipu­lags­reglur fyrir flug­völl­inn til sam­ræmis. Þá yrði ekki dregin önnur ályktun en sú að stjórn­valds­á­kvörðun um lokun flug­braut­ar­innar hefði þegar verið tekin.

Í dómnum var enn fremur stað­fest að inn­an­rík­is­ráð­herra var bær til að takast á hendur slíkar skuld­bind­ingar gagn­vart borg­inni og að Reykja­vík­ur­borg hefði for­ræði á þeim mál­efnum sem sam­komu­lagið varð­andi, með vísun í 78. grein stjórn­ar­skrár Íslands um sjálf­ræði sveit­ar­fé­laga. Auk þess hefði borgin þegar efnt þær skyldur sem hvíldu á henni sam­kvæmt sam­komu­lag­inu. Krafa Reykja­vík­ur­borgar um að rík­inu væri skylt að loka flug­braut­inni laut að því að efna ein­staka afmark­aða samn­ings­skuld­bind­ingu sem hefði verið van­efnd.

Ekki allar ákvarðanir afturkallanlegar

Í svari Bjargar segir að ekki sé hægt að gefa sér að allar opin­berar ákvarð­anir séu aft­ur­kall­an­legar enda víst að oft sé þar fjallað um rétt­indi og skyldur ein­stak­linga og lög­að­ila, sem ekki verða aft­ur­kall­aðar nema ákveðin laga­leg skil­yrði séu upp­fyllt. „Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu verður ályktað að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli rík­is­ins og borg­ar­innar um að ríkið skuli loka umræddri flug­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafi þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist ekki má ætla að skaða­bóta­skylda stjórn­valda skap­ist gagn­vart þeim, ákveði þau síðar að hætta við lokun neyð­ar­braut­ar­innar ef þeir geta sýnt fram á fjár­hags­legt tjón sem slík ákvörðun skapar.“

Hægt er að lesa svar stað­reynda­vaktar Vís­inda­vefs­ins í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár