Búast ekki við fullum bata flugbransans fyrr en árið 2024

Alþjóða­sam­tök flug­fé­laga hafa gefið út nýja spá um bata­horfur í flug­geir­anum eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Hún lítur verr út en spá sam­tak­anna frá því í apríl. Ekki er búist við því að jafn margir setj­ist upp í flug­vél og fyrir COVID fyrr en árið 2023.

Ný spá alþjóðasamtaka flugfélaga um áhrif veirufaraldurins á fluggeirann var kynnt í dag. Útlitið er dekkra en gert var ráð fyrir í apríl.
Ný spá alþjóða­sam­taka flug­fé­laga um áhrif veiru­far­ald­ur­ins á flug­geir­ann var kynnt í dag. Útlitið er dekkra en gert var ráð fyrir í apríl. Mynd: Úr safni

Uppfærð grunn­s­viðs­mynd IATA, alþjóða­sam­taka flug­fé­laga, um fram­tíð­ina í far­þega­flutn­ingum á heims­vísu, gerir ekki ráð fyrir því að flognir far­þega­kíló­metrar (e. revenue passen­ger kilomet­ers) nái sama marki og fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn fyrr en árið 2024. Fyrri sviðs­mynd sam­tak­anna gerði ráð fyrir því að flugið myndi jafna sig hvað þetta varðar ári fyrr, eða árið 2023.

Í frétta­til­kynn­ingu frá IATA í dag segir að búist sé við að styttri flug­leiðir muni kom­ast í eðli­legt horf fyrr en þær lengri, hvað fjölda far­þega varðar. Þó er ekki búist við því að fjöldi flug­far­þega á heims­vísu nái sama marki og fyrir veiruna fyrr en árið 2023, en í fyrri spá var gert ráð fyrir að fjöldi far­þega myndi ná sömu hæðum og fyrir COVID árið 2022.

Hvað varðar skamm­tíma­horfur í flug­geir­anum hefur spá IATA einnig dökknað, en nú er gert ráð fyrir því að sam­dráttur í fjölda flug­far­þega á þessu ári muni nema um 55 pró­sentum, sam­an­borið við þann 46 pró­sent sam­drátt sem sam­tökin spáðu í apríl.

Á heims­vísu dróst flug­um­ferð, mæld í flognum far­þega­kíló­metrum, saman um 86,5 pró­sent frá fyrra ári í júní. Það er ögn skárra en í maí, þegar flug­um­ferð dróst saman um 91 pró­sent á sama mæli­kvarða frá sama mán­uði í fyrra. Samtökin segja þetta skýr­ast af auk­inni eft­ir­spurn á inn­an­lands­mörk­uðum, sér­stak­lega í Kína.

Lítið traust hjá neytendum og útbreiðsla veirunnar dekkja horfur

Nokkrir þættir eru sagðir útskýra verri horfur í þess­ari nýju spá sam­tak­anna, miðað við spána sem gefin var út í apríl. Í fyrsta lagi er það van­máttur Banda­ríkja­stjórnar og stjórn­valda í ýmsum vax­andi hag­kerfum við að hafa hemil á útbreiðslu veirunnar. Áfram­hald­andi úti­lokun Banda­ríkj­anna og fleiri ríkja frá alþjóða­flug­mark­að­inum hefur umtals­verð áhrif á bata flug­geirans í heild sinni.

Í annan stað er búist við því að við­skipta­ferðir verði mun færri en áður á næstu miss­erum, þar sem mörg fyr­ir­tæki séu í fjár­hags­vand­ræðum veirunnar vegna.

Og í þriðja lagi eru það neyt­end­urnir og vilji þeirra til að ferð­ast, en mæl­ingar hafa sýnt að margir hafa hug á að ferð­ast alls ekki neitt á næst­unni. Yfir helm­ingur þeirra sem IATA spurði í könnun í júní ætl­uðu ekki að ferð­ast neitt árið 2020. Almennt, segja IATA, er neyt­enda­traust lágt um þessar mundir, er margir sjá fram á atvinnu­ó­ör­yggi, ofan á hætt­una af því að smit­ast af COVID-19 á ferða­lögum.

Haft er eftir Alex­andre de Juniac, for­stjóra IATA, að neyt­enda­traust sé afar lítið og að ákvörðun Bret­lands um að skipa öllum ferða­mönnum í sótt­kví sem snúa heim frá Spáni hafi ekki bætt úr skák.

„Og í mörgum hlutum heims­ins fer fjöldi sýk­inga enn vax­andi. Allt þetta bendir til þess að end­ur­komu­tím­inn verði lengri með auknum þján­ingum fyrir flug­geir­ann og heims­hag­kerfið,“ segir de Juniac. Einnig segir hann að þetta séu slæmar fréttir fyrir flug­fé­lög, þar sem þetta bendi til þess að áfram þurfi flug­geir­inn að treysta á stuðn­ing stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugsamgöngur

Fréttirflugsamgöngur

Ekki hægt að opna neyð­ar­braut­ina aftur án skaða­bóta

Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu sést að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar um að loka skuli flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, svo­kall­aðri neyð­ar­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu við braut­ina gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafa þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár