Hví tölum við um kví?

Orðið sótt­kví og orða­sam­bandið að setja ein­hvern í sótt­kví eru á allra vörum um þessar mundir. En hvaðan kemur þetta orð og hvenær var það fyrst notað? Árna­stofnun er með svörin við þessum spurn­ingum.

Áður fyrr var orðið kví algengt og þá sérstaklega notað um litlar réttir heima við bæi.
Áður fyrr var orðið kví algengt og þá sér­stak­lega notað um litlar réttir heima við bæi. Mynd: Af vef Árnastofnunar

Sóttkví er kven­kyns­orð sem er notað um það þegar fólki er gert að loka sig af tíma­bundið til að draga úr smit­hættu og afstýra útbreiðslu smit­sjúk­dóma. Það er sett saman úr orð­unum sótt (veiki), sem einkum er haft um smit­sjúk­dóma, og kven­kyns­orð­inu kví (aflokað svæði). Síðara orðið er ekki mjög algengt eins og sést á því að rit­hætt­inum „sótt­hví“ bregður nokkuð fyrir – og hann er vitn­is­burður um að flestir lands­menn gera engan grein­ar­mun á kv- og hv- í fram­burði og þar af leið­andi heyr­ist eng­inn munur á orð­unum kví og hví.

Á þessum orðum hefst pist­ill Ástu Svav­ars­dóttur rann­sókn­ar­dós­ents á vef Árna­stofn­unar.

Ásta skrifar að þótt orðið kví sé til­tölu­lega fátítt nú á dögum komi það alloft fyrir sem síð­ari liður sam­settra orða eins og eld­is­kví, flot­kví, her­kví, þurr­kví – og sótt­kví. Áður fyrr hafi orðið verið algeng­ara og þá sér­stak­lega notað um litlar réttir heima við bæi þar sem ánum var safnað til að mjólka þær. Kvíar gátu verið úr fær­an­legum grindum og af því sprettur orða­sam­bandið að færa út kví­arnar sem nú er einkum notað í yfir­færðri merk­ingu um það að efla starf­semi sína eða auka umsvif sín, skrifar Ásta.

Aldur og saga

Það kemur Ástu nokkuð á óvart að í Rit­máls­safni Orða­bókar Háskól­ans sé einugis eitt dæmi frá síð­ari hluta 20. aldar um orðið sótt­kví. Fyrir því geta að hennar mati verið tvær ástæður, ann­að­hvort að orðið sé yngra en búast mætti við eða að eldri dæmi hafi af til­viljun ekki ratað í safnið. „Það er fljót­legt að ganga úr skugga um að hér á það síð­ar­nefnda við því á vefnum Tímarit.is má finna dæmi allt frá upp­hafi ald­ar­innar, þegar sótt­kví var eitt af fáum úrræðum til að hefta útbreiðslu alvar­legra smit­sjúk­dóma eins og tauga­veiki, misl­inga og ekki síst spænsku veik­innar,“ skrifar Ásta og tekur eft­ir­far­andi dæmi:

Voru svo þessir bæir í sótt­kví og sam­göngu­banni, sumir fram að ver­tíð og sumir fram á Góu. (Fjall­konan 1903)

Flateyri er nú í sótt­kví, af því að mis­línga hefur orðið vart á Sólbakka. (Bjarki 1903)

Er Siglu­fjörður í sótt­kví, þar eð veikir menn voru á vél­bát, sem þangað kom frá Rvík. Er von­andi, að varn­irnar beri árangur. (Landið 1918)

Sögu­legar heim­ildir sýna að áður en orðið sótt­kví og orða­lagið að vera í sótt­kví og setja í sótt­kví urðu ríkj­andi um slík úrræði voru önnur skyld orð tals­vert notuð. Þar má einkum nefna sögn­ina sótt­kvía (setja í sótt­kví), lýs­ing­ar­orðið sótt­kví­aður (vera í sótt­kví) og nafn­orðið sótt­kvíun (það að setja í sótt­kví). Að því er fram kemur í pistli Ástlu má finna dæmi um öll þessi orð­bæði í rit­máls­safn­inu og í blöðum og tíma­ritum á Tímarit.is, sér­stak­lega frá fyrstu ára­tugum 20. aldar, og í Íslensk-danskri orða­bók Sigfúsar Blöndals er orðið sótt­kví ekki, ein­ungis sótt­kvía (so.) og sótt­kvíun (no.).

„Svo virð­ist sem það orða­lag sem nú tíðkast hafi farið að fest­ast í sessi í kjöl­far spænsku veik­innar og nú heyr­ast önnur orð en sótt­kví lítið sem ekki,“ skrifar Ásta að lokum í pistli sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár