Katrín: Óumflýjanlegt að setja takmarkanir á mannamót

„Það er hins vegar þannig að það er óum­flýj­an­legt að ein­hverjar tak­mark­anir verða settar á manna­mót og sam­komur á næst­unni til að hefta útbreiðsl­una,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir. Neyð­ar­stigi vegna kór­ónu­veiru hefur verið lýst yfir.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að nú þegar búið er að lýsa yfir neyð­ar­stigi almanna­varna vegna kór­ónu­veirunnar, þýði það að meiri þungi muni fær­ast í aðgerðir stjórn­valda og þeirra stofn­ana sem hafa hlut­verk í að hemja útbreiðslu veirunnar en þessi breyt­ing mun ekki hafa áhrif á almenn­ing strax.

„Það er hins vegar þannig að það er óum­flýj­an­legt að ein­hverjar tak­mark­anir verða settar á manna­mót og sam­komur á næst­unni til að hefta útbreiðsl­una,“ skrifar Katrín á Facebook-síðu sína eftir að blaða­manna­fundi almanna­varna, land­læknis og Land­helg­is­gæsl­unnar lauk nú síð­degis. „Nú sem fyrr skiptir það öllu máli að við leggjum öll okkar af mörkum til að það megi takast að hægja á útbreiðsl­unni.“

[adspot]

Katrín segir að á sama tíma sé ljóst að þessi far­aldur muni hafa áhrif á stöðu efna­hags­mála. „Stjórn­völd und­ir­búa nú aðgerðir í rík­is­fjár­málum til að vinna gegn slaka í efna­hags­málum og sama á við um Seðla­bank­ann. Við erum vel í stakk búin, með öfl­ugan gjald­eyr­is­vara­forða, lágt skulda­hlut­fall og góðan aðgang að erlendu fjár­magni.

Stjórn­völd munu gera það sem þarf til að hemja útbreiðslu veirunnar og vinna gegn áhrifum hennar á efna­hags­lífið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár