Um 300 skjálftar við Sýrfell – rólegra hjá Þorbirni

Skjálfta­virknin á Reykja­nesi hefur færst til vest­urs og norðan við Sýrfell urðu fjöl­margir skjálftar í gær. Óvissu­stig almanna­varna er enn í gildi.

Skjálftavirknin hefur færst vestar en í hrinunni sem byrjaði í janúar.
Skjálfta­virknin hefur færst vestar en í hrin­unni sem byrj­aði í jan­úar. Mynd: Veðurstofa Íslands

Virkni í jarð­skjálfta­hr­inu sem verið hefur í gangi nálægt Reykja­nestá frá því um miðjan febr­úar jókst aftur seinni­part­inn í gær. Fimm skjálftar mæld­ust yfir 3 stig og sá stærsti, sem varð rétt fyrir kl. 17 , var 3,4 stig.

Skjálft­arnir eru stað­settir um 1 kíló­metra norðan við Sýrfell. Hátt í 300 skjálftar mæld­ust þar í gær en rólegra hefur verið á þessum slóðum í dag. Árið 2013 var hrina á svip­uðu svæði en þá voru fleiri stærri skjálftar og sá stærsti 5,2 að stærð, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Veð­ur­stofu Íslands.

Veð­ur­stofan varar enn við hella­skoðun við Eld­vörpin á Reykja­nesskag­anum. Gasmæl­ingar þar að und­an­förnu hafa sýnt lífs­hættu­leg gildi á koltví­sýr­ingi og súr­efn­is­skort í helli við bíla­stæði þaðan sem eru vin­sælar göngu­leiðir.

Dregið hefur veru­lega úr jarð­skjálfta­virkni við Þorbjörn að und­an­förnu. Ekkert land­ris mælist lengur og lík­leg­asta skýr­ingin sé að kviku­inn­flæði sé lokið í bili. Jarð­skjálfta­hrina hófst þar í lok jan­úar og um mán­uði síðar hafði land þar risið um 5 sentí­metra. Lík­leg­asta skýr­ingin er talin kviku­söfnun á nokk­urra kíló­metra dýpi.

Óvissu­stig almanna­varna er enn í gildi.

Gosið á landi og í sjó

Reykja­nesskag­inn er yngsti hluti Íslands. Hann er mjög eld­brunn­inn og dregur nafn sitt af all­miklu gufu- og leir­hvera­svæði, eins og segir í ítar­legri grein Magnúsar Á. Sig­ur­geirs­sonar jarð­fræð­ings í Nátt­úru­fræð­ingnum frá árinu 1995.

[links]Í sam­an­tekt Magnúsar og fleiri í Íslensku eld­fjalla­vefsjánni kemur fram að eld­stöðvakerfi Reykja­ness hafi verið í með­al­lagi virkt. Norð­ur­hluti þess renni inn í kerfi Svarts­engis en syðstu níu kíló­metr­arnir séu undir sjáv­ar­máli. Á nútíma (síð­ustu tíu þús­und árin eða svo) hafa þar orðið fleiri en fimmtán gos. Eldgos á landi hafa ein­kennst af hraun­flæði en í sjó hafa orðið „surtseysk sprengigos“ eins og það er orðað.

Frá land­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­nesi, síð­ast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburðir kall­aðir Reykja­nes­eldar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinnum, þar af urðu þrjú gos í eld­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eldgosin voru hraun­gos á 1-10 kíló­metra löngum gossprungum. Gos­virkni á Reykja­nesi-Svarts­engi ein­kenn­ist af goslotum eða eldum sem geta varað í ára­tugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár