Útvegsmenn vilja að sjómenn greiði hlutdeild í veiðigjaldi til stjórnvalda

Ein af nítján kröfum Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi er að sjó­menn greiði hlut í veiði­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Formanni Sjó­manna­sam­bands Íslands líst ekki kröf­urnar „frekar en endranær.“

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa lagt fram kröfur sínar í 19 liðum gagn­vart sjó­mönnum en mið­ill­inn BB.is greindi fyrst frá í gær. Kjara­við­ræður SFS við Sjó­manna­fé­lag Íslands (SSÍ) standa nú yfir en fyrsti fund­ur­inn var á þriðju­dag­inn í síð­ustu viku.

Val­mundur Val­munds­son, for­maður SSÍ, segir í sam­tali við Kjarnann að þetta hafi verið hefð­bund­inn fundur og nú séu þau að fara yfir málin í bak­land­inu. Ekki sé búið að boða annan fund eins og stendur. „Við bíðum nú bara átekta og höldum fundi í okkar bak­landi. Við þurfum að ræða málin og kynna þau fyrir félags­mönnum,“ segir hann.

Hann stað­festir í sam­tali við Kjarnann að SFS hafi sett fram þessar nítján kröfur en hann segir að þær hafi ekki komið þeim hjá Sjó­manna­sam­band­inu á óvart enda hafi þau séð þær áður. „Mér líst ekk­ert á þær frekar en endranær,“ segir hann og bætir því við að hann búist ekki við því að SSÍ muni fall­ast á þessar kröfur.

[adspot]

Kjarninn hefur kröfur SFS undir höndum en fyrsta krafa er að sjó­menn greiði hlut í sköttum útgerða, svo sem veiði­gjaldi, trygg­ing­ar­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Þá er gerð krafa um að fram­lengja nýsmíða­á­lag­inu og vill SFS að samið verði um nýsmíða­á­lag varð­andi næstu kyn­slóð fiski­skipa. Jafn­framt er ein krafan sú að kvóta­kaup frá erlendum aðilum verði dregin frá óskiptu, það er að sjó­menn greiði kvóta­kaupin.

Kröfur SFS í kjara­við­ræðum við Félag skip­stjórn­ar­manna, Sjó­manna­fé­lag Íslands, Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lag Grinda­víkur, Sjó­manna­sam­band Íslands og VM-Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna eru sem hér segir:

  1. Frá­dráttur vegna álaga stjórn­valda – Samið verði um hlut­deild sjó­manna í álögum stjórn­valda, s.s. veiði­gjaldi, trygg­inga­gjaldi og kolefn­is­gjaldi.
  2. Kostn­aður við slysa­trygg­ingar – Árið 2001 voru gerðar miklar breyt­ingar á slysa­trygg­ingum sjó­manna. Við breyt­ing­arnar var miðað við að sjó­menn bæru um 1/3 af kostn­að­inum. For­sendur þeirra breyt­inga hafa ekki stað­ist, hvorki hvað varðar mat á kostn­að­ar­auka vegna þeirra né hlut sjó­manna í honum. SFS gera þá kröfu að sjó­menn greiði þriðj­ung iðgjalda slysa­trygg­inga á hverjum tíma, auk þess sem end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði verði sett í samn­inga vegna þró­unar á iðgjaldi eða breyt­inga á skaða­bóta­lögum.
  3. Slysa- og veik­inda­kaup – Aðlaga þarf rétt­inda­um­hverfi slysa- og veik­inda­réttar í skipti­manna­kerfum. Á síð­ast­liðnum árum hefur auk­ist veru­lega að settar hafi verið skipti­manna­á­hafnir á skip, enda hefur það skapað betra starfs­um­hverfi um borð og innan fyr­ir­tækj­anna. Ákvæði sjó­manna­laga nr. 35/1985 víkja ekki að þessu róðra­lagi og álita­mál er um túlkun 36. gr. lag­anna. Það á því að vera mark­mið samn­ings­að­ila að tryggja rétt­inda­um­hverfi skip­verja og útgerða í skipti­manna­kerfum. Þannig þarf m.a. að tryggja að skip­verjar í skipti­manna­kerfum sem verða fyrir óvinnu­færni, skulu vera jafn settir fjár­hags­lega eins og þeir hefðu ann­ars verið ófor­fall­aðir.
  4. Breyt­ingar á nýsmíða­á­kvæði og ákvæðum um ný og eldri skip – Samið verði um breyt­ingu á nýsmíða­á­kvæði, m.a. þess efnis að úthalds­dagar skipa í tog­ar­aralli Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar eða öðrum verk­efnum á vegum þeirrar stofn­unar telj­ist ekki til úthalds­daga þegar kemur að útreikn­ingum og upp­gjöri skv. nýsmíða­á­kvæði kjara­samn­inga. Þá verði samið um breyt­ingu á ákvæði um ný skip m.t.t. smíða á næstu kyn­slóð fiski­skipa. Samið verði um ramma vegna smíði slíkra skipa, t.a.m. frysti­tog­ara, með það að mark­miði að tryggja áhöfn sam­keppn­is­hæf laun og útgerð raun­hæfar rekstr­ar­for­sendur.
  5. Um helg­ar­frí og hafn­ar­frí – Samið verði um að ákvæði kjara­samn­inga um helg­ar­frí falli út en skip­verjum verði tryggðir frí­dagar eftir nán­ara sam­komu­lagi áhafnar og útgerðar. Þá verði samið um að hafn­ar­frí megi taka í frít­úrum á öllum veiði­skap. Sér­stak­lega verði fjallað um svo­nefndar milli­land­anir. Jafn­framt falli niður sér­á­kvæði um frí um páska og samið verði um stytt­ingu á fríum á upp­sjáv­ar­veiðum sem nú er frá og með 20. des­em­ber til og með 2. jan­úar.
  6. Afla­verð­mæti jafnað yfir lengra tíma­bil en kaup­trygg­ing­ar­tíma­bil – Samið verði heim­ild til að jafna afla­verð­mæti yfir lengra tíma­bil en kaup­trygg­ing­ar­tíma­bil. Lagt er til að tíma­bil kaup­trygg­ingar verði þrír mán­uðir.
  7. Uppgjör á frysti­tog­urum – Ákvæði um upp­gjör á frysti­tog­urum verði tekin til end­ur­skoð­unar. Samið verði um lengri tíma til að ljúka end­an­legu upp­gjöri. Þá verði samið um brott­fall ákvæðis um að 90% upp­gjör af áætl­uðu afla­verð­mæti veiði­ferðar skuli gert upp til sjó­manna, en þess í stað fari fram heild­ar­upp­gjör veiði­ferðar.
  8. Ráðning til útgerðar – Að samn­ings­að­ilar komi sér saman um sam­eig­in­lega afstöðu um breyt­ingu á sjó­manna­lögum nr. 35/1985, með það mark­miði að heim­ilt verði að ráða sjó­menn til útgerðar, í stað þess að sjó­maður sé ráð­inn til til­greinds skips.
  9. Greiðslur í styrktar- og sjúkra­sjóði – Fjallað verði um og eftir atvikum greiðslur end­ur­skoð­aðar í styrktar- og sjúkra­sjóði.
  10. Skipta­kjör og upp­gjörs­að­ferðir – Farið verði yfir skipta­kjör og upp­gjörs­að­ferðir varð­andi ein­stakar veiði­greinar.
  11. Heimild til ráðn­inga á öðrum kjörum en afla­hlut – Samið verði um heim­ild til að ráða áhafn­ar­með­limi á öðrum kjörum en afla­hlut t.d. vegna vinnslu á auka­af­urðum þar sem verð­mætið stendur ekki undir hlut. Sama gildi um menn sem hafa engan eða skamman starfs­tíma til sjós.
  12. Heimild til að ráða fleiri en einn skip­verja í eina stöðu háseta í hverri veiði­ferð – Staðfest verði í kjara­samn­ingi heim­ild til að ráða tvo eða fleiri skip­verja í ákveð­inn tíma í eina stöðu háseta eins og tíðkað hefur verið með þegj­andi sam­komu­lagi aðila, t.d. hálf­drætt­inga.
  13. Um sekt­ar­á­kvæði – Samið verði um að sekt­ar­á­kvæði verði felld niður í kjara­samn­ingi.
  14. Samn­ingar á Aust­fjörðum og Vest­fjörðum – Samið verði um að sömu samn­ingar gildi á öllu land­inu.
  15. Kostn­aður vegna geymslu afurða – Samið verði um fyr­ir­komu­lag samn­inga útgerðar og áhafnar um að fresta sölu afurða þannig að kostn­aður vegna þess drag­ist frá óskiptu gegn hlut áhafnar í hærra sölu­verði.
  16. Uppgjör á rækju/fisk­veiðum – Þar sem fiskur fæst með rækju fari upp­gjör á afla­hlut úr rækju­afla sam­kvæmt ákvæðum um rækju­veiðar en á fiski sam­kvæmt ákvæðum um fisk­veiðar.
  17. Löndun á afla – Ákvæði kjara­samn­inga um löndun á afla upp­sjáv­ar­fisks og ann­ars fisks verði tekin til end­ur­skoð­unar.
  18. Kaup á afla­marki eða öðrum veiði­heim­ildum af erlendum aðilum – Samið verði um heim­ild útgerða til að draga kostnað við kaup á afla­marki eða öðrum veiði­heim­ildum af erlendum aðilum frá óskiptu. Um er að ræða veiði­heim­ildir eins og þær sem okkur stendur til boða að kaupa af Rússum í Barents­hafi.
  19. Mat­sveinn – Ákvæði um aðstoð­ar­mann mat­sveins falli brott. Auk þess sem krafa um mat­svein á minni bátum verði felld brott.

Kröfur SSÍ í fimmtán liðum

Kröfur samn­inga­nefndar Sjó­manna­sam­bands Íslands, vegna við­ræðna við SFS um end­ur­nýjun kjara­samn­inga sjó­manna sem runnu út þann 1. des­em­ber 2019 og sem lagðar voru fram á fundi með SFS þann 11. febr­úar síð­ast­lið­inn eru sem hér segir:

  1. Kaup­trygg­ingin og aðrir kaup­liðir hækki.
  2. Fiskverð end­ur­skoðað – Ákvörðun á verði upp­sjáv­ar­afla sett í eðli­legt horf.
  3. Útgerðin greiði 3,5% mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð.
  4. Útgerðin greiði 0,3% fram­lag í mennta­sjóð sjó­manna (Sjómennt).
  5. Útflutn­ingur í gámum – vinna skip­verja við ísun ekki leyfi­leg þegar afl­inn hefur þegar verið seldur erlendum aðila, sbr. upp­haf­lega merk­ingu ákvæðis 1.29.3. í gild­andi kjara­samn­ingi milli SSÍ og SFS.
  6. Slysa­varna­skóli sjó­manna – kostn­að­ar­greiðslur útgerðar, þ.e. uppi­hald og ferðir, skil­greindar nánar en gert er í kjara­samn­ingi.
  7. Ráðn­ing­ar­samn­ingar – laus­ráðn­ingar.
  8. Frí um jól og ára­mót og um sjó­manna­dag aukin.
  9. Trún­að­ar­maður skip­verja við upp­gjör geti verið utan­að­kom­andi maður að vali skip­verja og stétt­ar­fé­lags við­kom­andi skip­verja.
  10. Vinna mat­sveina á upp­sjáv­ar­skipum – vinna utan heima­hafnar og lág­marks hvíld­ar­tími.
  11. Auka­greiðsla aðstoð­ar­manns mat­sveins á frysti­skipum hækki veru­lega.
  12. Ávinnsla orlofs. – Verði sam­ræmt við almenna vinnu­mark­að­inn.
  13. Vinnslu­stjórar og mats­menn á frysti­skipum fái 1/8 hlut til við­bótar háseta­hlut fyrir starfið í stað fastrar krónu­tölu nú.
  14. Bætur frá útgerð vegna afnáms sjó­manna­af­sláttar.
  15. Skip­verjar hafi frí við löndun á öllum veiðum, þ.m.t á dag­róðrum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár