Samherja hent úr viðskiptum hjá DNB

Norski bank­inn DNB, helsti við­skipta­banki Samherja, hefur sagt upp öllum við­skiptum sínum fyrir fyr­ir­tækið.

Norska rík­is­sjón­varpið NRK full­yrðir á vef sínum að DNB bank­inn, sem er í 34 pró­sent eigu norska rík­is­ins, hafi sagt upp við­skiptum sínum við íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherja.

Í kjöl­far umfjöll­unar Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu, þar sem kom fram að fjár­munir sem urðu til vegna meintrar skatta­snið­göngu eða pen­inga­þvættis Samherja hefðu endað inni á reikn­ingum hjá DNB, hóf bank­inn inn­an­hús­rann­sókn á við­skiptum sínum við fyr­ir­tækið. Í lok nóv­em­ber 2019 greindi það svo frá þvi að norska efna­hags­brota­lög­reglan Økokrim væri að rann­saka bank­ann, í tengslum við rann­sókn á við­skipta­háttum Samherja.

Umfjöllun ofan­greindra fjöl­miðla leiddi í ljós að hluti þeirra pen­inga sem Samherji færði inn á reikn­inga í DNB í Noregi, sem voru meðal ann­ars not­aðir til að greiða sjó­mönnum í Afríku laun, væru frá félagi skráð í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum.

DNB lok­aði á reikn­ing­ana á árinu 2018 vegna þess að hann taldi óvissu um hver væri raun­veru­legur eig­andi félag­anna sem nýttu þá og að verið væri að nota þá til að stunda pen­inga­þvætti. Norska efna­hags­brota­lög­reglan er að skoða þennan anga máls­ins auk þess sem hann hefur verið til skoð­unar innan bank­ans.

Í umfjöllun Kveiks kom fram að Samherji hefði nýtt sér tví­skött­un­ar­samn­ing við eyj­una Máritíus í við­skiptum sínum í Namibíu og flutt hagnað sem varð til vegna veiða þar í lág­skatt­ar­skjólið Kýpur, þar sem Samherji hefur stofnað tug félaga á und­an­förnum árum. Frá Kýpur fóru pen­ing­arnir svo inn á banka­reikn­ing Samherja í norska bank­anum DNB, sem er að hluta í eigu norska rík­is­ins.

Opin­ber­unin byggði ann­ars vegar á tug­þús­undum skjala og tölvu­pósta sem sýndu við­skipta­hætt­ina svart á hvítu, og hins vegar á frá­sögn Jóhann­esar Stef­áns­sonar, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóra Samherja í Namibíu, sem ját­aði á sig fjöl­mörg lög­brot og sagð­ist hafa framið þau að und­ir­lagi Þor­steins Más Bald­vins­sonar, þáver­andi for­stjóra Samherja og eins aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, og Aðal­steins Helga­sonar, sem var lengi yfir útgerð Samherja í Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár