Samningur SGS við sveitarfélögin samþykktur

Nið­ur­stöður atkvæða­greiðslu um nýjan kjara­samn­ing sautján aðild­ar­fé­laga Starfs­greina­sam­bands Íslands og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga fyrir starfs­menn sveit­ar­fé­laga liggja nú fyrir. Samn­ing­ur­inn var sam­þykktur með miklum meiri­hluta.

Samninganefnd SGS
Samn­inga­nefnd SGS Mynd: Starfsgreinasambandið

Nið­ur­stöður atkvæða­greiðslu um nýjan kjara­samn­ing sautján aðild­ar­fé­laga Starfs­greina­sam­bands Íslands og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga fyrir starfs­menn sveit­ar­fé­laga liggja nú fyrir og var samn­ing­ur­inn sam­þykktur með miklum meiri­hluta. 80,6 pró­sent sagði já við samn­ingnum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Starfs­greina­sam­bandi Íslands í dag.

Starfs­greina­sam­bandið hélt utan um sam­eig­in­lega raf­ræna atkvæða­greiðslu meðal sextán félaga um nýjan samn­ing, en AFL Starfs­greina­fé­lag sá sjálft um sína atkvæða­greiðslu.

Atkvæða­greiðslan stóð yfir á tíma­bil­inu 3. til 10. febr­úar. Í heild­ina var kjör­sókn 32,83 pró­sent. Já sögðu 80,55 pró­sent en nei sögðu 16,33 pró­sent. 3,12 pró­sent tóku ekki afstöðu. Á kjör­skrá voru 4.197 manns, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Samn­ing­ur­inn, sem und­ir­rit­aður var 16. jan­úar síð­ast­lið­inn, er því sam­þykktur hjá eft­ir­far­andi félögum: AFLi Starfs­greina­fé­lagi, Öldunni stétt­ar­fé­lagi, Bárunni stétt­ar­fé­lagi, Drífandi stétt­ar­fé­lagi, Einingu-Iðju, Framsýn stétt­ar­fé­lagi, Stétt­ar­fé­lagi Vest­ur­lands, Stétt­ar­fé­lag­inu Samstöðu, Verka­lýðs­fé­lagi Grinda­víkur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Bol­ung­ar­víkur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Sand­gerðis, Verka­lýðs­fé­lagi Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lagi Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lagi Vest­firð­inga, Verka­lýðs­fé­lagi Þórs­hafnar, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Kefla­víkur og nágrennis og Verka­lýðs­fé­lag­inu Hlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár