Verkfallsvakt Eflingar vör við eitt brot

Meint verk­falls­brot hefur verið til­kynnt stjórn­endum skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

Verkfallsvakt Eflingar
Verk­fallsvakt Eflingar Mynd: Efling

Verk­fallsvakt Eflingar varð aðeins vör við eitt verk­falls­brot á fyrsta heila verk­falls­degi félaga í stétt­ar­fé­lag­inu hjá Reykja­vík­ur­borg í gær, 6. febr­úar. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Eflingar á Facebook í dag.

Samkvæmt stétt­ar­fé­lag­inu fólst verk­falls­brotið í ólög­mætri sam­ein­ingu deilda á leik­skóla og hefur brotið verið til­kynnt stjórn­endum skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

Verk­fallsvaktin fór út í fimm hópum og heim­sótti um 80 vinnu­staði Reykja­vík­ur­borgar þennan fyrsta verk­falls­dag, að því er fram kemur í færsl­unni. Þá hafi verið litið inn á nokkra vinnu­staði um kvöldið. Í verk­fallsvakt er starfs­fólk Eflingar ásamt félags­fólki í verk­falli sem boðið hefur fram krafta sína.

Vel tekið á móti verkfallsvörðum

„Sex staðir voru lok­aðir, leik­skólar og félags­mið­stöðvar, skert þjón­usta var á flestum leik­skólum og starf­stöðum sem ekki voru með und­an­þágur. Verk­fallsvarsla fór ekki í eft­ir­lit í íbúa­kjarna eða í minni úrræði við­kvæmra hópa enda var gefin und­an­þága fyrir starf­semi þeirra,“ segir í færslu Eflingar.

Þá kemur fram að vel hafi verið tekið á móti verk­fallsvörðum hvert sem þeir komu. Ljóst sé að mikil sam­staða ríki meðal starfs­fólks vinnu­staða Reykja­vík­ur­borgar og þjón­ustu­þega.

„Við þökkum kær­lega fyrir góðar mót­tökur og fyrir þann sam­hug sem starfs­fólk frá öðrum stétt­ar­fé­lögum, for­eldrar barna og not­endur þjón­ustu sem hefur skerst hafa sýnt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár