Skipulögðu kjarnorkuárásir á Danmörku

Það er ekki ofmælt að yfir­stjórn danska hers­ins og margir hátt­settir danskir stjórn­ar­ráðs­starfs­menn hafi orðið undr­andi þegar þeir hlýddu á fyr­ir­lestur tveggja danska sér­fræð­inga skömmu fyrir jól.

Fyr­ir­les­ar­arnir tveir voru þeir Peer Henrik Hansen yfir­maður Kalda­stríðs­safns­ins á Langa­landi, Lang­elands­for­tet, og Steen Andersen sér­fræð­ingur á danska Rík­is­skjala­safn­inu. Þeir hafa um nær tveggja ára skeið unnið að rann­sóknum á skjölum úr safni pólska hers­ins. Skjala­safnið, sem er mikið að vöxtum, hefur þangað til fyrir örfáum árum verið varð­veitt í lok­uðum geymslum pólska hers­ins. Tví­menn­ing­arnir, sem báðir eru vel kunn­ugir sögu kalda stríðs­ins, höfðu ákveðið að ein­beita sér að gögnum sem vörð­uðu hern­að­ar­á­ætl­anir Pólverja ef til hern­að­ar­á­taka kæmi milli ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og Var­sjár­banda­lags­ins. Á ráð­stefn­unni gerðu þeir einnig grein fyrir skýrslu frá banda­rísku leyni­þjón­ust­unni, skýrslu sem þangað til fyrir skömmu var merkt „top secret“.

Kalda stríðið

Kalda stríðið mun rit­höf­und­ur­inn George Orwell fyrstur manna hafa notað í rit­gerð sem hann skrif­aði árið 1945. Hugtakið er notað um tíma­bilið frá því skömmu eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar og fram til 1991, árs­ins þegar Sov­ét­ríkin lið­uð­ust í sundur. Stór­veldin, Banda­ríkin og Sov­ét­ríkin stóðu fyrir stofnun hern­að­ar­banda­laga, ann­ars vegar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO, og Var­sjár­banda­lags­ins hins vegar.

[adspot]NATO var stofnað árið 1949 en Var­sjár­banda­lagið sex árum síðar, 1955. Þótt Banda­ríkja­menn og Sov­ét­menn hafi verið banda­menn undir lok síð­ari heims­styrj­aldar höfðu þeir afar ólíkar hug­myndir um skipan mála eftir að stríð­inu lauk. Þegar dró að lokum styrj­ald­ar­innar hitt­ust leið­togar Banda­ríkj­anna, Bret­lands og Sov­ét­ríkj­anna, þeir Franklin D. Roosevelt, Winston Churchill og Jósef Stalín þrisvar sinnum, þar á meðal á Krím­skaga (Jalta­ráð­stefnan) til að ráða ráðum sínum. Austur Evrópa var á áhrifa­svæði Sov­ét­ríkj­anna og Þýska­landi var skipt upp, og Berlín var einnig skipt, þótt borgin væri í raun stað­sett á yfir­ráða­svæði Sov­ét­manna. Með þess­ari skipt­ingu leið­tog­anna þriggja varð til hið svo­nefnda járn­tjald. Saga kalda stríðs­ins verður ekki rakin frekar hér en næstu ára­tug­ina stóðu bæði NATO ríkin og ríki Var­sjár­banda­lags­ins fyrir stór­felldri hern­að­ar­upp­bygg­ingu, víg­bún­að­ar­kapp­hlaupi. Þótt stundum skylli hurð nærri hælum kom aldrei til beinna átaka milli Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna. Á níunda ára­tug síð­ustu aldar svo urðu miklar breyt­ingar, sem meðal ann­ars leiddu til falls Sov­ét­ríkj­anna, og loka kalda stríðs­ins.

Pólverjar höfðu Danmörku á sinni könnu

Þótt mikil leynd hafi hvílt yfir öllu því sem við kom hern­að­ar­upp­bygg­ingu og áætl­unum Var­sjár­banda­lags­ins og NATO lak vita­skuld ýmis­legt út. Það var til dæmis vitað að innan Var­sjár­banda­lags­ins, þar sem Sov­ét­menn voru pott­ur­inn og pannan, ríkti það fyr­ir­komu­lag að aðild­ar­ríkin höfðu til­tekin lönd, eða land­svæði, á sinni könnu, ef svo mætti að orði kom­ast. Samkvæmt skipu­lag­inu „til­heyrði“ Danmörk Póllandi. Þetta hefur lengi verið vitað. En í pólsku skjöl­unum var hins­vegar margt sem fáir, utan innsta hring danska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, vissu um. Þær hern­að­ar­á­ætl­anir Pólverja sem gert var ráð fyrir í skjöl­unum fengu við­stadda á fyr­ir­lestri sér­fræð­ing­anna til að grípa and­ann á lofti. En áður en að þeirri frá­sögn kom rifj­uðu fyr­ir­les­ar­arnir upp „við­vör­un­ar­búnað“ Dana. Sem fékk við­stadda til að brosa út í annað.

Sendistöð og loftnet

Leyni­þjón­usta danska hers­ins taldi sig vita að ef til þess kæmi að Pól­verjar réð­ust inn í Danmörku myndi her­lið þeirra ganga á land við smá­bæ­inn Faxe á Suður-Sjálandi. Leyni­þjón­ustan ákvað þess vegna að ráða ungan mann, búsettan við Hafn­ar­göt­una í Faxe, sem eins­konar útvörð. Hann fékk þjálfun í að þekkja far­ar­tæki pólska hers­ins, ekki síst bryn­varða her­flutn­inga­vagna og flutn­inga­bíla. Hann sinnti þess­ari vinnu (sem auka­starfi) árum saman og fékk með reglu­legu milli­bili sendar myndir og teikn­ingar af nýj­ustu tækjum og tólum Pólverja, svo hann gæti borið kennsl á þau pólsku tæki sem færu um veg­inn og rugl­aði þeim ekki saman við her- og flutn­inga­bíla danska hers­ins.

[adspot]Á gafli húss „útvarð­ar­ins“ hafði leyni­þjón­ustan komið fyrir lítt sýni­legu loft­neti og á háa­lofti í hús­inu var öfl­ugur rad­íó­sendir, með tal­stöð. Ef stríð skylli á skyldi „útvörð­ur­inn“ fylgj­ast grannt með umferð og sæi hann skyndi­lega pólsk hertól á veg­inum átti hann umsvifa­laust að kveikja á tal­stöð­inni og láta yfir­stjórn hers­ins vita. „Útvörð­ur­inn“ sinnti starf­inu af kost­gæfni árum saman, próf­aði sendi­bún­að­inn af og til, en aldrei kom til þess að hann sæi pólska her­liðið koma storm­andi eftir veg­inum og hann þyrfti að gera við­vart. Það var þessi frá­sögn sem fékk við­stadda á áður­nefndri ráð­stefnu dönsku sér­fræð­ing­anna til að brosa. Þótt hug­myndin um „útvörð­inn“ með tal­stöð­ina hafi kannski einu sinni verið góð og gild voru áætl­anir Pólverja, ef til stríðs kæmi, af allt öðrum toga.

Flugmaður skrifar grein

Í októ­ber í fyrra skrif­aði fyrr­ver­andi flug­maður í pólska hernum grein í tíma­ritið Polityka. Þar sagði hann frá því að þeir félag­arnir í flug­hernum hefðu stundum, á átt­unda og níunda ára­tugnum, rætt það að ef til stríðs kæmi myndu þeir ekki bara vera orustuflug­menn heldur líka lands­lags­arki­tektar. Þeir myndu, ef til þess kæmi, taka á loft frá her­flug­vell­inum við Szczecin (Stettin) og skömmu síðar yrði hluti Sjálands óþekkj­an­legur, sér­stak­lega Faxe og nágrenni. „Þannig er það nefni­lega með kjarn­orku­sprengjur“ sagði flug­mað­ur­inn fyrr­ver­andi. Greinin vakti ekki mikla athygli og full­yrð­ingar flug­manns­ins um kjarn­orku­sprengjur þóttu ekki trú­verð­ugar.

Leiftursóknaráætlunin

Þótt áður­nefndar full­yrð­ingar flug­manns­ins fyrr­ver­andi hafi ekki þótt trú­verð­ugar eða vakið athygli reynd­ist frá­sögn hans af hugs­an­legum árásum á Danmörku ekki hrein ýkju­saga.

Þegar dönsku sér­fræð­ing­arnir kynntu, á ráð­stefn­unni áður­nefndu, áætl­anir Pólverja um árásir á Danmörku var við­stöddum væg­ast sagt brugðið. Þar var í stuttu máli gert ráð fyrir að með leift­ur­sókn (blitzkrieg) yrði danski her­inn gjörsigr­aður á nokkrum dögum. Pólski her­inn myndi ryðj­ast gegnum norð­ur­hluta Þýska­lands og áfram til Jótlands. Jafn­framt myndi flug­her­inn varpa sprengjum á svæðið við Faxe og i fram­hald­inu myndu sveitir pólska hers­ins ganga þar á land.

Í gögn­unum úr pólska skjala­safn­inu má meðal ann­ars finna kort af Danmörku þar sem teikn­aðir hafa verið inn ákveðnir staðir og núm­eraðir, eins­konar vinnu­á­ætlun vegna inn­rás­ar­innar.

Það sem kom ráð­stefnu­gestum mest á óvart var að í áætl­unum Pólverja var gert ráð fyrir að beitt yrði kjarn­orku­vopnum.

Skýrslur bandarísku leyniþjónustunnar

Samkvæmt skýrslu banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar CIA, frá árinu 1984, yrði atburða­rásin með nokkuð öðrum hætti en lýst er í pólsku gögn­unum. Þar yrði byrjað með árás á Faxe (eins og flug­mað­ur­inn lýsti) og sprengjum varpað á Sjáland. Jafn­framt yrði ráð­ist inn í Jótland, með flug­her og land­her. Í nýrri skýrslu, frá árinu 1989, er einnig fjallað um varnir Dan­merkur, og þær eru sagðar litlar og van­mátt­ugar. Dönsk stjórn­völd hafi hvað eftir annað skorið niður fjár­veit­ingar til hern­að­ar­mála, meg­in­á­stæða þess er að yfir­menn danskra varn­ar­mála hafi talið hætt­una á inn­rás frá Pól­verjum litla sem enga. Þess vegna yrðu Danir auð­veld bráð pólsks inn­rás­ar­liðs.

Í þess­ari skýrslu er því einnig velt upp hvers vegna Pól­verjar myndu leggja svona mikla áherslu á að sigra Danmörku á nokkrum dögum, í leift­ur­stríði. Skýrslu­höf­undar CIA telja ástæð­una vera þá að Pól­verjar vildu sanna sig fyrir Sov­ét­mönnum og enn fremur með því að sýna slíkan styrk gætu þeir hugs­an­lega komið í veg fyrir að Pólland yrði jafn illa úti.

Áttu Pólverjar kjarnavopn?

Í skýrslu CIA, þeirri frá 1989, kemur fram að Pól­verjar hafi ráðið yfir kjarna­vopnum sem yrðu notuð við inn­rás í Danmörku. Ekki er nánar til­greindur fjöldi og styrkur þess­ara vopna en talan 18 kemur fyrir í skýrsl­unni. Í grein sem birt­ist fyrir nokkrum mán­uðum í pólska vís­inda­tíma­rit­inu Focus er full­yrt að Pól­verjar hafi á árum kalda stríðs­ins geymt (eins og það er orðað) kjarna­vopn sem hefðu að styrk­leika sam­tals jafn­gilt 500 sprengjum eins og þeirri sem varpað var á japönsku borg­ina Hiros­hima 6. ágúst árið 1945. Vopnin hefðu verið geymd í Póllandi um tutt­ugu ára skeið en hvað síðan hefði orðið um þau, og hver raun­veru­legur eig­andi var, kemur ekki fram í skýrsl­unni.

Í áætlun þeirri sem varð­veitt er í pólska rík­is­skjala­safn­inu var ekki nefnd nein tala um fjölda kjarna­vopna í höndum Pólverja.

Það er athygl­is­vert að síð­ari skýrsla CIA var gerð árið 1989, sama árið og Berlín­ar­múr­inn féll en sá atburður mark­aði enda­lok kalda stríðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár