Mest lesnu fréttaskýringar ársins 2019

Hvað eiga óhof­leg fata­kaup, eign­ar­haldið á Frétta­tím­anum, Casanova, knatt­spyrnu­fé­lagið Valur og Arion banki sam­eig­in­legt? Allt voru þetta við­fangs­efni mest lesnu frétta­skýr­inga árs­ins á Kjarn­anum.

5. Fréttatíminn: Tekjulaus miðill sem er unnin í sjálfboðavinnu huldumanna

Í byrjun árs 2018 keypti maður lén og Facebook-síðu úr þrota­búi Frétta­tím­ans og end­ur­skráði mið­il­inn hjá fjöl­miðla­nefnd. Síðan þá hafa birst á miðl­inum fjöld­inn allur af fréttum sem eng­inn er skrif­aður fyrir. 
Ábyrgð­ar­maður mið­ils­ins, sæbjúgna­út­flytj­andi, segir að hann hafi engar tekjur, sé unn­inn í sjálf­boða­vinnu og sé í raun „bara í gamni“. Hann vill ekki upp­lýsa um hverjir skrifi á vef Frétta­tím­ans.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. Það er eitthvað að gerast í Arion banka

Miklar breyt­ingar hafa orðið hjá stærsta bank­anum sem er einka­eigu á skömmum tíma. Inn­lendir einka­fjár­festar, með sögu sem teygir sig aftur fyrir banka­hrun, eru orðnir stórir eig­endur í Arion banka. 
[adspot]Á skömmum tíma í vor hætti fram­kvæmda­stjóri sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis bank­ans, skipt var um stjórn­ar­for­mann og banka­stjór­inn sagði upp. Mestu hrær­ingar í íslensku fjár­mála­kerfi frá hruni voru að eiga sér stað.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni.

3. Casanova handtekinn

,,Hann var bara svo sjar­mer­andi og umhyggju­sam­ur“ sagði dönsk kona um unga Ísra­el­ann sem sagð­ist vera vopna- og dem­anta­sali, fyrr­ver­andi orr­ustuflug­mað­ur, og millj­arða­mær­ing­ur. Hvorki hún, né aðrar konur sem ungi mað­ur­inn heill­aði, grun­aði hann um græsku í upp­hafi en svo kom önnur hlið í ljós.

Mað­ur­inn sem um ræðir heitir Shimon Yehuda Hayut. Hann er 29 ára gam­all og ólst upp í bænum Bnei Brak, skammt frá Tel Aviv. Í bæn­um, sem er ein helsta mið­stöð strang­trú­aðra gyð­inga, ríkir mikil fátækt.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni.

2. Sagan af því hvernig Valur varð ríkasta íþróttafélag á Íslandi

Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur er rík­asta íþrótta­fé­lag á Íslandi. Sú staða gerir Val kleift að bjóða upp á aðstöðu, aðstæður og launa­greiðslur sem önnur íþrótta­fé­lög geta illa eða ekki keppt við. Nið­ur­staðan er sú að Valur er í fremstu röð á öllum víg­stöðum helstu hóp­í­þrótta á Íslandi hjá báðum kynjum og hirðir hvern tit­il­inn á fætur öðrum.

Sagan á bak­við hinn mikla upp­gang Vals er stór og mikil. Hún teygir sig aftur fyrir síð­ustu ald­ar­mót og felur í sér margar hraða­hindr­anir og allskyns átök, bæði inn­an­búðar meðal Vals­manna og við aðra sem vildu standa í vegi fyrir veg­ferð­inni af ýmsum ástæðum. Öll þessi saga var rakin í Kjarn­anum í maí.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni.

1. Óhófleg fatakaup Íslendinga draga dilk á eftir sér

Vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið um umhverf­is­mál hér á landi á und­an­förnum árum. Í nýlegri umhverfiskönnun Gallups sögð­ust tveir af hverjum þremur Íslend­ingum hafa breytt hegðun sinni til þess lág­marka áhrif á umhverfi og lofts­lags­breyt­ingar. Í neyslu­sam­fé­lagi nútím­ans er hægt að breyta mörgu í þeirri von að draga úr umhverf­is­fótspor­inu. Fólk hefur meðal ann­ars verið hvatt til að breyta ferða­venjum sínum, flokka meira, breyta matar­æði og kaupa minna.

Fatasóun Íslend­inga hefur hins vegar auk­ist veru­lega á síð­ustu árum. Árið 2016 henti hver íbúi að með­al­tali 15 kílóum af textíl og skóm yfir árið, það er nærri því tvö­falt meira magn en fjórum árum áður. Meiri­hluti þess úrgangs fer í urðun en auk þess voru yfir 3000 tonn send frá Íslandi til ann­arra landa í end­ur­vinnslu árið 2018. Umhverf­is­ráðu­neytið stefnir á að draga úr fata­sóun á hvern íbúa um fimm kíló en umhverf­is­spor hverrar flíkur er gíf­ur­legt, allt frá fram­leiðslu til förg­unar.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár