Mest lesnu viðtöl ársins 2019

Hvað eiga Sheree Atcheson, Kári Stef­áns­son, Sigurður Ingi Frið­leifs­son, Salmann Tamimi og Eva Sig­urð­ar­dóttir sam­eig­in­legt? Lesendum Kjarnans fannst við­töl við þau áhuga­verð á árinu sem er að líða.

5. Hæfileikar eru alls staðar en tækifærin ekki

Mikil umræða hefur átt sér stað á síð­ustu árum um mik­il­vægi þess að auka hlut­fall kvenna og ann­arra minni­hluta­hópa innan tækni­geirans. Finna má alþjóð­leg sam­tök og ein­stak­linga sem hafa helgað sig því verk­efni að auka fjöl­breytni og sýni­leika ólíkra fyr­ir­mynda innan hug­bún­aðar- og tækni­geirans. Ein þeirra er Sheree Atcheson, 27 ára tölv­un­ar­fræð­ingur, sem vakið hefur athygli og hlotið verð­laun fyrir frum­kvöðla­störf sín við að auka fjöl­breytni innan tækni­geirans og vinna gegn aðgrein­ingu í atvinnu­líf­inu.

Lesið við­talið í heild sinni.

4. „Fólk þarf að finna að það sé hluti af samfélaginu“

„„Vel­kom­in!“ sagði Sal­mann og brosti, þegar hann tók á móti mér á heim­ili sínu í Breið­holti. Við sett­umst inn í stofu, þar sem stærð­ar­innar heimskort í öllum regn­bog­ans litum prýðir einn vegg­inn. Löndin eru aðgreind með mis­mun­andi litum en um leið mynda þau fal­lega heild.“

[adspot]Melkorka Mjöll Krist­ins­dóttir spjall­aði við Salmann Tamimi, for­mann Félags múslima á Íslandi, um lífs­hlaup hans og reynsl­una af því að vera inn­flytj­andi á Íslandi.

Lesið við­talið í heild sinni.

3. Varðhundar feðraveldisins klóra í bakkann

Varð­hundar feðra­veld­is­ins klóra í bakk­ann með því að kæra þolendur fyrir meið­yrði. Þeir reyna að draga úr ofbeldi og upp­lifun fólks sem verður fyrir ofbeldi sagði Eva Sig­urð­ar­dóttir í sam­tali við Kjarn­ann.

Eva var í skipu­lags­teymi Druslu­göng­unnar í ár.

Lesið við­talið í heild sinni.

2. Mýta að rafmagnsbílar séu óumhverfisvænni

„Í hraða heim­inum sem við búum við þá er litli sann­leik­ur­inn vissu­lega réttur þá getur raf­magns­bíll verið með örlítið stærra kolefn­is­spor. Það eru rosa­lega fáir bílar sem eru fram­leiddir og ekki keyrð­ir. Þegar bíll­inn fer af stað þá breyt­ist myndin hratt. Það er mis­mun­andi eft­ir ­kerfum en staðan er alls staðar betri. Það tekur mis­mun­andi tíma, en á end­anum er hann alltaf með minna kolefn­is­spor.”

Þetta er meðal þess sem Sigurður Ingi Frið­leifs­son, for­maður starfs­hóps um orku­skipti í sam­göngum, sagði í við­tali við Kjarnann í júní.

Lesið við­talið í heild sinni.

1. Alkohólistar á Alþingi

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur rabb­aði við Kára Stef­áns­son, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, um alkó­hól­isma á Alþingi. 
Þau ræddu meðal ann­ars um hvort að við­brögð Klaust­ur­þing­manna bentu til þess að þeir séu alkó­hólistar og er eðli­legt að þjóð­kjörnir full­trúar séu drukknir á almanna­færi?

Þetta sam­tal var mest lesna við­tal árs­ins í Kjarn­anum.

Lesið við­talið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár