Mest lesnu aðsendu greinar og skoðanagreinar ársins 2019

Hvað eiga stjórn­endur Kaup­þings, maður sem hvarf í Keflavík fyrir mörgum ára­tugum síðan, hag­fræðin í upp­vask­inu og dramat­ísk rétt­ar­höld vegna upp­sagnar leik­ara sam­eig­in­legt? Þau voru við­fangs­efni mest lesnu pistla eða aðsendra greina á Kjarn­anum í ár.

5. Maðurinn sem hvarf í Keflavík

„Þann 20. nóv­em­ber 1974 hóf lög­reglan í Kefla­vík rann­sókn á því af hverju maður að nafni Geir­finnur Ein­ars­son hafði horfið spor­laust frá deg­inum áður. Stjórn­andi rann­sókn­ar­innar var Val­týr Sig­urðs­son full­trúi bæj­ar­fó­get­ans í Kefla­vík, en hann fór með stjórn lög­reglu í umboði fógeta. Rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Haukur Guð­munds­son var settur í verk­efn­ið, en ábyrgð­ar­maður þess var yfir­maður hans, Val­týr Sig­urðs­son.

Rann­sókn manns­hvarfs­ins var með slíkum endemum að vinnu­brögð við hana ná ekki einusinni að falla undir fúsk.“

Svona hófst aðsend grein eftir Soffíu Sig­urð­ar­dóttur um mál sem end­aði sem Guð­mundar- og Geir­finns­málið.

Lesið grein­ina í heild sinni.

4. Sá sem eldar á líka að vaska upp

„Óskrifuð regla er á mörgum heim­ilum að það sé ekki sami ein­stak­ling­ur­inn sem eldar og vaskar upp eftir mat­inn. Ef pabbi eldar þá vaskar mamma eða börnin upp.

[adspot]Þetta kerfi er svo gam­alt og hefðin svo gróin að það er nán­ast ómögu­legt að hugsa sér ann­ars­konar kerfi. Hefðin er svo vel rótuð að við látum okkur ekki einu sinni detta það í hug að skora á hvort hefðin sé af hinu góða, eða hvort megi bæta hana.

Þegar hefðin er skoðuð nán­ar, og í gegnum gler­augu hag­fræð­inn­ar, er nokkuð ljóst að hún er mis­heppn­uð.“

Svona hófst pist­ill eftir Eikonomics sem birt­ist í maí og vakti mikla athygli.

Lesið pistil­inn í heild sinni.

3. Opið bréf til Ármanns Þorvaldssonar

„Kæri Ármann.

Þú mis­not­aðir traust okkar þar sem þú gegndir mik­il­vægu hlut­verki í svik­unum sem áttu sér stað í Kaup­þingi. Þú barst sér­stak­lega ábyrgð á inn­lána­söfnun Kaup­þing „Edge” (net­reikn­ing­ar), sem að lokum fram­lengdu líf­tíma svikanna og leiddu til auk­ins sam­fé­lags­legs skaða sem hleypur á millj­örðum evra.

Svik Kaup­þings námu 83 millj­örðum Banda­ríkja­doll­ara og gjald­þrot bank­ans varð það fimmta stærsta í sög­unni, stærra en Madoff-svika­myllan sem nam 64 millj­örðum Banda­ríkja­doll­ara. Sam­an­tekið mynd­uðu íslensku bank­arnir þrír þriðja stærsta gjald­þrot sög­unn­ar, en ein­göngu fall Lehman Brothers og Washington Mutual var stærra.“

Kevin Stanford og Karen Millen, sem voru á meðal stærstu við­skipta­vina Kaup­þings fyrir hrun, skrif­uðu opið bréf til Ármanns Þor­valds­sonar.

Lesið opna bréfið í heild sinni.

2. Harmleikur í héraðsdómi

„Í litlu her­bergi, númer 401, á fjórðu hæði í hér­aðs­dómi áttu sér stað rétt­ar­höld, fimmtu­dag­inn 26. sept­em­ber, þar sem helstu per­sónur og leik­endur voru Kristín Eysteins­dóttir Borg­ar­leik­hús­stjóri og Atli Rafn Sig­urð­ar­son leik­ari, ásamt lög­mönnum sín­um. Sig­urður Örn Hilm­ars­son var lög­maður Krist­ínar og Einar Þór Sverr­is­son var lög­maður Atla. Þröngt her­bergið var svo þétt setið að nán­ast mátti þukla á til­finn­inga­þrungnu and­rúms­loft­inu.
Þarna var verið að rétta yfir Krist­ínu Eysteins­dóttur og Leik­fé­lagi Reykja­víkur en rétt er að taka fram að hún er vin­kona mín og fyrrum sam­starfs­fé­lagi síðan ég var hús­skáld í Borg­ar­leik­hús­inu fyrir nokkrum árum.“
Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur var við­stödd aðal­með­ferð í máli Atla Rafns Sig­urð­ar­sonar gegn Kristínu Eysteins­dóttur. Í pistli sem hún birti í lok sept­em­ber velti hún upp nokkrum spurn­ingum.

Lesið pistil­inn í heild sinni.

1. Opið bréf til Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar

„Hreiðar og Magn­ús.

Karen Millen og ég höfum verið talin „vinir Kaup­þings“, en þar sem við vorum notuð í svika­myllu sem þið bjugguð til, og tíu árum síðar hefur Kaup­þing stefnt okkur á nýjan leik vegna svika ykk­ar, þá viljum við koma eft­ir­far­andi á fram­færi.“

Svona hófst opið bréf sem Kevin Stanford og Karen Millen, sem voru á meðal stærstu við­skipta­vina Kaup­þings fyrir hrun, skrif­uðu til tveggja af helstu stjórn­endum bank­ans á þeim tíma.

Lesið opna bréfið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár