Casanova handtekinn

Lög­reglan í Aþenu hand­tók fyrir viku ungan mann sem árum saman hefur ferð­ast um og meðal ann­ars sagst vera millj­arða­mær­ingur. Margar konur hafa heill­ast af þessum Casanova, sem hefur haft af þeim tug­millj­ónir króna.

,,Hann var bara svo sjar­mer­andi og umhyggju­samur“ sagði dönsk kona um unga Ísra­el­ann sem sagð­ist vera vopna- og dem­anta­sali, fyrr­ver­andi orr­ustuflug­maður, og millj­arða­mær­ingur. Hvorki hún, né aðrar konur sem ungi mað­ur­inn heill­aði, grun­aði hann um græsku í upp­hafi en svo kom önnur hlið í ljós.

Maðurinn sem um ræðir heitir Shimon Yehuda Hayut. Hann er 29 ára gam­all og ólst upp í bænum Bnei Brak, skammt frá Tel Aviv. Í bænum, sem er ein helsta mið­stöð strang­trú­aðra gyð­inga, ríkir mikil fátækt. Faðir Shimon var rabbíni (gyð­inga­prestur) en ekki einn þekkt­asti dem­anta­kaup­maður Ísraels, dem­anta­kóngur eins og Shiman hélt síðar fram. Móðir Shiman sagði, í við­tali við dag­blað í Tel Aviv, að fjöl­skyldan hefði misst öll tengsl við Shiman þegar hann var 18 ára og ,,síðan höfum ekk­ert um hann vitað og höfum ekki hug­mynd um hvar hann er.“

Flýði frá Ísrael

Árið 2011 var Shimon Hayut hand­tek­inn í Ísrael. Hann hafði þá falsað ávís­anir, orðið upp­vís að þjófn­uðum og margs konar svindli. Hann var lát­inn laus, gegn trygg­ingu, en þegar málið kom fyrir dóm­stóla í mars 2012 var Shimon Hayut flú­inn úr landi en ísra­elska lög­reglan gaf út alþjóð­lega hand­töku­skipun á hendur honum. Ekki er nákvæm­lega vitað hvert leið Shimon lá eftir flótt­ann frá Ísrael en í febr­úar árið 2015 var hann í Bangkok í Tælandi. Þar varð á vegi hans finnsk kona, sem finnskir fjöl­miðlar kalla Lenu H, en það er ekki hennar rétta nafn. Lena H var í fríi í Tælandi og kynnt­ist þar þessum huggu­lega unga manni (hennar eigin orð) sem kvaðst heita Mordechai Tapiro en væri kall­aður Simon. Hann sagð­ist vera fyrr­ver­andi orr­ustuflug­maður, hefði orðið að hætta eftir slys, en stæði nú í umfangs­miklum vopna­við­skiptum, sem hann eðli máls­ins gæti ekki talað mikið um, en gæfu mjög vel í aðra hönd. Vel fór á með þeim Lene H og mann­inum sem kvaðst kall­aður Simon og eftir að Lena H kom aftur heim til Finn­lands fór Simon fljót­lega á eftir henni. Nokkrum mán­uðum eftir kom­una þangað lenti Simon í vanda og bað vin­konu sína Lenu H um aðstoð.

Lokaða kortið í Tælandi

Vandinn sem Simon var lentur í var sá, að hans sögn, að ein­hver svindl­ari í Tælandi hefði ,,afritað“ greiðslu­kort hans og þess vegna hefði því verið lokað. Umrætt kort var að hans sögn svo­kallað Centurion kort, útgefið af American Express. Centurion kortin eru ein­ungis boðin við­skipta­vinum sem hafa mikið umleikis og Simon var í þeim hópi. Athafna­maður. Þessi Centurion kort, sagði Simon, að væri ein­ungis hægt að fá útgefin og afhent í London en hann þyrfti jafn­framt að skreppa til Bangkok til að koma þessu öllu heim og saman. En vegna þess að kortið væri lokað, sagði hann Lenu H, þyrfti hann að treysta á að hún gæti lánað honum pen­inga meðan hann væri að ,,redda“mál­unum. Þau Lena H og Simon höfðu nú búið saman í um það bil hálft ár, hún var ófrísk og þau höfðu rætt um gift­ingu.

En Simon hafði fleiri járn í eld­inum, hann hafði kom­ist í sam­band við tvær aðrar finnskar konur, þeim hafði hann kynnst á Tinder sam­skipta­vefnum og lýst fyrir þeim umsvifum sínum. Meðal ann­ars væri hann eig­andi að næt­ur­klúbbum og íbúðum í London og víðar. En hann væri reyndar í vand­ræðum vegna áður­nefnds greiðslu­korts sem hafði verið lokað í Bangkok. Simon réð kon­urnar í vinnu og þær trúðu, í upp­hafi öllu sem hann sagði. Líka sög­unni um lok­aða greiðslu­kortið. Þessar tvær konur voru vel stæðar og til­búnar að hlaupa undir bagga og leyfðu Simon að nota greiðslu­kort sín til að halda rekstr­inum gang­andi.

Önnur þess­ara kvenna hafði hins­vegar grunað Simon um græsku eftir að korta­fyr­ir­tækið American Express hafði haft sam­band við kon­una og sagt henni að reynt hefði verið að nota kort hennar til að leigja einka­þotu. Konan lét þá loka kort­inu og hafði sam­band við lög­reglu. Síðar kom í ljós að Simon hafði á tíma­bil­inu mars til sept­em­ber 2015 fengið pen­inga sem jafn­gilda 35 millj­ónum íslenskra króna frá finnsku kon­unum þremur. Þegar finnska lög­reglan ætl­aði að hand­taka Simon var hann hins­vegar á leið til Brasilíu, að eigin sögn í við­skipta­er­indum.

Handtekinn

Simon var í Brasilíu í nokkra daga en þegar hann kom til baka til Finn­lands var hann hand­tek­inn. Hann var þá með tvö fölsuð vega­bréf, þrjú fölsuð öku­skír­teini, tvo flug­miða og fimm greiðslu­kort. Við yfir­heyrslur sagði Simon að hann hefði fengið pen­ing­ana að láni hjá kon­unum þrem og hann ætl­aði að borga þeim síðar. Í rétt­inum var honum lýst sem ,,hug­mynda­ríkum“. Simon var dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir svindl og skjala­fals.

Flýði í annað sinn frá Ísrael

Í mars 2017 vís­uðu finnsk yfir­völd Simon, eins og hann kall­aði sig þótt hann héti réttu nafni Shimon, úr landi og var hann þá fluttur til Ísraels. Þar mætti hann fyrir rétt, vegna gömlu svind­lá­kærunnar en var lát­inn laus gegn trygg­ingu. Nokkru síðar, þegar hann átti að mæta fyrir rétt­inn, var hann horf­inn, hafði breytt um nafn og hét nú Simon Leviev. Eft­ir­nafnið er hið sama og eins þekktasta og rík­asta dem­anta­sala í Ísrael enda átti Simon eftir að láta sum ,,fórn­ar­lömb“ sín vita að hann væri sonur dem­anta­kóngs­ins, ,,ég er prins­inn“.

Ein­hverra hluta vegna liðu fimmtán mán­uðir frá því að Simon mætti ekki fyrir rétt­inn þangað til yfir­völd í Ísrael lýstu opin­ber­lega eftir honum. Í milli­tíð­inni hafði Simon notið lífs­ins, með aðstoð greiðslu­korta kvenna sem hann kynnt­ist. Norskir og danskir fjöl­miðlar hafa reynt að rekja slóð hans síð­ast­liðin ár, norska dag­blaðið VG (Verdens gang) og Politi­ken í Danmörku hafa birt löng við­töl við konur sem hafa kom­ist í kynni við Simon. Þær segj­ast reynsl­unni rík­ari en hins­vegar orðið að punga út umtals­verðum fjár­munum vegna þess­ara kynna. Norska dag­blaðið VG birti í febr­úar síð­ast­liðnum langt við­tal við norska konu Cecile Fjellhøy.

Hún kynnt­ist Simon á Tinder árið 2018 og í við­tal­inu sagði hún farir sínar ekki sléttar vegna sam­bands­ins við hann. Hún hafði heim­ilað honum aðgang að kredit­kort sínu, ,,af því að hann var í vand­ræðum“. Simon kom til Noregs til að hitta Cecile en svo fékk hann ,,sím­tal“ þar sem honum var sagt að ein­hverjir menn sætu um hann og honum væri ráð­leg­ast fara strax frá Ósló. Hann dreif sig sam­stundis til Kaup­manna­hafnar til að forð­ast ,,umsát­urs­menn­ina“ eins og hann komst að orði að sögn Cecile. Síðar komst hún að því að þetta með umsát­urs­menn­ina var hreinn upp­spuni, hann hafði farið til Kaup­manna­hafnar til að hitta aðra konu sem hann var í tygjum við. Þau nutu lífs­ins í borg­inni við sundið, allt borgað með kredit­korti hinnar norsku Cecile. Meðal ann­ars hafði Simon keypt vönduð sól­gler­augu í verslun á Strikinu, þau kost­uðu 43.975.- danskar krónur, sam­svarar 874 þús­und íslenskum krónum. ,,En hann fékk annað par í kaup­bæti“ sagði gler­augna­sal­inn við blaða­mann VG.

Cecile Fjellhøy sagði blaða­manni VG að ,,sam­band“ sitt við Simon hefði staðið í 52 daga og það hefði kostað sig jafn­gildi 22 millj­óna íslenskra króna.

Eftir að VG birti við­talið við Cecile Fjellhøy hringdi dönsk kona til dag­blaðs­ins Politi­ken og greindi frá sam­bandi sínu við Simon. Fljót­lega eftir að þau kynnt­ust lenti Simon, eins og oft áður, í ,,vand­ræðum með kortið“. Sam­band­inu lauk haustið 2015, þá grun­aði dönsku kon­una að eitt­hvað væri gruggugt við þennan mann sem hún hafði fallið fyrir. Þetta var um sama leyti og hann var hand­tek­inn í Finn­landi.

Handtekinn í Aþenu

Fyrir viku síðan var Simon hand­tek­inn á flug­vell­inum í Aþenu. Hann var þá á leið frá Grikk­landi en fram­vís­aði fölsku vega­bréfi á flug­vell­inum. Fyrir það var hann dæmdur í 50 daga fang­elsi en var jafn­framt til­kynnt að hann gæti losnað gegn trygg­ingu. Hvort honum hafi tek­ist að öngla saman fyrir trygg­ing­unni er ekki vitað né hvort fréttir af hand­tök­unni hafi borist til eyrna ísra­el­skra lög­reglu­yf­ir­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár