„Það mætti rukka okkur borgarfulltrúa fyrir matinn, við höfum efni á því“

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins spyr hvers vegna ekki sé verið að bjóða ein­hverjum á lágum launum, sem sinnir mik­il­vægu starfi í borg­inni, í mat.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í morgun að henni finn­ist að rukka mætti borg­ar­full­trúa fyrir mat­inn sem boðið er upp á á borg­ar­stjórn­ar­fundum, þau hefðu efni á því. Hún spyr enn fremur af hverju ekki sé frekar verið að bjóða ein­hverjum á lágum launum, sem sinnir mik­il­vægu starfi í borg­inni, í mat.

Ástæðan fyrir skrifum hennar eru fréttir þess efnis að kostn­aður við þá 20 fundi sem borg­ar­stjórn hefur haldið frá júlí á síð­asta ári til júní á þessu ári nemi rúmum 17 millj­ónum eða 850 þús­und krónum á hvern fund. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og áhættu­stýr­inga­sviðs við fyr­ir­spurn Pawels Bartoszek, for­seta borg­ar­stjórnar, sem kynnt var á fundi for­sætis­nefndar fyrir helgi en RÚV greindi frá þessu í morgun.

„Byrja fyrr, ljúka fundi fyrr, þá minnka líkur á því að við borðum kvöld­mat á staðnum en fundir borg­ar­stjórnar byrja klukkan 14:00 (í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum byrja þeir fyrr, t.d. þegar við erum að afgreiða eitt­hvað stórt sem þarf tvær umræður í borg­ar­stjórn) og við fundum langt fram eftir,“ skrifar Sanna.

15 þúsund á hvern borgarfulltrúa

Í frétt RÚV kemur fram að inni í þess­ari upp­hæð sé matur frá Múla­kaffi upp á 5,8 millj­ónir eða 295 þús­und á hvern fund og svo aðrar veit­ingar upp á 1,3 millj­ónir. Á hverjum fundi borg­ar­stjórnar sé því borðað og drukkið fyrir 360 þús­und krónur eða rúmar 15 þús­und krónur á hvern borg­ar­full­trúa.

„Í svari skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar kemur fram að kostn­að­ur­inn við hvern fund borg­ar­stjórnar sé um það bil 850 þús­und krónur. Greitt sé fyrir veit­ingar handa borg­ar­stjórn, útsend­ingar á vef Reykja­vík­ur­borgar og fyrir yfir­vinnu hús­varða í Ráð­hús­inu frá klukkan sex um kvöldið.

Fjármála- og áhættu­stýr­inga­svið segir að þrír hús­verðir séu í yfir­vinnu frá klukkan 18 á meðan húsið sé opið. „Ef borg­ar­stjórn­ar­fundir stæðu skemur en til klukkan 18 myndi spar­ast mat­ar­kostn­aður, útsend­inga­kostn­aður og yfir­vinna hús­varða.“ Ekki hafi verið greitt sér­stak­lega fyrir yfir­vinnu ann­arra starfs­manna á skrif­stofu borg­ar­stjórnar vegna funda borg­ar­stjórnar en að jafn­aði séu tveir til þrír starfs­menn á sér­stakri funda­vakt eftir að dag­vinnu­tíma lýkur,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár