Jón Sigurðsson kominn í stjórn Símans – Verður stjórnarformaður

Sitjandi stjórn­ar­for­maður Símans, Betrand Kan, var felldur í stjórn­ar­kjöri í dag. Stoðir, stærsti hlut­hafi Símans, eru komin með mann inn í stjórn.

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða.
Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða. Mynd: N1

Stjórn­ar­for­maður Símans, hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan sem setið hefur í stjórn félags­ins frá vor­inu 2016, var felldur í stjórn­ar­kjöri sem fram fór í dag.

Alls voru sex í fram­boði til stjórnar og var hann sá eini þeirra sem náði ekki kjöri. Þau fimm sem kjörin voru í stjórn eru Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða sem er stærsti ein­staki eig­andi Símans, Kolbeinn Árnason, lög­maður og eig­andi Dranga lög­manna, Sylvía Kristín Ólafs­dóttir, for­stöðu­maður rekstr­ar­sviðs Icelandair, Bjarni Þor­varð­ar­son, for­stjóri lyfja­fram­leið­and­ans Coripharma í Hafnar­f­irði.

Jón hefur verið kjör­inn for­maður stjórnar og Helga verður vara­for­maður hennar.

[adspot]Það var að kröfu Stoða, sem hafa keypt sig hratt upp í Símanum und­an­farin miss­eri, sem hlut­hafa­fundur var boð­aður til að kjósa nýja stjórn. Taldi félagið að vegna veru­legra breyt­inga sem orðið hafa á eign­ar­haldi Símans væri rétt að umboð stjórnar yrði end­ur­nýjað og kosin verði ný stjórn.

Hagn­aður Sím­ans á þriðja árs­fjórð­ungi var rúm­lega 897 millj­ónir króna og dróst saman úr 978 millj­ónum króna í fyrra. Rekstr­ar­hagn­aður félags­ins var 2,8 millj­arðar króna og hækk­aði um 210 millj­ónir króna frá sama tíma­bili 2017.

Eig­in­fjár­hlut­fall Sím­ans í lok þess árs­fjórð­ungs, sem lauk í lok sept­em­ber, var 55,4 pró­sent og eigið fé fjar­skipt­ar­is­ans var 36,3 millj­arðar króna.

Góður tekju­vöxtur var í sjón­varps­rekstri milli ára, eða um 20 pró­sent. Á þriðja árs­fjórð­ungi í fyrra voru tekjur Sím­ans af sjón­vars­rekstri 1.190 millj­ónir króna er voru nú 1.423 millj­ónir króna. Þessi tekju­aukn­ing dró vagn­inn fyrir Símann á síð­asta árs­fjórð­ungi. 

Orðið umsvifamikið á skömmum tíma

Stoðir er á skömmum tíma orð­inn umsvifa­mesti einka­fjár­festir­inn hér­lendis. Félagið hét áður FL Group og var meðal ann­ars stærsti eig­andi Glitnis banka fyrir hrun. 

Félagið fór í greiðslu­stöðvun þegar sá banki fór á haus­inn og kröfu­hafar þess tóku það yfir. Vorið 2017 keyptu svo félög, í eigu stórra hlut­hafa í TM sem voru margir hverjir lyk­il­­menn í FL Group á árunum fyrir hrun, ráð­andi hlut í Stoð­u­m.

[adspot]Þá áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­lenska drykkj­­ar­vöru­fram­­leið­and­­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­tökutil­boð og eftir sátu um 18 millj­arðar króna í Stoð­um. Þeir fjár­munir hafa verið not­aðir í fjár­fest­ingar á und­an­förnum miss­er­um.

Mikið eigið fé til að fjárfesta með

Eigið fé Stoða var 23,2 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Hlut­hafar Stoða eru 54 tals­ins. Stærstu hlut­haf­arnir eru S121 ehf. (64,5 pró­sent), Lands­bank­inn og sjóðir í stýr­ingu Stefnis, sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka.

Stærstu end­an­legu eig­endur S121 hafa margir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örvari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, líka stóran hlut.

Auk þess á eig­in­kona Jóns, núver­andi stjórn­ar­for­manns Stoða og nú stjórn­ar­manns í Símanum, og fjöl­skylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórn­inni sitja Sig­­ur­jón Páls­­son og Örvar Kjærne­sted. Fram­­kvæmda­­stjóri félags­­ins er Júl­­íus Þor­finns­­son.

Helstu eignir Stoða eru 4,96 pró­sent hlutur í Arion banka, 14,05 pró­sent hlutur í Símanum og 9,97 pró­sent hlutur í trygg­inga­fé­lag­inu TM. Stoðir eru stærsti ein­staki eig­and­inn í bæði Símanum og TM, og langstærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í Arion banka. Örvar og Einar Örn sitja báðir í stjórn TM.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár