Hraðhleðslustöðvum fjölgar um 40 prósent

Orku­sjóður hefur úthlutað styrkjum til upp­setn­ingar 43 nýrra hrað­hleðslu­stöðva vítt og breitt um landið. Ísland er í öðru sæti í heim­inum hvað varðar hlut­fall raf­bíla og tengilt­vinn­bíla af fjölda nýskráðra bif­reiða.

Alls verða 43 nýjar hrað­hleðslu­stöðvar settar upp vítt og breitt um landið í kjöl­far styrkút­hlut­unar frá Orku­sjóði. Nýju stöðv­arnar eru þrisvar sinnum afl­meiri en öfl­ug­ustu stöðv­arnar sem fyrir eru hér­lendis og eiga að stuðla að hindr­un­ar­lausum ferðum raf­bíla milli lands­hluta. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

146 hraðhleðslustöðvar um land allt

[links]Styrkir Orku­sjóðs er hluti af aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum og upp­bygg­ingu inn­viða vegna orku­skipta í sam­göngum. Rík­is­stjórnin kynnti í sumar mark­vissa upp­bygg­ingu inn­viða vegna orku­skipta í sam­göngum og í kjöl­farið voru aug­lýstir fjár­fest­ing­ar­styrkir til upp­bygg­ingar öfl­ugri hrað­hleðslu­stöðva fyrir raf­bíla.

Einnig voru aug­lýstir fjár­fest­ing­ar­styrkir til upp­bygg­ingar hleðslu­stöðva við gisti­staði um allt land í sumar og var 30 millj­ónum úthlutað úr sjóðnum til gisti­staða í októ­ber. Mark­miðið með þeim styrkjum er að liðka fyrir orku­skiptum hjá bíla­leigum en bíla­leigu­bílar eru um helm­ingur nýskráðra bíla.

Með nýju hrað­hleðslu­stöðv­unum fjölgar hrað­hleðslu­stöðvum hér á landi um 40 pró­sent og verða stöðv­arnar í heild­ina 146. Nýju stöðv­arnar til­heyra nýrri kyn­slóð hrað­hleðslu­stöðva en um er að ræða 150kW hleðslu­stöðvar. Öfl­ug­ustu stöðv­arnar hafa hingað til verið 50kW og flestar eru 22kW.

Næst hæsta hlutfall rafbíla og tengiltvinnbíla í heiminum

Rafbílum fjölgar hratt hér á landi og er Ísland í öðru sæti í heim­inum á eftir Noregi hvað varðar hlut­fall raf­bíla og tengilt­vinn­bíla af fjölda nýskráðra bif­reiða. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra segir að það sé frá­bært að verða vitni að þeirri hröðu fjölgun raf­bíla sem nú eigi sér stað.

„Þetta er mjög mik­il­vægt lofts­lags­mál og við höfum lagt áherslu á að styðja vel við not­endur þess­ara bíla með fjölgun hleðslu­stöðva. Það er því sér­stak­lega ánægju­legt að fá nú upp nýjar, afl­miklar stöðvar sem ger­breyta hleðslu­mögu­leikum hér á landi,“ segir Guð­mu­dnur Ingi.

„Orku­skiptin eru í fullum gangi og á örfáum vikum höfum við til­kynnt um aðgerðir þar sem heild­ar­fjár­fest­ingin nemur ríf­lega hálfum millj­arði króna. Þetta er mjög stórt skref í því að gera sam­göngur okkar vist­vænar og hefur einnig mikla þýð­ingu fyrir mark­mið okkar að verða leið­andi í sjálf­bærri ferða­þjón­ustu,“ segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafbílavæðing

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár