Rafbílaeigendur geti búist við miklu álagi á hleðslustöðvum í sumar

Aukin raf­bíla­eign og hugur fólks til ferða­laga í sumar mun lík­lega hafa þau áhrif að þétt verður setið um hleðslu­stöðvar lands­ins á ferða­helgum. Mik­il­vægt sé að sýna þol­in­mæði og að skipu­leggja ferða­lög með til­liti til hleðslu­stöðva.

45 prósent af nýskráðum bílum það sem af er ári eru raf- eða tengiltvinnbílar.
45 pró­sent af nýskráðum bílum það sem af er ári eru raf- eða tengilt­vinn­bílar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þol­in­mæði er mik­il­væg­asti far­angur þeirra sem ætla sér að ferð­ast inn­an­lands á raf­bíl í sumar. Þetta er mat við­mæl­anda Kjarnans um málið. Búast má við því að í sumar verði meira álag á þeim hleðslu­stöðvum sem stað­settar eru við vin­sæl­ustu áning­ar­stað­ina við þjóð­vegi lands­ins, nú þegar Íslend­ingar ætla í auknum mæli að ferð­ast inn­an­lands.

Rafbílum í flota lands­manna hefur fjölgað ört á síð­ustu árum. Á vef Orku nátt­úr­unnar kemur fram að í maí hafi heild­ar­fjöldi raf­bíla á land­inu verið alls 4.925 og heild­ar­fjöldi tengilt­vinn­bíla verið 8.636. Hlut­deild þess­ara bíla í flot­anum kann að virð­ast lítil, en hún hefur vaxið hratt. Þegar fyrstu hleðslu­stöðvar ON voru teknar í notkun árið 2014 voru innan við 100 raf- eða tengilt­vinn­bílar á götum lands­ins.

Aukn­ingin sést hve best í tölum um nýskrán­ingar fólks­bíla sem finna má á vef Bíl­greina­sam­bands­ins. Það sem af er ári eru alls 45 pró­sent af nýskráðum bílum raf- eða tengilt­vinn­bílar. Til sam­an­burðar eru 40 pró­sent af nýskrán­ingum bensín eða dísil­bílar. Þetta er tölu­verð breyt­ing frá fyrra ári, þá voru bensín og dísil­bílar alls rúm­lega 70 pró­sent af nýskráðum bílum.

Hleðslu­stöðvanetið hefur einnig vaxið jafnt og þétt á síð­ustu árum. Í nýút­kominni Árbók Bíl­greina­sam­bands­ins segir að um 140 hleðslu­stöðvar hafi verið í notkun á land­inu í loks árs 2019. Þar kemur einnig fram að á Íslandi séu alls 186 hleðslu­stöðvar opnar almenn­ingi. Þær tölur eru fengnar af vef­síð­unni PlugS­hare entekið er fram að óvíst sé hver afköst þess­ara stöðva eru og hvort að þær séu háðar opn­un­ar­tíma. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum úthlut­aði Orku­sjóður styrkjum til upp­setn­ingar á 43 hrað­hleðslu­stöðvum vítt og breitt um landið og vinna við þá upp­setn­ingu stendur nú yfir.

Vill hleðslumiðstöðvar með mörgum hleðslustöðvum

„Afstaða raf­bíla­sam­bands­ins er sú að það sem þurfi að gera er að koma upp hleðslu­mið­stöðum. Í stað­inn fyrir að það sé ein og ein stöð hingað og þangað þá sé reynt að fjölga stöðvum per stað. Ef þú hefur prófað að ferð­ast um landið á raf­bíl þá kemstu að því að það er aðal­vanda­málið að finna lausa stöð,“ segir Jóhann G. Ólafsson, for­maður Raf­bíla­sam­bands Íslands, í sam­tali við Kjarnann.

Jóhann bendir samt sem áður á að fjöldi raf­bíla um hverja stöð hér á landi sé nokkuð minni miðað við lönd sem við berum okkur saman við. Þar að auki sé erfitt fyrir þau fyr­ir­tæki sem halda úti hleðslu­stöðvum að rétt­læta fjár­fest­ingu í stöðvum þar sem notk­unin er ekki mikil alla jafna. Við hleðslu­stöðvar á vin­sælum ferða­leiðum geti mynd­ast biðraðir á helgum þegar fólk er á far­alds­fæti en þess á milli geti notk­unin verið óveru­leg.

Hvítasunnuhelgin stærsta hleðsluhelgin frá upphafi

Und­an­farnar helgar, fyrstu ferða­helgar sum­ars­ins, hafa verið nokk­urs konar gener­alprufa fyrir sum­arið sem er framundan. Hafrún Þor­valds­dóttir, verk­efna­stjóri hleðslu­nets ON, segir að met í notkun á hleðslu­net­inu hafi verið sett föstu­dag­inn fyrir Hvíta­sunnu og að það met hafi svo aftur verið slegið degi seinna. „Þannig að þetta var lang, lang stærsta hleðslu­helgi frá upp­hafi upp­bygg­ingar inn­viða til orku­skipta á Íslandi,“ Segir Hafrún.

Hún segir mest vera að gera á föstu­dags- og sunnu­dags­eft­ir­mið­dögum. Þrátt fyrir að mikil eft­ir­spurn eftir hleðslu sé á þessum tímum er sam­an­burð­ur­inn við önnur lönd okkur hag­stæður að mati Hafrúnar. „Auðvitað eru álags­tímar þar sem geta mynd­ast biðraðir en það er sjald­gæft. Þetta er með því lang­besta sem ger­ist í heim­inum. Í Noregi eru mikli stærri biðraðir og fólk bara fer í bið­röð.“

Mælir með að stoppa oftar og skemur

En hvaða ráð getur Hafrún gefið fólki sem er að ferð­ast um landið á raf­bíl? „Kort­leggja ferð­ina og skipu­leggja ferð­ina miðað við hvar hleðslu­stöðvar eru. Þær eru með sirka 100 kíló­metra milli­bili,“ segir Hafrún. Þá segir hún það mik­il­vægt að fólk kynni sér hvernig hleðslu­ferlið í bíl­unum virkar. Raf­hlöð­urnar hlaða sig mis­hratt eftir því hver staðan á þeim er. Þannig að það getur tekið jafn langan tíma að hlaða raf­hlöðu úr tíu pró­sentum upp í 80 pró­sent líkt og það tekur að hlaða raf­hlöð­una úr 80 pró­sentum upp í 100 pró­sent.

Það geti því borgað sig að stoppa oftar og í skemmri tíma. Ætli fólk hins vegar að full­hlaða raf­hlöð­una geti það borgað sig að skipta úr hrað­hleðslu yfir í venju­lega AC hleðslu þegar raf­hlaðan er komin upp í um 80 pró­sent. Þá eru raf­hlöð­urnar að taka jafn mikið út úr AC hleðslu líkt og úr hrað­hleðslu. Tíma­gjaldið er lægra í AC hleðslu en not­andi greiðir bæði fyrir ork­una sem og fyrir þann tíma sem hann er tengdur hleðslu­stöð­inni.

Hleðslan megi ekki vera kvöð

Spurður um ráð fyrir raf­bíla­eig­endur sem eru að ferð­ast um landið í sumar, kannski í fyrsta sinn á raf­bíl, segir Jóhann hjá Raf­bíla­sam­band­inu að mik­il­vægt sé að skipu­leggja sig vel og að sýna þol­in­mæði. Hann mælir einnig með því að fólk hugi að afþr­ey­ingu til að hafa ofan af fyrir sér, og sér­stak­lega börn­unum, ef það ger­ist að mikil bið er eftir hleðslu.

Hann bendir á að það sé ekk­ert nauð­syn­legt að ein­blína á hrað­hleðslu­stöðv­arnar við þjóð­veg­inn. Það geti verið snið­ugt að skoða fyrir fram hvaða aðstaða sé í grennd við hleðslu­stöð til þess að geta nýtt tím­ann á meðan bíll­inn hleður sig. Mik­il­vægt sé að fólk líti ekki á það sem kvöð að þurfa að hlaða bíl­inn.

Hann nefnir sem dæmi að snið­ugt geti verið að setja bíl­inn í venju­lega 22 kílóvatta hæg­hleðslu og nýta tím­ann sem það tekur að hlaða til að fara í sund eða skoða sig um. „Það er ýmis­legt í boði. Það eru fleiri stöðvar þarna heldur en fólk kannski áttar sig á en hrað­hleðslu­stöðv­arnar eru frekar fáar enn þá,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár