Víkka skattaívilnanir vegna rafmagnsbíla og -hjóla

Í nýju frum­varpi er lagt til að fella niður virð­is­auka­skatt vegna inn­flutn­ings raf­magns­hjóla og vist­vænna rúta. Auk þess er lagt til að end­ur­greiða íbúð­ar­eig­endum virð­is­auka­skatt vegna kaupa á hleðslu­stöðvum.

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt til breyt­ingar á skatta­lögum vegna vist­vænna öku­tækja. Ráðherra leggur meðal ann­ars til að byggj­endur og eig­endur íbúð­ar­hús­næðis fái end­ur­greiddan virð­is­auka­skatt vegna kaupa á hleðslu­stöðvum í eða við íbúð­ar­hús­næði. Auk þess er lagt til að fella niður virð­is­auka­skatt vegna inn­flutn­ings á bif­hjólum og reið­hjólum sem knúin eru af raf­magni.

Á að greiða hraðar fyrir orkuskiptum

[links]Drög að frum­varp­inu hafa nú verið birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Samkvæmt drög­unum er mark­mið frum­varps­ins að greiða fyrir orku­skiptum í samgöngum í sam­ræmi við stefnu stjórnvalda í þeim efnum.

Helstu breyt­ing­arnar sem lagðar eru til í frum­varp­inu eru meðal ann­ars að lagt er til að heim­ild til virð­is­auka­skatt­sí­viln­ana fyrir raf­magns- og vetn­is­bif­reiðar verði fram­lengd til og með 31. des­em­ber 2023. Auk þess verði fjár­hæð­ar­mörk heim­ildar til nið­ur­fell­ingar virð­is­auka­skatts hækkuð.
Hins vegar er lagt til að virð­is­auka­skatt­sí­vilnun fyrir tengilt­vinn­bif­reiðar falli niður í lok næsta árs.[adspot]

Innflutningur á rafmagnsrútum og -hjólum verði undanþeginn virðisaukaskatti

Ef frum­varpið nær fram að ganga verður jafn­framt heim­ilt að fella niður virð­is­auka­skatt eða telja til und­an­þeg­innar veltu fjár­hæð að ákveðnu hámarki vegna inn­flutn­ings bif­hjóls sem knúið er raf­magni eða gengur fyrir vetni, létt bif­hjóls sem knúið er raf­magni eða reið­hjóls.

Auk þess verði heim­ilt að fella niður virð­is­auka­skatt af inn­flutn­ing eða sölu á hóp­bif­reið í almenn­ings­akstri sem notar ein­göngu metan, met­anól, raf­magn eða vetni sem orku­gjafa.

Virðisaukaskattur endurgreiddur vegna kaupa á hleðslustöðvum

Enn fremur er lagt til í drög­unum að byggj­endum og eig­endum íbúð­ar­hús­næðis verði veitt heim­ild til end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts vegna kaupa á hleðslu­stöðvum í eða við íbúð­ar­hús­næði.

Auk þess verði núver­andi heim­ild til að end­ur­greiða byggj­endum og eig­endum íbúð­ar­hús­næðis 60 pró­sent þess virð­is­auka­skatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna við upp­setn­ingu hleðslu­stöðva í eða við íbúð­ar­hús­næði aukin upp í 100 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár