Arnar Þór hafnar vanhæfiskröfu vegna ummæla hans um EES-samstarfið

Krafa stefn­anda um að Arnar Þór Jónsson, hér­aðs­dóm­ari, víki sem dóm­ari máls vegna ummæla hans um þriðja orku­pakk­ann og EES-rétt hefur verið hafnað af Arnari Þór.

Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari.
Arnar Þór Jónsson, hér­aðs­dóm­ari. Mynd: Aðsend mynd

Arnar Þór Jónsson, hér­aðs­dóm­ari, hefur hafnað kröfu stefn­anda þess efnis að hann víki sem dóm­ari í máli vegna ummæla hans um EES-rétt og þriðja orku­pakk­ann. Þar sem málið snýst um EES-reglur telur stefn­andi það ólík­legt að dóm­ari muni líta hlut­laust á málið og krafð­ist því þess að Arnar Þór viki. Þetta kemur fram í úrskurði um hæfi dóm­ara sem birt var í dag.

Endurspeglar andúð á EES-kerfinu

Arnar Þór er skip­aður dóm­ari í máli Eyjólfs Orra Sverr­is­sonar gegn rík­inu vegna vinnu­tíma. Í sept­em­ber setti lög­maður stefn­anda fram þá kröfu að Arnar Þór viki úr sæti sem dóm­ari í mál­inu vegna áherslna sem Arnar Þór lét í ljós í blaða­grein­inni: „Full­veldið skiptir máli“ sem Arnar Þór skrif­aði og var birt í Morg­un­blað­inu í júlí síð­ast­liðnum sem og við­tal við Arnar Þór í Morg­un­blað­inu í júní í sumar.

Í úrskurð­inum segir að stefn­andi telur að efni grein­ar­innar og við­tals­ins sé þess efnis að hægt sé að draga óhlut­drægni dóm­ar­ans í efa út frá þeim skoð­unum sem dóm­ar­inn hafi látið í ljós. Í máli stefn­andi reyni veru­lega á EES-rétt, ESB-rétt og afleiddar gerðir ESB-réttar sem inn­leiddar hafa verið í íslenskan rétt og mun úrlausn máls­ins því reyna á túlkun hér­aðs­dóms á þessum gerðum.

Stefn­andi nefnir síðan nokkur dæmi í kröf­unni um ummæli Arnar Þórs í grein hans og við­tali við Morg­un­blaðið sem hann segir að end­ur­spegli andúð dóm­ara á EES-kerf­inu og hvernig reglur EES-réttar eru inn­leiddar í íslenskan rétt.

Ólíklegt að Arnar Þór muni líta hlutlaust á málið

Stefn­andi tekur meðal ann­ars dæmi um ummæli Arnar Þórs í Morg­un­blaðsvið­tal­inu: „Það þarf að ná umræð­unni upp úr lág­kúru eins og þeirri að þeir sem styðji sam­þykkt þriðja orku­pakk­ans séu frjáls­lyndir en hinir for­pok­aðir. Þar fyrir utan má spyrja hvað sé svona frjáls­lynt við það að vilja játa sig undir vald erlendra skrif­finna og standa gegn sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þjóða? Er það að sama skapi frjáls­lynt að vilja lúta hags­munum erlendra stór­fyr­ir­tækja? Gengur ekki frjáls­lyndi einmitt út á að virða sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt ann­arra í lengstu lög?“

Í úrskurð­inum segir að stefn­andi telur þessa fram­setn­ingu dóm­ara bein­ast gegn EES-rétti og gegn EES-sam­starf­inu á grund­velli sjón­ar­miða um lýð­ræð­is­halla. Mál stefn­anda snú­ist um EES-reglur og því sé ólík­legt að dóm­ari muni líta hlut­laust á málið.

Arnar Þór svarar þess­ari kröfu í úrskurð­inum og segir meðal ann­ars að stefn­andi hafi ekki fært fram við­hlít­andi rök fyrir því hvernig ummæli dóm­ara í við­tal­inu og grein­inni leiði til þess að ætla megi að dóm­ari dæmi ekki eftir þeim laga­reglum sem með lög­form­legum og stjórn­skipu­lega réttum hætti hafa verið leiddar í íslenskan rétt og mega kall­ast bind­andi fyrir dóm­ara.

Lögmæt og réttlætanleg hvatning til Alþingis

Arnar Þór segir jafn­framt að dóm­urum sé rétt að fylgj­ast grannt með laga­setn­ing­ar­ferl­inu sem slíku og taka þátt í umræðum um hvort því sé í reynd „stefnt í þrengri og grynnri far­veg en ætlun stjórn­ar­skrár­gjafans var nokkru sinni“. Hann segir að slík afstaða valdi ekki sjálf­krafa van­hæfi og bendir á að dóm­arar njóti mál­frelsis líkt og aðrir borg­arar.

„Með vísan til stjórn­ar­skrár­var­innar meg­in­reglu um tján­ing­ar­frelsi og þeirra und­an­þága frá almennum höftum sem hlut­verk dóm­ara leggur þeim á herðar í þessu sam­hengi telur und­ir­rit­aður að tján­ing hans um þriðja orku­pakka ESB hafi verið lög­mæt og rétt­læt­an­leg hvatn­ing til þess að Alþingi axl­aði ábyrgð á stjórn­skipu­legu hlut­verki sínu sem lýð­ræð­is­lega kjörið lög­gjaf­ar­þing en forð­að­ist í lengstu lög að setja svo mis­vísandi reglur að stefnu­mörkun væri í reynd ýtt yfir á dóm­stóla. Sú umræða teng­ist sjálfum und­ir­stöðum rétt­ar­rík­is­ins og að mati und­ir­rit­aðs er örð­ugt að gera of mikið úr alvar­leika þeirra álita­efna sem þar blasa við,“ skrifar Arnar Þór í úrskurð­inum.

Að lokum segir Arnar Þór að ekk­ert í til­vitn­uðu ummælum hans gefi stefn­anda til­efni til að draga þær víð­tæku álykt­anir gerðar séu í kröf­unni. Því fellst Arnar Þór ekki að ummæli hans í grein hans í Morg­un­blað­inu né í við­tal­inu séu þess eðlis að draga megi óhlut­drægni dóm­ara með réttu í efa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár