Tekjur Sýnar dragast saman milli ára og tap var á þriðja ársfjórðungi

Sýn tap­aði 71 milljón króna á þriðja árs­fjórð­ungi. Þar skipti mestu að tekjur vegna fjöl­miðla­starf­semi félags­ins minnk­uðu um 144 millj­ónir króna á milli ára.

Tekjur fjar­skipta- og fjöl­miðla­fé­lags­ins Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru 14,9 millj­arðar króna, sem er 454 millj­ónum krónum lægri tekjur en félagið hafði á sama tíma­bili í fyrra. Hagnaður Sýnar fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var 4,1 millj­arður króna og lækk­aði um 153 millj­ónir króna á milli ára.

Hagnaður Sýnar var hins vegar 384 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019. Lyk­ilá­­­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði er að á fyrsta árs­fjórð­ungi var bók­­­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­­­ur­­­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­­­ur­­­fé­lag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­­­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­­­kvæmt hlut­­­deild­­­ar­að­­­ferð og því ekki hluti af sam­­­stæð­u­­­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nam bók­­­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­­­ónum króna.

Án þessa bók­færða sölu­hagnað vegna þeirrar sölu væri tap Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 433 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar skil­aði félagið 326 milljón króna hagn­aði á sama tíma­bili 2018.

[adspot]Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Sýnar sem birtur var í dag, en alls tap­aði Sýn 71 milljón króna á þriðja árs­fjórð­ungi sem er mun minna tap en var á öðrum árs­fjórð­ungi, þegar tapið var 215 millj­ónir króna.

Alls var eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins 36,3 pró­sent í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Fjölmiðlatekjur minnkuðu mest

Af tekju­straumum Sýnar hafa tekj­urnar minnkað mest í fjöl­miðla­hluta félags­ins, sem er stærsta tekju­stoð þess. Alls hafa tekjur vegna fjöl­miðla skilað Sýn 6,3 millj­örðum krónum á fyrstu níu mán­uðum árs­ins sem er 230 millj­ónum krónum minna en á sama tíma­bili í fyrra. Þar af lækk­uðu tekj­urnar á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hófst í júlí og lauk í lok sept­em­ber, um 144 millj­ónir króna.

Tekjur félags­ins vegna fast­línu hafa líka dreg­ist umtals­vert saman það sem af er ári, eða um 163 millj­ónir króna. Tekjur af inter­neti juk­ust á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en dróg­ust skarpt saman á þriðja árs­fjórð­ungi, eða um 70 millj­ónir króna. Alls hafa þær tekjur því minnkað um 37 millj­ónir króna á árinu.

Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, segir að upp­gjörið sé vitn­is­burður um að stjórn­endur hafi náð tökum á rekstr­inum. „Nýtt spá­ferli sem unnið er eftir gefur okkur mun betri mynd af und­ir­liggj­andi þáttum og við teljum að það muni leiða til frek­ari bata í rekstri á næstu fjórð­ungum. Sjóð­streymi 3. árs­fjórð­ungs batnar á milli ára og rekst­ur­inn batnar umtals­vert frá öðrum árs­fjórð­ungi. Aðgerðir sem gripið var til í sumar, með end­ur­samn­ingum við birgja og fækkun stöðu­gilda mun koma fram í rekstri við lok árs­ins og að fullu á nýju ári.“

Miklar breytingar í ár

Sýn varð til þegar Fjar­­skipti, móð­­ur­­fé­lag Vodafone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­­fundi sínum í mars í fyrra. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­­­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­­skipti sam­einað fjöl­miðla­­starf­­semi inn í rekstur félags­­ins sem fól í sér meðal ann­­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Mið­l­ana höfðu Fjar­­skipti keypt af 365 mið­l­­um. Nafna­breyt­ingin var fram­­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­­semi hins sam­ein­aða félags.

Tölu­verðar breyt­ingar hafa verið að eiga sér stað á fjöl­miðla­hluta Sýnar und­an­farin miss­eri og þekktu dag­skrár­gerð­ar­fólki sagt upp störfum. Félagið missti rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­anum yfir til sam­keppn­is­að­il­ans Símans fyrir þetta tíma­bil, sem hófst á þriðja árs­fjórð­ungi, og stutt er í samn­ingur félags­ins við Torg um að fá að birta efni Frétta­blaðs­ins á vefnum Vísi.is, renni út. Heim­ildir Kjarnans herma að það sé 1. des­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár