Auknar tekjur í sjónvarpsrekstri draga vagninn fyrir Símann - Hagnaður 897 milljónir

Góður tekju­vöxtur í sjón­varps­rekstri er lyk­il­breyta í upp­gjöri Símans fyrir þriðja árs­fjórð­ung, en áhrif af kaupum félags­ins á sýn­ing­ar­rétti á enska bolt­anum eru nú að koma fram af meiri krafti.

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Hagnaður Símans á þriðja árs­fjórð­ungi var rúm­lega 897 millj­ónir króna og dróst saman úr 978 millj­ónum króna í fyrra. Rekstr­ar­hagn­aður félags­ins var 2,8 millj­arðar króna og hækk­aði um 210 millj­ónir króna frá sama tíma­bili 2017.

Eig­in­fjár­hlut­fall Símans í lok þess árs­fjórð­ungs, sem lauk í lok sept­em­ber, var 55,4 pró­sent og eigið fé fjar­skipt­ar­is­ans var 36,3 millj­arðar króna.

[adspot]Þetta kemur fram í upp­gjöri Símans vegna þriðja árs­fjórð­ungs árs­ins 2019 sem birt var í morgun.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar kemur fram að með­al­verð á ein­stak­lings­mark­aði fyrir fjar­skipta­þjón­ustu hafi byrjað að þok­ast upp á síð­ari hluta þessa árs eftir að hafa lækkað skarpt mörg und­an­farin ár. Orri Hauksson, for­stjóri Símans, segir þó að enn sjái ekki fyrir endan á verð­þrýst­ingi á fyr­ir­tækja­mark­aði. Tekjur Símans af far­síma- og tal­síma­þjón­ustu dróg­ust saman á þriðja árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma­bil í fyrra. Raunar er annað hvort sam­dráttur eða stöðnun í þróun tekna á nán­ast öllum tekju­sviðum sam­stæð­unnar nema einni: í sjón­varps­rekstri.

20 prósent vöxtur í sjónvarpsrekstri

Það var nefni­lega góður tekju­vöxtur í sjón­varps­rekstri milli ára, eða um 20 pró­sent. Á þriðja árs­fjórð­ungi í fyrra voru tekjur Símans af sjón­vars­rekstri 1.190 millj­ónir króna er voru nú 1.423 millj­ónir króna. „Síminn Sport hefur notið vel­gengni umfram vænt­ingar frá því varan fór í loftið á miðjum þriðja fjórð­ungi. Vel hefur til dæmis gengið að semja um dreif­ingu vör­unnar yfir öll fjar­skipta- og sjón­varps­dreifi­kerfi lands­ins. Nær enska úrvals­deildin til allra lands­manna og við sjáum áhug­ann fara vax­andi, með þeirri vönd­uðu og sér­lega hag­stæðu þjón­ustu sem Síminn Sport er. Við höfum því áfram góðar vænt­ingar til vör­unnar næstu mán­uði.“

Orri segir að Síminn hafi einnig reynt að semja um aldreif­ingu fyrir Sjónvarp Símans Premium en að það hafi ekki gengið sem skyldi fram að þessu. „Ástæðan er mót­staða Sýnar gegn því að selja aðgang að dreifi­kerfum í sinni umsjá fyrir Sjónvarp Símans Premium, sem er sú íslenska efn­isveita sem lang­mest er notuð. Síminn verður þannig af mögu­leikum til auk­innar tekju­sköp­unar sam­hliða því að IPTV við­skipta­vinir Sýnar hafa ekki mögu­leika á að kaupa Sjónvarp Símans Premium. Þessi skekkja mun von­andi leið­rétt­ast á næsta ári.“

Fjár­fest­ingar Síma-sam­stæð­unnar hafa verið umtals­verðar að und­an­förnu og skiptir þar mestu hröð ljós­leið­ara­væð­ing Mílu. „Fjár­fest­ingar sam­stæð­unnar í heild munu fara lækk­andi á næstu miss­erum frá því sem nú er. Stafar sú lækkun fyrst og fremst af því hve langt ljós­leið­ara­verk­efnið er komið. Lækkun fjár­fest­inga nemur í heild nokkur hund­ruðum millj­ónum milli ára á næsta ári,“ segir Orri í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár