Lögmenn bera mun meira traust til dómstóla

Lögmenn og ákærendur bera mun meira traust til dóm­stóla heldur en almenn­ingur. Yfir 80 pró­sent lög­manna og ákærenda voru sam­mála því að dóm­arar og starfs­menn dóm­stóla ynnu störf sín af heil­indum, virð­ingu og heið­ar­leika.

Mikill meiri­hluti lög­manna og ákærenda bera mikið traust til dóm­stóla hér á landi. Þá bera þeir sér­stak­lega traust til Hæsta­réttar eða alls 84 pró­sent svar­enda í nýlegri könnun Gallups fyrir dóm­stóla­sýsl­una. Ekki ber almenn­ingur þó jafn­mikið traust til dóm­stóla ef marka má könnun Gallups frá því fyrr á þessu ári en þar kom fram að aðeins 47 pró­sent lands­manna báru mikið traust til dóm­stóla.

Þrír af hverjum fjórum bera mikið traust til Landsréttar

Síð­ast­liðið sumar lét dóm­stóla­sýslan gera könnun meðal lög­manna og ákærenda til að kanna ánægju með ýmsa þjón­ustu­þætti og traust á dóm­stól­unum. Könnunin var gerð af Gallup dag­ana 25. júní til 10. júlí 2019.

„Með því að spyrja þá sem hafa að jafn­aði flesta snertifleti við starf­semi dóm­stól­anna, lög­menn og ákærendur, má fá mik­il­vægar upp­lýs­ingar um það sem betur má fara í dóms­kerf­inu,“ segir í til­kynn­ingu dóm­sýsl­unnar. 

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kom fram að 79 pró­sent lög­manna og ákærenda bera mikið eða full­komið traust til hér­aðs­dóm­stól­anna, 74 pró­sent til Lands­réttar og 84 pró­sent til Hæsta­réttar.

Sammála um að dómarar séu sjálfstæðir í dómstörfum

Þá voru 84 til 89 pró­sent lög­manna og ákærenda jafn­framt sam­mála um að dóm­arar og starfs­menn dóm­stól­anna ynnu störf sín ynnu störf sín af heil­indum, virð­ingu og heið­ar­leika og gættu fyllsta trún­aðar eða alls . Álíka hlut­fall taldi að máls­með­ferð væri rétt­lát og opin­ber og að dóm­arar væru sjálf­stæðir í dóm­störfum.

Dóma­stóla­sýslan segir það ánægju­efni að lög­menn og ákærendur beri almennt mikið traust til dóm­stól­anna og starfs­fólks dóm­stól­anna enda séu þetta þeir sem best þekkja til starfa þeirra. Ekki ber almenn­ingur þó jafn­mikið traust til Alþingis ef marka má könnun Gallups sem birt var í febr­úar á þessu ári. Þar kom fram að 47 pró­sent báru mikið traust til dóm­stól­anna.

Telja málsmeðferðartíma of langan

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kom jafn­framt fram að meiri­hluti lög­manna og ákærenda, 71 pró­sent, telji máls­með­ferð­ar­tíma hjá hér­aðs­dóm­stólum ívið of langan eða allt of langan. Alls telja 29 pró­sent hann hæfi­lega langan, 41 pró­sent ívið of langan og 30 pró­sent allt of langan.

Þá telja 45 pró­sent þeirra máls­með­ferð­ar­tíma hjá Lands­rétti hæfi­legan en 51 pró­sent of langan og 69 pró­sent töldu máls­með­ferð­ar­tíma hæfi­legan í Hæsta­rétti en 28 pró­sent of langan.

Vinna að rafrænni gagnagátt

Enn fremur eru ein­ungis helm­ingur þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni ánægðir með tækni­legan aðbúnað hjá hér­aðs­dóm­stól­unum. Í Lands­rétti voru aftur á móti mun fleiri ánægðir með tækni­legan aðbúnað eða 78 pró­sent.

Í frétta­til­kynn­ingu dóm­stóla­sýsl­unnar er greint frá því að hún vinni nú að því að tækni­væða dóm­stól­ana og má geta þess að fyrr á þessu ári var tekið upp nýtt mála­skrár­kerfi. Þá munu tölvu­skjáir í dóm­sölum hér­aðs­dóm­stól­anna jafn­framt verða komnir upp fyrir ára­mót ásamt því að verið er að skoða inn­leið­ingu á fjar­fund­ar­bún­aði sam­hliða. Þá er dóm­stóla­sýslan jafn­framt verið að vinna að raf­rænni gátt til fram­lagn­ingar gagna sem lög­menn munu þá hafa aðgang að innan dóm­stóla­sýsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár