Kanna þarf hvað í lífshlaupi kvenna veldur auknum líkum á örorku

Doktor í félags­fræði segir að ef Íslend­ingar vilji draga úr fjölgun öryrkja þurfi að greina af hverju konur eru líklegri en karlar til að vera örorkulífeyr­is­þegar. Mögu­legar skýr­ingar gætu meðal ann­ars verið aukin byrði kvenna af heim­ils­haldi.

Fjölgun örorkulífeyr­is­þega á und­anförnum árum hefur ekki verið drifin áfram af ungu fólki líkt oft hefur verið haldið fram heldur fyrst og fremst af konum á og yfir miðjan aldur. Konur eru á hverjum tíma um 60 pró­sent af örorku­líf­eyr­is­þegum og mun­ur­inn milli karla og kvenna eykst með hækk­andi aldri. Doktor í félags­fræði segir að greina þurfi hvað í lífshlaupi kvenna veldur auknum og vax­andi líkum á örorku.

Konur yfir fimmtugt standa undir mestri fjölgun örorkulífeyrisþega

Í nýrri skýrslu Kolbeins Stef­áns­sonar, dokt­ors í félags­fræði, um fjölda­þróun örorku­líf­eyris kemur fram örorku­líf­eyr­is­þegum hefur fjölgað umtals­vert hér á landi frá því fyrir alda­mótum en að ekki sé um stöðuga fjölgun að ræða. Fjölgunin er nokkuð ör frá árinu 1994 til 2005 en eftir 2005 hægði mjög á henni. Þá bendi gögnin til þess að dregið hafi enn frekar úr fjölgun­inni eftir 2017. [adspot]

Í skýrsl­unni segir að áherslan á ungt fólk og unga karla í umræð­unni um örorku­líf­eyr­is­þega hafi beint athygl­inni frá því sem hefur hvað mest áhrif. Fjölgun örorkulífeyr­is­þega frá árinu 2008 hefur ekki verið drifin áfram af fjölgun ungra öryrkja og þaðan af síður af ungum körlum heldur af konum um og yfir miðjan aldur.

Rúmlega 42 pró­sent af fjölgun­inni á síð­ustu tíu árum er rakin til kvenna á aldr­inum 50 til 66 ára, sem er meira en sam­an­lagt fram­lag karla á öllum ald­urs­bilum til fjölgun­ar­innar. Konur eru jafn­framt líklegri en karlar til að vera örorkulífeyr­is­þegar og mun­ur­inn á kynj­unum vex með aldri.

Örorka er kynjapólitískt mál

[links]Í skýrsl­unni segir að þetta sé vísbend­ing um að orsakir örorku liggi ekki aðeins í lífshlaupi fólks heldur skipti mun­ur­inn á lífshlaupi karla og kvenna höfuð máli. „Það er eitt­hvað í þeim aðstæðum sem íslenskt samfélag býr konum sem skapar þeim auknar líkur á að fara á örorkulífeyri í sam­an­burði við karla,“ segir í skýrsl­unni.

Kolbeinn telur að mögu­legar skýr­ingar á þessu gætu legið í kyn­bund­inni verka­skipt­ingu á vinnu­mark­aði, auk­inni byrði kvenna af heim­il­is­haldi, af umönnun barna sem og eldri eða veikra fjölskyldu­með­lima, og kyn­bundnu ofbeldi, svo dæmi séu nefnd.

„Örorka er því kynjapólitískt mál. Ef við viljum draga úr fjölgun öryrkja þurfum við að greina hvað það er í lífshlaupi kvenna sem býr til,“ segir í skýrsl­unni.

Undirliggjandi orsakir verið að breytast

Geð­rask­anir eru í dag algeng­asta grein­ingin sem liggur til grund­vallar örorku- eða end­ur­hæf­ing­ar­mati og vægi geð­raskanna hefur auk­ist stöðugt á milli 2000 og 2018. Nokkur breyt­ingin hefur orðið á þeim sjúk­dóms­grein­ingum sem liggja til grund­vallar mat­inu. Á tíma­bil­inu 2000 til 2008 var fjölg­unin hlut­falls­lega mest í stoð­kerf­issjúkdómum og áverkum en geð­rask­anir og „aðrar ástæður“ voru skammt undan.

Á tíma­bil­inu 2008 til 2018 hafði hins­vegar dregið mjög úr fjölgun ein­stak­linga með mat vegna stoð­kerf­issjúkdóma og áverka en í þeirra stað voru það „aðrar ástæður“, geð­rask­anir og inn­kyrtla og efna­skiptasjúkdómar sem leiddu fjölgun­ina. Í skýrsl­unni segir að þetta sé vísbend­ing um að und­ir­liggj­andi orsakir örorku hafi verið að breyt­ast.

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að nokkur munur er á kynj­unum hvað varðar sjúkdómsgrein­ingar sem liggja til grund­vallar örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­mats. Konur eru meira en tvisvar sinnum líklegri til að vera með mat á grund­velli stoð­kerf­is­vandamála, eða 33 pró­sent sam­an­borið við 15 pró­sent karla. Karlar eru hins­vegar líklegri en konur til að vera með mat á grund­velli geð­rask­ana, 42,4 pró­sent á móti 35,7 pró­sent kvenna.

Raunverulegt fólk með raunverulega sögu

Að lokum segir í skýrsl­unni að örorka og orsakir hennar hafi til­hneig­ingu til að týn­ast í umræð­unni um fjölgun öryrkja, sem sé fyrst og fremst rædd út frá útgjöldum hins opin­bera og kostn­aði sam­fé­lags­ins. Kolbeinn ítrekar í skýrsl­unni að á baki við allar tölur um örorku og örorku­líf­eyris sé raun­veru­legt fólk með raun­veru­lega sögu.

Hann segir jafn­framt að til þess að draga úr fjölgun öryrkja þurfi að taka á þeim aðstæðum sem valdi því að fólk missir starfs­get­una og getu til að taka þátt í samfélag­inu.

Til að að það sé hægt þurfi hins vegar að svara spurn­ingum á borð við hvað það sé í lífs­hlaupi kvenna sem valdi auknum og vax­andi líkum örorku og hvaða störf það séu sem slíta starfs­fólk bæði lík­am­lega og and­lega. Auk þess spurn­ingum um hvað valdi vax­andi kvíða á meðal ungs fólks og þá sér­stak­lega ungra kvenna og hvað hafi breyst sem veldur þeim breyt­ingum á sjúk­dóms­grein­ingum sem leiða til örorku­mats.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjamunur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár