Konur fá 14 prósent lægri laun en karlar

Óleið­réttur launa­munur kynj­anna jókst lít­il­lega árið 2019. Hann er meiri í ýmsum betur laun­uðum starfs­stéttum og atvinnu­greinum, til að mynda fá konur í fjár­mála-og vátrygg­inga­starf­semi þriðj­ungi lægri laun en karlar.

Erfiðara virðist að brjóta glerþakið í betur launuðum störfum
Erfiðara virð­ist að brjóta gler­þakið í betur laun­uðum störfum Mynd: Pexels

Þrátt fyrir að launa­munur kynj­anna hafi minnkað umtals­vert á síð­ustu tólf árum voru laun kvenna 14 pró­sentum lægri en laun karla árið 2019. Munurinn er meiri í betur laun­uðum störfum og sér­stak­lega áber­andi innan fjár­mála­geirans.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu um óleið­réttan launa­mun kynj­anna, sem reikn­aður er sem hlut­falls­legur mis­munur á tíma­kaupi karla og kvenna, miðað við kaup karla. Samkvæmt töl­unum jókst þessi munur lít­il­lega á milli 2018 og 2019, úr 13,6 pró­sentum yfir í slétt 14 pró­sent.

Þessi munur er nokkuð minni en óleið­réttur launa­munur kynj­anna árið 2008, en þá nam hann rúmum 20 pró­sentum.

Á þessum tólf árum hefur mun­ur­inn minnkað minnst hjá starfs­mönnum í flutn­ingum og geymslu en mest hjá starfs­mönnum í fræðslu­starf­semi. Þó er langt í land í sumum atvinnu­greinum, til dæmis fá konur sem vinna í fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi 33% lægri laun heldur en karlar.

Meiri munur í betur launuðum störfum

Svo virð­ist sem kjara­misvægið milli kynj­anna sé meira eftir því sem störfin eru betur launuð. Þannig fá kven­kyns stjórn­endur, sér­fræð­ingar og tæknar um fimmt­ungi lægri laun heldur en karl­kyns sam­starfs­fé­lagar þeirra, á sama tíma og mun­ur­inn er nær tíu pró­sentum hjá þjón­ustu­fólki, verka­fólki og ósér­hæfðu starfs­fólki.

Meiri yfirvinna og fleiri ofurríkir karlar

Samkvæmt Hagstofu rað­ast hlut­falls­lega fleiri konur í lægra launuð störf, á meðan karlar eru lík­legri til að vera í betur laun­uðum störfum, að hluta til vegna þess að þeir vinna meiri yfir­vinnu en konur. Hátt hlut­fall yfir­vinnu­stunda hefur áhrif til hækk­unar á tíma­kaupi þar sem yfir­vinnu­stund er að jafn­aði dýr­ari en dag­vinnu­stund.

Hag­stofan bætir einnig við að þar sem mik­ill munur er gjarnan á launum á meðal þeirra allra rík­ustu og þar sem karlar eru mun lík­legri til að til­heyra þeim hópi gætu laun þeirra ýkt með­al­tal launa­mun­ar­ins að ein­hverju leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjamunur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár