Af kynjuðum kostum

Formaður BHM skrifar í til­efni kvenna­frí­dags­ins.

Hún var gædd ómet­an­legum kostum, lét sér annt um aðra, var dug­leg, ósér­hlífin og gest­risin.

Eitt ein­kenni minn­ing­ar­greina um konur er að þær eru oft mærðar fyrir gott hjarta­lag og fórnir . Mun sjaldnar er þeim hrósað fyrir hug­vit, hörku, útsjón­ar­semi, ákveðni eða við­líka þætti. Ástæðan er síður en svo að þær búi ekki yfir þessum kostum. Sam­fé­lagið virð­ist hins vegar fast í þeirri hugsun að æðsta og besta dyggð kvenna sé umönnun og gæska. Að leiða, þrífa, fæða, klæða, hugga og hrósa.

Það er þessi „mýkt“ sem er sögð konum eðl­is­læg. Raunin er aftur á móti sú að þessir eig­in­leikar eru lærð hegðun og hæfni sem sam­fé­lagið leggst á eitt við að þroska í stúlkum og konum. Enda eru þetta frá­bærir hæfi­leikar og ómet­an­legir, hvort sem það er innan heim­ilis eða á vinnu­mark­aði. Raunar eru þeir bein­línis nauð­syn­legir til að sinna flestum störfum sam­fé­lags­ins.

Virð­is­matið er aftur á móti ramm­skakkt. Við erum þakk­lát konum með þessa hæfni og sér­hæf­ingu en við þrá­umst við að meta hana til tekna. Starfs­stéttir þar sem konur eru í meiri­hluta koma verst út úr launa­sam­an­burði ár eftir ár. Samkvæmt nýrri skýrslu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um verð­mæta­mat kvenna­starfa eru 72% kvenna í þeim atvinnu­greinum sem eru á lægri helm­ingi launa­ska­l­ans á vinnu­mark­aði, en karlar eru 75% þeirra sem vinna störfin í efri helm­ingnum „Hefð­bundin kvenna­störf“ bera með sér for­skrift ómál­efna­legrar mis­mun­unar. Þar má reikna með að launin séu jafn rýr og vinnan telst „mjúk“. Van­greiðslan er við­ur­kennd eins og ein­hvers konar nátt­úru­lög­mál. Þessu þarf að breyta, því það eru þrátt fyrir allt til leiðir til að meta „ómet­an­lega“ kosti til launa.

Í fyrr­nefndri skýrslu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins eru lagðar til aðgerðir til að meta þessa „mjúku“ hæfni sem jafnan er til­einkuð konum til tekna. Hvað ætli ger­ist ef þættir eins og sam­hygð, inn­sæi, geta til teym­is­vinnu og árangur í mann­legum sam­skiptum við ólíka ein­stak­linga og hópa yrðu hluti af raun­veru­legu verð­mæta­mati? Við myndum fá rétt­lát­ara sam­fé­lag.

Konur eiga ekki að þurfa að ganga út kl. 15:10 á kvenna­frídeg­inum 24. októ­ber ár hvert til að krefj­ast betri kjara og sann­virðis á starfs­hæfi­leikum, menntun og reynslu. Sam­fé­lagið verður að ráð­ast í mark­vissar aðgerðir til að jafna laun, tæki­færi, ævi­tekjur, líf­eyr­is­rétt­indi og meta raun­veru­legt virði starfa. Kostir eins og sam­hygð, inn­sæi og mann­leg sam­skipti skipta máli. „Mýktin“ er nauð­syn­leg á vinnu­mark­aði og hana ber að meta til launa. Hún er ekki kynj­aður kostur, hún er nauð­syn­leg krafa og þannig eðli­leg og sjálf­sögð breyta í mati til launa. Kjör fólks á að meta á sann­gjörnum, hlut­lægum og mál­efna­legum grunni. Ekki á kyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjamunur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár