Þar sem peningar og völd eru til staðar er konum ekki hleypt að

Formaður stjórnar Félags kvenna í atvinnu­líf­inu segir að þar sem pen­ingar og völd séu til staðar þar haldi gler­þakið algjör­lega. Einungis um 11 pró­sent þeirra sem stýra fjár­magni á Íslandi eru konur.

Félag kvenna í atvinnulífinu stilla sér upp sem karlkyns stjórnendur fyrir nokkru síðan. Rakel Sveinsdóttir er lengst til hægri á myndinni.
Félag kvenna í atvinnu­líf­inu stilla sér upp sem karl­kyns stjórn­endur fyrir nokkru síðan. Rakel Sveins­dóttir er lengst til hægri á mynd­inni. Mynd: FKA

Rakel Sveins­dóttir, for­maður stjórnar Félags kvenna í atvinnu­líf­inu, segir að lögin um kynja­kvóta í stjórnum félaga, sem tóku gildi haustið 2013, hafi náð til­ætl­uðum árangri í félögum sem eru í eigu hins opin­bera. Þar séu hlut­föll bæði stjórna og fram­kvæmda­stjóra þannig að um 60 pró­sent séu karlar og um 40 pró­sent konur.

[links]Þau lög hafi hins vegar ekki náð til­gangi sínum í einka­geir­anum, sér­stak­lega þegar horft er til skráðra félaga á markað, 100 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins og í fjár­mála­geir­anum.

Í morgun greindi Kjarninn frá nið­ur­stöðum úttektar sinnar á því hver kynja­hlut­föll séu á meðal þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi. Sjötta árið í röð er nið­ur­staðan nán­ast sú sama: Karlar stýra nær öllum pen­ingum á Íslandi. Og halda þar með um valda­þræð­ina, en ein­ungis um 11 pró­sent af þeim sem halda um stóru veskin í íslensku atvinnu­lífi eru konur.

Aðspurð hvort hún hafi áhyggjur af því að þetta leiði til þess að við­skipta­hug­myndir kvenna eigi erf­ið­ara um vik að verða að veru­leika, í ljósi þess að lang­flestir sem sitji við ákvörð­un­ar­töku­borðið þegar fjár­fest­ingar eru ákveðnar eru karlar, segir Rakel það ber­sýni­legt að þannig sé hlut­unum háttað. „Að sjálf­sögðu er það þannig. Við erum með sögur af því að konur mæta öðru við­mót við ákvörð­un­ar­töku­borðið. Þær fá að heyra orð­færi eins og „vina“ eða „elskan“ sem karlar fá síður að heyra. En það er líka mann­legt að sam­svara sér betur við hluti, hug­myndir og verk­efni sem við skiljum og tengjum við. Þegar raunin er sú að karlar og konur sitja ekki saman við það að stýra fjár­magn­inu þá end­speglar sú eins­leitni þær ákvarð­anir sem teknar eru. Karlar velja frekar verk­efni og fjár­fest­ingar sem eru leiddar af öðrum karl­mönnum.“

[adspot]Hún segir hluta af skýr­ing­unni sem sé fyrir því að kaup­hall­ar­fé­lögin og 100 stærstu fyr­ir­tæki lands­ins séu jafn lokuð fyrir konum og raun ber vitni séu pen­ingar og völd. Rakel bendir á að sam­kvæmt úttekt Kjarnans á með­al­launum for­stjóra í fyrra hafi þau verið tæp­lega fimm millj­ónir króna á mán­uði á árinu 2017. „Við verðum að horfast í augu við það að þar sem pen­ingar og völd eru til staðar þar er meg­in­ein­kenni að hleypa ekki konum að. Þar heldur gler­þakið algjör­lega.“

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru stærstu fag­fjár­festar á Íslandi og eiga um helm­ing allra skráðra hluta­bréfa annað hvort beint eða óbeint. Rakel segir það sjálf­sagða kröfu að þeir fari að beita sér fyrir breyt­ingum á kynja­sam­setn­ingu í þeim félögum sem þeir eiga í. „Það er ein­kenn­andi að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru svo­lítið að fría sig af allra eig­enda­á­byrgð. Til dæmis þegar það koma upp óánægju­raddir um laun ákveð­ins for­stjóra þá fylgja þeir alltaf í kjöl­farið með sínar óánægju­at­huga­semdir. Þeir eru ekki að beita sér sem virkir eig­endur. Svo má benda á að í lög­unum um kynja­kvóta er fjallað um hlut­fall kynja við ráðn­ingu í fram­kvæmda­stjórnir. Þetta er nú ekki erf­ið­ara en svo að líf­eyr­is­sjóð­irnir ættu að vera í fara­broddi þeirra sem eiga í skráðum félögum við að fara betur eftir lögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár