Breytum ekki konum, breytum samfélaginu – Baráttan heldur áfram

Kvenna­frí­dag­ur­inn er hald­inn í fimmta sinn í dag og eru konur hvattar að leggja niður vinnu kl. 14.55. Barátta kvenna fyrir launa­jafn­rétti hefur nú staðið yfir í tugi ára.

Kvennafrídagurinn 1975
Kvenna­frí­dag­ur­inn 1975 Mynd: Skjáskot/Tíminn

Kvenna­frí­dag­ur­inn er runn­inn upp í fimmta sinn og í dag eru konur hvattar til að leggja niður vinnu klukkan 14.55 og fylkja liði á samtöðu­fund á Arn­ar­hóli klukkan hálf fjög­ur. Þetta er í fimmta sinn á 43 árum sem konur koma saman, krefj­ast kjara­jafn­réttis og sam­fé­lags án mis­rétt­is. Í ár er lögð áhersla á að vekja athygli á ofbeldi og áreiti gagn­vart konum á vinnu­stöð­um, konur eiga að vera óhultar heima og í vinn­u.

„Þótt Ísland eigi að heita para­dís fyrir konur í alþjóð­legu sam­hengi er ljóst að víða er pottur brot­inn. Enn er langt í land með að ná jöfnum launum og jöfnum kjör­um. Enn verða konur fyrir kyn­bundnu ofbeldi og áreitni á vinnu­stöðum sem og heima fyr­ir, eins og #MeToo bylgja síð­asta vetrar minnti okkur öll harka­lega á. Enn eru kvenna­störf minna metin þegar kemur að laun­um, rétt­indum og virð­ingu í sam­fé­lag­in­u,“ segir á heima­síðu Kvenna­frí­dags­ins.

Launamunur kynjanna

Með­al­at­vinnu­tekjur kvenna eru 74 pró­sent af með­al­at­vinnu­tekjum karla, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hag­stofu Íslands um launa­mun kynj­anna. Reiknað er út frá þeim tölum að konur hafi unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukku­stundir og 55 mín­útur miðað við fullan vinnu­dag frá kl. níu til fimm. Því eru konur hvattar til að leggja niður vinnu klukkan 14:55 í dag. Ef launa­munur kynj­an­anna heldur áfram að breyt­ast með sama hraða munu konur ekki ná ekki sömu launum og karlar fyrr en árið 2047, eða eftir 29 ár.

Samkvæmt heima­síðu Kvenna­frís­ins er litið á kyn­bund­inn mun á atvinnu­tekjum í stað óút­skýrðs launa­mun kynj­anna þegar reiknað er hvenær konur eru búnar að vinna fullan vinnu­dag vegna þess að kerf­is­bundið ójafn­rétti felst ekki bara í óút­skýrða launa­mun­inum heldur líka í mun fleiri þátt­um. Hlutir eins og hlut­fall í stjórn­un­ar­stöð­um, vinnu­tími, mennt­un, starf, atvinnu­grein og barn­eignir svo eitt­hvað sé nefnt. Þótt þessir þættir útskýri hluta af launa­mun­inum þá rétt­læta þeir hann ekki heldur vekja upp fleiri spurn­ingar á borð við hvers vegna hlutur kynj­anna sé svo ójafn í þessum þáttum.

Kvennafrídagurinn

Þennan dag fyrir fjöru­tíu og þremur árum lögðu um 90 pró­sent allra íslenskra kvenna niður vinnu og skildu íslenskt atvinnu­líf eftir í lama­sessi þann dag­inn. Mark­miðið var að sýna fram á mik­il­vægi vinnu­fram­lags kvenna fyrir þjóð­fé­lag­ið. Gríð­ar­legur fjöldi kvenna safn­að­ist saman á úti­fundi á Lækj­ar­torgi, eða um 25.000 kon­ur, og vöktu athygli á launa­mis­rétti, van­mati á störfum kvenna og skorti á virð­ingu og valda­leysi kvenna. Kvenna­frí­dag­ur­inn vakti athygli um allan heim og sýndi að sam­staðan er sterkasta vopn­ið. Síðan hafa konur komið saman og kraf­ist kjara­jafn­réttis og sam­fé­lags án ofbeldis fjórum sinnum,­ árin 1985, 2005, 2010 og 2016.

Að baki dags­ins stóðu kvenna­sam­tök, kven­fé­lög og stétt­ar­fé­lög sem skipu­lögðu dag­inn á degi Sam­ein­uðu þjóð­anna en fyrr á því ári hafði Alls­herj­ar­þing SÞ helgað ára­tug­inn 1975 til 1985 mál­efnum kvenna. Ein af þeim kvenna­sam­tökum sem stóðu fyrir Kvenna­frídeg­inum var Rauð­sokka­hreyf­ingin.

Rauðsokkur

Eitt vor­kvöld árið 1970 tóku 28 konur sig saman og héldu fund í kjall­ara Norræna hús­ins. Þetta kvöld ákváðu þessar kynn­gi­mögn­uðu konur að mynda sam­tök sem ynnu að bættum mann­rétt­indum, jafn­rétt­is­málum og þá sér­stak­lega kven­frels­is­málum. Þessir konur áttu seinna meir eftir að kenna sig við nafnið Rauð­sokkur, klæð­ast rauðum sokkum í kröfu­göngum og breyta, ásamt kyn­systrum sínum, stöðu kynj­anna á Íslandi til fram­búðar.

Árið 1970 var raun­veru­leiki kvenna á Íslandi annar en hann er í dag. Konur höfðu almennt minni menntun en karlar, þær voru orðnar þátt­tak­endur í atvinnu­lífi lands­ins en aðal­lega í lág­launa­vinnum. Þær báru ennþá nán­ast alla ábyrgð á heim­ilum enda mik­ill skortur á dag­heim­ilum fyrir börn. Þátttaka kvenna í stjórnun lands­ins var nán­ast engin, aðeins ein kona sat á þingi og örfáar konur sátu í borg­ar­stjórn. Engin kona gegndi stöðu bæj­ar­stjóra og örfáar konur stýrðu fyr­ir­tækjum og stofn­unum. Engin kona gat kallað sig sér­fræð­ing, það mátti finna einn kven­kyns pró­fessor í Háskóla Íslands og ein kona gegndi stöðu yfir­læknis. Giftar konur voru skráðar undir eig­in­menn sína og erfitt var að finna þær í síma­skrá eða á dyra­bjöllu. Getn­að­ar­bylt­ingin var komin og farin. Konur voru fyrst og fremst mæður og eig­in­konur og þessi staða þeirra var orðin rót­gróin.

Baráttumál áttunda áratugarins

Barátta Rauð­sokka sner­ist fyrst og fremst um hug­ar­fars­breyt­ingu í sam­fé­lag­inu en bar­átta þeirra mætti fyrst mik­illi mót­stöðu bæði hjá körlum og konum. Í bók­inni Vaknaðu kona! segir í við­tölum við for­ystu­konur hreyf­ing­ar­innar: „Mér fannst við vera end­ur­skapa þjóð­fé­lagið í allra þágu. Við álitum að karlar væru heftir í ákveðna fjötra sem aðeins sumir þeirra kærðu sig um. Seinna rann það upp fyrir mér, að við yrðum að ógna körlum, og neyða þá til að afsala sér for­rétt­indum sínum.“

Helstu bar­áttu­mál þeirra var að koma á raun­veru­legu jafn­rétti kynj­anna, að berj­ast fyrir sjálfs­á­kvörð­ur­rétti kvenna yfir lík­ama sínum, barn­eignum og kyn­lífi. Þær vildu launa- og vinnu­jafn­rétti, jafn­rétti í menntun, að konur væru metnar að meiri verð­leikum en ekki bara sem hús­mæður og eig­in­konur. Þær kröfð­ust þess að kæmi væri á fæð­ing­ar­or­lof og stofnuð dag­heim­ili fyrir börn til þess að þær gætu staðið körlum jafn­fætis á vinnu­mark­að­inum.

Arfleið Rauðsokkuhreyfingarinnar

Rauð­sokka­hreyf­ingin leið undir lok árið 1982 en í sinni tutt­ugu og tveggja ára bar­áttu sýndu Rauð­sokkur að með rót­tækum bar­áttu­að­ferðum, sam­stöðu og „djarfri“ fram­komu er hægt að hrista upp í sam­fé­lag­inu og breyta rót­grónum staðalí­myndum. Staða kvenna á Íslandi hefur breyst tölu­vert á síð­ustu 46 árum vegna margra þátta en það er ljóst að hluti af því er að þakka Rauð­sokkum. Dag­vist­ar­heim­ili þykja sjálf­sögð sem og fæð­ing­ar­or­lof. Fóst­ur­eyð­ingar eru líka sjálf­sögð rétt­indi í dag en lögin um sjálfs­á­kvörð­unar rétt kvenna er talin einn stærsti sigur Rauð­sokka.


Önnur bar­áttu­mál hafa tekið við í jafn­rétt­is­bar­átt­unni með árunum en bar­áttu­málið sem enn stendur er launa­jafn­réttið. Að útrýma kyn­bundnum launa­mis­mun er enn helsta bar­áttu­mál­efni kvenna á kvenna­frí­dag­inn árið 2018 en 43 árum áður voru Rauð­sokkur að berj­ast fyrir þvi sama. Mik­il­vægt er að læra af sög­unni og átta sig á því að rétt­indi eru ekki sjálf­sögð heldur urðu til vegna þess að ein­hver barð­ist fyrir þeim. Íslenskar konur eiga Rauð­sokkum margt að þakka og það er mik­il­vægt að afrek þeirra gleym­ist ekki. Sýnum sam­stöðu í verki, mætum á Arn­ar­hóli í dag og sam­ein­umst í að berj­ast fyrir jafn­rétti. Hættum að breyta konum – breytum sam­fé­lag­inu – til hins betra!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár