Íslendingar eyddu minna erlendis

Í júlí var mesti sam­dráttur í korta­veltu Íslend­inga erlendis síðan í októ­ber 2009, alls dróst veltan saman um 5,3 pró­sent. Færri brott­farir Íslend­inga í kjöl­far falls WOW air skýra að hluta til sam­drátt­inn.

Sam­dráttur var í greiðslu­korta­veltu Íslend­inga erlendis í síð­asta mán­uði. Alls dróst veltan saman um 5,3 pró­sent á miðað við sama tíma í fyrra og er þetta mesti sam­dráttur síðan í októ­ber 2009. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Lands­bank­ans en að þeirra mati skýra færri flug­ferðir Íslend­inga minni vöxt í korta­verslun erlendis. 

Fall WOW air hefur áhrif

Korta­velta Íslend­inga hér á landi yfir sum­ar­mán­uð­ina í ár er aftur á móti svipuð veltu sum­ars­ins í fyrra, miðað við fast verð­lag. Í júní var aukn­ing upp á 0,6 pró­sent og í júlí var aukn­ingin 3 pró­sent. Til sam­an­burðar var aukn­ingin að með­al­tali tæp 4 pró­sent á sum­ar­mán­uð­unum í fyrra.

Vöxtur í korta­verslun erlendis mæld­ist hátt 20 pró­sent yfir sum­ar­mán­uð­ina í fyrra en tals­verð breyt­ing hefur orðið á þeim vexti í ár. Í vor mæld­ist í fyrsta sinn sam­dráttur í kort­veltu erlendis síðan í febr­úar 2013 og er rúm­lega fimm pró­sent sam­dráttur í korta­veltu í júlí sá mesti sem mælst hefur síðan í októ­ber 2009.

Í Hag­sjánni segir að færri flug­ferðir Íslend­inga til útlanda skýri að hluta til minni vöxt í korta­notkun erlendis. Frá falli WOW air í mars hefur mælst sam­dráttur í fjölda utan­lands­ferða Íslend­inga í hverjum mán­uði sam­an­borið við sama mánuð árið á undan, að frá­töldum páska­ferðum í apríl. Þá voru brott­farir Íslend­inga um Leifs­stöð í júlí­mán­uði um 9 pró­sent færri en á sama tíma fyrir ári. [adspot]

Ekki fleiri ætlað að ferðast innanlands síðan 2014

Þessi sam­dráttur í fjölda utlands­ferða Íslend­inga rímar við könnun MMR frá því í júní síð­ast­liðnum um ferða­venjur Íslend­inga í sum­ar­frí­inu. Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kom fram að færri hyggðu á ferða­lög erlendis eða alls 52 pró­sent svar­anda, sem er fimm pró­sentu­stiga lækkun frá síð­asta ári en hlut­fall þeirra sem stefna á útlanda­ferðir hefur fyrr en nú hækkað á hverju ári frá árinu 2013.

Þá sögð­ust 78 pró­sent ætla ferð­ast inn­an­lands í sumar en það hlut­fall hefur ekki mælst hærra í könnun MMR frá júní 2014. Þá sögð­ust alls 38 pró­sent ein­ungis ætla að ferð­ast inn­an­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár