MAX-vélar Icelandair fljúga ekki á þessu ári

Icelandair reiknar ekki lengur með MAX-vél­unum í flug­á­ætlun sinni á þessu ári. Þær áttu að fljúga 27 pró­sent allra ferða sem félagið myndi fljúga 2019. Icelandair tap­aði ell­efu millj­örðum á fyrri hluta árs.

Boeing 737 MAX vélar Icelandair hafa ekki flogið frá því í mars.
Boeing 737 MAX vélar Icelandair hafa ekki flogið frá því í mars. Mynd: Úr safni.

Icelandair Group gerir ekki lengur fyrir því að geta notað Boeing 737 MAX vélar sínar, sem hafa verið kyrr­settar frá því 12. mars, í rekstri sínum á þessu ári. Fyrri áætl­anir og til­kynn­ingar gerðu ráð fyrir að þær yrðu komnar í gagnið í októ­ber.

Leigu­samn­ingur einnar af þeim fimm flug­vélum sem félagið bætti við flota sinn í sumar, til að lág­marka tjón félags­ins og áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar á far­þega og íslenska ferða­þjón­ustu, hefur verið fram­lengdur út októ­ber­mánuð. Aðrir leigu­samn­ingar um flug­vélar, sem gerðir voru vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna, verða ekki fram­lengdir.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi til Kaup­hallar í lok síð­ustu viku.

Vegna þessa hefur Icelandair aðlagað flug­á­ætlun sína. Heild­ar­sæta­fram­boð félags­ins í nóv­em­ber og des­em­ber verður aukið um tæp­lega þrjú pró­sent miðað við sama tíma­bil 2018 og áhersla verður á að auka það til Evrópu. Heild­ar­sæta­fram­boð til Norður-Ameríku dregst hins vegar saman milli ára, sem skýrist aðal­lega af fækkun áfanga­staða frá fyrra ári.

Áhersla Icelandair verður minna á tengifar­þegar – þá sem stoppa hér­lendis ein­ungis til að taka flug­vél annað – og meiri á að flytja hingað til lands far­þegar sem eru að heim­sækja Ísland sem áfanga­stað.

Slakt upp­gjör á fyrri helm­ingi árs

Icelandair Group tap­aði alls 89,4 millj­ónum dala, um ell­efu millj­örðum króna, á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þetta kom fram í hálfs­árs­upp­gjöri félags­ins sem birt var í fyrr í mán­uð­inum. Þar sagði að heild­ar­tekjur þess hefðu auk­ist, launa­kostn­aður lækkað en elds­neytis­kostn­aður og kostn­aður vegna flug­véla­leigu hækk­að.

Ástæðan fyrir slöku upp­fjöri var fyrst og síð­ast vegna kyrr­setn­ingar á MAX-­vélum Icelandair, en félagið hefur þegar fengið sex slíkar afhentar og átti von á þremur til við­bót­ar. Vél­arnar voru kyrr­settar 12. mars en stefnt hafði verið að því að MAX-­vél­arnar myndu sam­svara 27 pró­sent af sæta­fram­boði félags­ins á árinu 2019.

Eig­in­fjár­hlut­fall Icelandair lækk­aði úr 28 í 25 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins þrátt fyrir hluta­fjár­aukn­ingu upp á 5,6 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Hand­bært fé félags­ins lækk­aði um 15,3 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, úr um 36,9 millj­örðum króna í um 21,5 millj­arð króna.

Icelandair hyggst krefj­ast 17 millj­arða króna í skaða­bætur frá Boeing vegna kyrr­setn­ingar á MAX-­vél­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár