Hlutur Stoða í Símanum kominn yfir tíu prósent

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir á nú 10,86 pró­sent í Símanum, er stærsti hlut­hafi TM og stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka.

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir hefur bætt við sig hlutum í Símanum og á nú 10,86 pró­sent í félag­inu. Uppkaup Stoða í félag­inu hófust í maí þegar keypt voru 8,11 pró­sent. Síðan hafa Stoðir bætt jafnt og þétt við sig hlutum og fjár­fest­inga­fé­lagið er nú annar stærsti hlut­hafi þessa stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tækis lands­ins. Einungis Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna á stærri hlut, 12,27 pró­sent.

Stoðir, sem einu sinni hét FL Group, hefur á und­an­förnum miss­erum látið veru­lega til sín taka á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Félagið á tæp­lega fimm pró­senta hlut í Arion banka og er stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í því félagi. Sá hlutur hefur að mestu verið keyptur á þessu ári. Þá eru Stoðir stærsti ein­staki hlut­hafi TM með 9,97 pró­sent hlut en sá hlutur var keyptur í maí síð­ast­liðnum.

Eigið fé 17,5 milljarðar um áramót

Stoð­ir, sem áður hét FL Group, fór með him­in­skautum fyrir banka­hrun sem eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag banka­bólunn­ar. Þegar Glitn­ir, stærsta eign FL Group, féll var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslu­stöðvun og síðar í gegnum nauða­samn­inga þar sem kröfu­hafar eign­uð­ust félag­ið. Stærstur þeirra var Glitn­ir, bank­inn sem félagið hafði átt stóran hlut í.

Síð­ustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afrakst­ur­inn til kröfu­hafa. Vorið 2017 seldi svo GlitnirHoldco 40 pró­sent í félag­inu á meðan að tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., keyptu rúman 50 pró­senta hlut. Félögin tvö eru í eigu stórra hlut­hafa í Trygg­inga­mið­stöð­inni (TM) sem voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

Í mars 2018 seldu Stoð­ir, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Ferskur Holding 1, tæpan níu pró­sent eign­ar­hlut sinn í hol­lenska drykkj­ar­vöru­fram­leið­and­anum Refresco, en yfir­tökutil­boðið var sam­þykkt af Refresco í októ­ber 2017. Sölu­verðið nam 144 millj­ónum evra, sem jafn­gilti um 18 millj­örðum íslenskra króna. Hlutur Stoða var met­inn á um 12,7 millj­arða króna um ára­mótin 2016/2017, sem þýðir að félagið hagn­að­ist um rúma fimm millj­arða á árinu 2017. Með hagn­aði árs­ins 2017 hækk­aði eigið fé félags­ins einnig um fimm millj­arða, en það stóð í 18,3 millj­örðum íslenskra króna sam­kvæmt árs­reikn­ingifélags­ins fyrir það ár. Stoðir högn­uð­ust um tæp­lega 1,1 millj­arð króna í fyrra og eigið fé félags­ins nam 17,5 millj­örðum króna í árs­lok.

For­maður stjórnar Stoða er Jón Sig­urðs­son, en með honum í stjórn sitja þeir Sig­ur­jón Páls­son og Örvar Kærne­sted.

Fram­kvæmda­stjóri félags­ins er Júl­íus Þor­finns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár