Öllu flugi til og frá Hong Kong frestað

Þúsundir mót­mæl­enda flykkt­ust á alþjóða­flug­völl­inn í Hong Kong og er öll starf­semi vall­ar­ins í lama­sessi. Kínversk stjórn­völd saka suma af rót­tæk­ari mót­mæl­end­unum um að vera hryðju­verka­menn.

Frá mótmælunum í Hong Kong í júní 2019.
Frá mót­mæl­unum í Hong Kong í júní 2019. Mynd: EPA

Öllu flugi til og frá Hong Kong hefur nú verið frestað eftir að þús­undir mót­mæl­enda flykkt­ust á flug­völl Hong Kong. Vegir sem liggja að flug­vell­inum eru tepptir og öll bíla­stæði full, sam­kvæmt þar­lendum yfir­völdum.

Þetta er tíunda vikan sem mót­mælin standa yfir. Kínversk stjórn­völd hafa sagt suma af rót­tæk­ari mót­mæl­end­unum vera hryðju­verka­menn. Þau saka mót­mæl­endur um að beita lög­reglu­menn ofbeldi og koma óstöð­ug­leika á sam­fé­lagið í Hong Kong. Sumir mót­mæl­endur hafa til að mynda hent bens­ín­sprengjum að lög­reglu og beint ley­sigeisla að augum lög­reglu­manna.

[adspot]Mót­mæl­endur hafa margir hverjir sakað lög­reglu um að beita ofbeldi. Lög­reglan í Hong Kong hefur skotið táragasi í lok­aða bið­stöð fyrir neð­an­jarða­lest, beitt kylfum og skotið gúmmí­kúlum á mót­mæl­endur. Hún hefur enn sem komið er ekki beitt sér gegn mót­mæl­end­unum á flug­vell­inum.

Stór alþjóðaflugvöllur

Meira en 160 flugum hefur verið frestað frá Hong Kong. Flug sem eru nú þegar á leið til Hong Kong hafa fengið leyfi til að lenda en síð­ari flugum verið frestað. Árið 2018 fóru 75 millj­ónir far­þega um alþjóða­flug­völl­inn í Hong Kong frá meira en 120 flug­fé­lögum. Alls voru um 428.000 flug skráð til og frá vell­inum.

Mótmælin hófust snemma í júní og flykkt­ust hund­ruð þús­unda íbúa á götur Hong Kong. Síðar í mán­uð­inum voru mót­mæl­end­urnir um tvær millj­ónir. Ástæða mót­mæl­anna var upp­haf­lega laga­setn­ing sem að sögn mót­mæl­enda hefði getað auð­veldað fram­sal á almennum borg­urum Hong Kong til Kína og myndi gera kín­verskum stjórn­völdum létt fyrir að rétta yfir fólki á meg­in­landi Kína í stað fyrir í Hong Kong.

Allt hófst með einum manni

Málið á upp­haf sitt að rekja til máls í Taiwan árið 2018, þar sem maður að nafni Chan Tong-Kai var sak­aður um að hafa myrt kær­ustu sína, að því er kemur fram í fréttSouth China Morn­ing Post. Chan flúði til Hong Kong og var hand­tek­inn í kjöl­far­ið. Ekki var þó hægt að senda hann til Taiwan þar sem ekki ríkir samn­ingur á milli ríkj­anna um flutn­ing fanga.

[links]Því brugð­ust yfir­völd Hong Kong við með því að leggja fram laga­setn­ingu sem leyfir stjórn­völdum Hong Kong að flytja fanga til ann­arra ríka, þó að ekki liggi fyrir samn­ingur um flutn­ing fanga.

Mót­mæl­endur ótt­ast að mynd­ist laga­leg glufa þegar fangar séu fluttir til Taiwan, vegna þess að Kína gerir til­kall til eyj­ar­inn­ar. Málið er svo umdeilt að til lík­am­legra átaka kom í lög­gjaf­ar­ráði Hong Kong.

Hinum umdeildu fram­salslögum í Hong Kong var síðar frestað í kjöl­far mót­mæl­anna. Carrie Lam, leið­togi yfir­valda í Hong Kong, hefur beðist afsök­unar á ástand­inu en margir mót­mæl­endur eru enn ósátt­ir, enda hafa lögin ekki verið form­lega dregin til baka. Ýmsir gagn­rýnendur vilja að hún segi af sér.

Regn­hlífa­mót­mælin skýrt í minni

Nú eru liðin 5 ár frá Regn­hlífa­mót­mæl­unum 2014. Þau mót­mæli hófust vegna áhyggja af því að kín­versk stjórn­völd hefðu of mikil áhrif á hver gæti boðið sig fram til kosn­inga í Hong Kong.

Mót­mæl­endur flykkt­ust í þús­undum talið á götur Hong Kong og kröfð­ust sjálf­ræðis og höfn­uðu afskiptum kín­verskra stjórn­valda.

Hægt er að fylgj­ast með fram­gangi mála núver­andi mót­mæla á Twitter undir merk­inu #Extra­dition­Bill

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hongkong

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár