Stjórnvöld beiti sér fyrir því að rafmagns- og tvinnvélar verði nýttar í innanlandsflugi

Verk­efn­is­stjórn sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins leggur til að íslenskur flug­iðn­aður verði til fyr­ir­myndar í umhverf­is­málum og leggi áherslu á að vera í far­ar­broddi í orku­skiptum í flugi.

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið hefur birt að drög að græn­bók um flug­stefnu Íslands í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Í stefn­unni er meðal ann­ars fjallað um umhverf­is­á­hrif flug­rekstrar en hlut­fall flugs af heild­ar­losun Íslands hefur auk­ist síð­ustu ár. Í stefn­unni segir að mik­il­vægt sé að opin­berar aðilar og flug­rek­endur marki sér skýra stefnu í umhverf­is­málum flug­sam­ganga.

„Bæði er það mik­il­vægt fyrir flug sem atvinnu­grein en ekki síður vegna þess að mik­il­vægt er að leggja sitt af mörkum til að tryggja framtíð okkar á jörðinni,“ segir í stefn­unni.

Aldrei verið mótuð heildstæð flugstefna

Ekki hefur áður verið mótuð flug­stefna með heild­stæðum hætti hér á landi og skip­aði því sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra verk­efn­is­stjórn, í sept­em­ber í fyrra, til að móta slíka stefnu. Afrakstur stjórn­ar­innar og starfs­hópa er drög að græn­bók sem nú hefur verið birt í sam­ráðs­gátt­inni.

Í græn­bók­inni eru farið yfir stöðu mála í flug­rekstri og flug­tengdri starf­semi hér á landi og lagðar fram til­lögur að áherslum í flug­málum til fram­tíðar, þar á meðal þegar kemur að umhverf­is­málum. Í stefn­unni segir að engum dylj­ist að eitt mik­il­væg­asta mál okkar tíma séu breyt­ingar í lofts­lags­málum og áhrif þeirra á dag­legt líf fólk. [adspot]

Losun koltvísýrings, met­ans, brenni­steins­oxíðs og köfnun­ar­efn­is­oxíðs hefur auk­ist gríð­ar­lega hér á landi á síð­ustu tíu árum eða um alls 158 pró­sent á milli áranna 2008 og 2018, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Í stefn­unni segir að hlut­fall flugssé nú um 6,5 pró­sent af heild­ar­losun Íslands og hefur vaxið úr 5,1 pró­sentum árið 2008. Tekið er fram að þetta hlut­fall muni lækka eftir gjald­þrot WOW air en að ástæða sé til að grípa til aðgerða til að lækka þetta enn frekar eða unnið sé gegn áhrifum þess.

Neikvætt almenningsálit á flugi líklegt til að hafa áhrif

Í stefn­unni kemur jafn­framt að helstu áhrif umhverf­is­mála á flug og vöxt þess munu lík­lega koma fram með þeim hætti að nei­kvætt almenn­ingsálit á flugi hafi áhrif á ferða­mynstur og vilja til að ferð­ast með flugi. „Ísland mun alltaf þurfa flug vegna legu sinnar en áhrif geta komið fram í ferðalögum ein­stak­linga til lands­ins og yfir hafið.“

Því telur starfs­hóps­ins að íslenskur flug­rekstur ætti að í far­ar­broddi í umhverf­is­málum og í orku­skiptum í flugi. Starfs­hóp­ur­inn leggur því meðal ann­ars til að áhersla verði lögð á að Ísland verði fyrsta landið þar sem meiri­hluti flugvéla í almanna- og kennslu­flugi verði raf­rænn eða tvinn. Almanna­flug er skil­greint sem allt annað flug en áætl­un­ar­flug. Þar með talið er einka­flug, útsýnis­flug, leiguflug og leitar- og björgun­ar­flug.

Hópurinn leggur til að það verði gert með því að styðja og hvetja til notk­unar á tvinn- og raf­magns­flugvélum eftir því sem þær verða aðgengi­legar. Þá verði jafn­vel skoð­aðar svip­aðar íviln­anir og gilda um umhverf­is­væn ökutæki.

Beiti sér fyrir því að Ísland sé notað til prófana á nýrri tækni

Auk þess leggur hóp­ur­inn til að stjórnvöld beiti sér fyrir því að raf­magns- og tvinn­flugvélar verði nýttar í inn­an­lands­flugi. Þar á meðal að stjórnvöld stuðli að sam­tali milli fram­leið­enda og flug­rek­enda með það að mark­miði að Ísland verði notað til prófana á þess­ari nýju tækni og að inn­viðir fyrir raf­magns- og tvinn­flugvélar verði til staðar meðal ann­ars með aðgengi að raf­magni.

Enn fremur leggur hóp­urnn til að Isavia verði til fyr­ir­myndar þegar kemur að umhverf­ismálum. Að allur rekstur fyr­ir­tæk­is­ins taki mið af því mark­miði, meðal ann­ars með umhverf­is­vænum orku­gjöfum, flokkun sorps, dregið sé úr hávaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár