Ferðamenn eyða að meðaltali 209 þúsund krónum vegna Íslandsferðar

Tæp­ur helm­ing­ur ferða­manna sem komu til Íslands á síð­asta ári og tóku þátt í könn­un Ferða­mála­stofu tel­ur að verð­lag sé á meðal þess sem helst megi bæta í ís­lenskri ferða­þjón­ustu.

Með­al­út­gjöld á ferða­mann vegna Íslands­ferðar voru tæp­lega 209 þús­und í fyrra. Þar af voru stærstu útgjalda­lið­irnir fyr­ir­fram­greidd pakka­ferð, alþjóð­legt flug og gist­ing. Þá sögð­ust tæp­lega helm­ing­ur ferða­manna að verð­lag sé á meðal þess sem helst megi bæta í ís­lenskri ferða­þjón­ustu. Þetta kemur fram nið­ur­stöðum Ferða­mála­stofu um ferða­hegðun og við­horfa erlenda ferða­manna árið 2018. Yfir 27.000 ferða­menn tóku þátt í könn­un­inni. 

Mest eytt í pakkaferðir og flug

Árið 2018 voru fyr­ir­fram­greiddar pakka­ferðir 26 pró­sent af heild­ar­út­gjöldum þeirra ferða­manna sem komu til lands­ins. Þá var alþjóð­legt flug næst stærsti útgjalda­liður ferða­manna eða 19 pró­sent heild­ar­út­gjalda, gist­ing var 17 pró­sent, mat­sölu­staðir og kaffi­hús 11 pró­sent og bíla­leigu­málar.

Með­al­út­gjöld voru tæp­lega 209 þús­und kórnur á ferða­mann. Þá voru útgjöldin vegna Íslands­ferðar hæst hjá Sviss­lend­ingum eða að með­al­tali 324 þús­und krónur og næst hæst hjá Kín­verjum eða að með­al­tali 310 þús­und.

Gista að meðaltali sex nætur

Dval­ar­lengd ferða­manna var að jafn­aði 6,3 nætur í fyrra. Þá gisti ríf­lega helm­ingur ferða­manna á bil­inu fjórar til átta nætur, tæp­lega fimmt­ungur eina til þrjár nætur og ríf­lega fimmt­ungur níu nætur eða fleiri.

Með­al­dval­ar­lengd var lengst hjá Mið-Evr­ópu­búum eða 8,5 nætur og næst­lengst hjá Suður-Evr­ópu­búum eða 8,1 nótt. Ferða­menn frá Bret­landseyjum stöldr­uðu styst við eða 4,6 nætur.

Jafn­framt kemur fram í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að tæp­lega helm­ingi gistinótta var eytt á hót­elum, gisti­heim­ilum og í hót­el­í­búðum, um fimmt­ungi í íbúða­gist­ingu og einni af hverri tíu á opin­berum tjald­svæðum. Önnur teg­und gist­ingar var nýtt í minna mæli.

60 prósent ferðuðust um á bílaleigubíl

Lang­flestir ferða­menn heim­sóttu höf­uð­borg­ar­svæðið árið 2018 eða ríf­lega níu af hverjum tíu svar­endum. Þrír fjórðu heim­sóttu Suð­ur­landið og nærri þrír af hverjum fimm Reykja­nesið. Þá heim­sótti tæp­lega helm­ingur Vest­ur­landið, ríf­lega fjórð­ungur Norð­ur­landið, tæp­lega fjórð­ungur Aust­ur­landið og einn af hverjum tíu Vest­firði.

Enn fremur kemur fram nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að svar­endur frá Bret­landseyjum ferð­uð­ust minnst utan höf­uð­borg­ar­svæðis í sam­an­burði við önnur mark­aðs­svæði. Suður- og Mið-Evr­ópu­búar og Asíubúar ferð­uð­ust hins vegar í lang­flestum til­fellum hlut­falls­lega meira til lands­hluta utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en önnur mark­aðs­svæði.

Um þrír af hverjum fimm svar­endum sögð­ust hafa ferð­ast um á bíla­leigu­bíl, tæp­lega þriðj­ungur í skipu­lagðri rútu­ferð og um 15 pró­sent í áætl­un­ar­bif­reið. Þá voru bíla­leigu­bílar voru not­aðir í minna mæli af Norð­ur­landa­búum og ferða­mönnum frá Bret­landseyjum en þeim sem komu frá öðrum mark­aðs­svæðum. Ferða­menn frá Bret­landseyjum nýttu hins vegar skipu­lagðar rútu­ferðir í mun meira mæli en önnur mark­aðs­svæði.

Helmingur segir að bæta mætti verðlag

Tæplega helm­ingur svar­enda nefndu verð­lag þegar þeir voru beðnir um að nefna hvað mætti bæta í íslenskri ferða­þjón­ustu. Fimmt­ungur nefndi skipu­lag, tæp­lega fimmt­ungur vegi og sama hlut­fall þjón­ustu. Aðrir þættir sem voru nefndir í nokkrum mæli voru í tengslum við upp­lýs­inga­gjöf, afþr­ey­ingu og veit­inga­hús, sam­göngur og tak­mörkun á fjölda ferða­manna.

Þegar svar­endur voru spurðir að því hvað þrennt þeim hefði þótt minn­is­stæð­ast við Íslands­ferð­ina nefndu flestir nátt­úr­una og lands­lagið eða þrír af hverjum fimm. Tveir af hverjum fimm nefndu afþr­ey­ingu, menn­ingu eða við­burði. Fimmt­ungur nefndi fossa, Gullna hring­inn og Bláa lónið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár