Allar flugrekstrareignir þrotabús WOW air seldar

Gengið hefur verið frá sölu á öllum eignum þrota­bús WOW air tengdum flug­rekstri. Fyrr­ver­andi stjórn­endur WOW air höfðu ekki aðkomu að við­skipt­unum og kaupin eru einnig ótengd WAB air.

Gengið hefur verið frá sölu á öllum eignum þrota­bús WOW air sem tengj­ast flug­rekstri. Sveinn Andri Sveins­son, annar skipta­stjóri þrota­bús WOW air, stað­festi í sam­tali við Kjarnann að salan hafi átt sér stað. Sveinn Andri gat þó engar aðrar upp­lýs­ingar gefið um söl­una.

Endurvekja lággjaldaflugrekstur til og frá Íslandi

Frétta­blaðið greindi frá því dag að fjár­sterkir banda­rískir aðilar með mikla reynslu í flug­rekstri hafi keypt allar flug­rekstar­eignir þrota­bús­ins. Heim­ildir blaðs­ins herma að um sé að ræða bæði vöru- og mynd­merki WOW air, WOW lénin, flug­rekstr­ar­bækur, bók­un­ar­kerfi, hug­búnað, sölu­vagna, sölu­tölvur, ein­kenn­is­fatnað ásamt stærstum hluta vara­hluta­lag­ers og verk­færa.

Þá herma heim­ildir blaðs­ins að umfang við­skipt­anna hlaupi á hund­ruðum millj­óna króna og að fjár­hæðin hafi verið greidd með ein­greiðslu. Markmið kaup­end­anna er að end­ur­vekja lág­far­gjalda­flug­rekstur til og frá land­inu bæði til Evrópu og Banda­ríkj­anna á grunni WOW air og í sam­ræmi við þá hug­mynda­fræði sem lá til grund­vallar lággjalda­flugi WOW air, sam­kvæmt Frétta­blað­inu.

Kaupin eru með öllu ótengd þeim íslensku aðilum sem und­ir­búið hafa stofnun nýs lággjalda­fé­lags undir nafn­inu WAB. Enn fremur hefur engin úr hópi fyrr­ver­andi eig­enda eða stjórn­enda hins fallna flug­fé­lags haft aðkomu að við­skipt­unum. Þetta stað­festir Páll Ágúst Ólafsson lög­maður í svari við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins.

Deila skrifstofurými

Páll Ágúst hefur haft milli­göngu um sam­skipti kaup­end­anna við þrota­búið og önnur íslensk stjórn­völd vegna við­skipt­anna. Páll Ágúst deilir skrif­stofu­rými með Sveini Andra, skipta­stjóra þrota­bús­ins, á Grjóta­götu 7 í Reykja­vík. Aðspurður segir Sveinn Andri, í sam­tali við Kjarnann, að þrjár lög­manns­stofur deili skrif­stofu­rým­inu á Grjóta­götu 7, líkt og gert er víða ann­ars staðar. Hann tekur fram að eng­inn sam­rekstur eigi sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár