Vinna að því að reisa nýtt flugfélag á grunni WOW air

Tveir fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá WOW air vinna að því að stofna nýtt flug­fé­lag, WAB air, á grund­velli WOW. Írskur fjár­fest­ing­ar­sjóður hefur skuld­bundið sig til þess leggja hinu nýja flug­fé­lagi til 5,1 millj­arð króna í nýtt hlutafé.

Tveir fyrrum stjórnendur hjá WOW air ásamt hópi fjárfesta vinna að því að stofna nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag á grunni WOW air. Avianta Capital, írskur fjárfestingarsjóður, hefur skuldbundið sig til að leggja nýstofnuðu félaginu, sem ber heitið WAB air, til 40 milljónir dala, jafnvirði rúmra fimm milljarða króna í nýtt hlutafé. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Markaðurinn, fylgiriti Fréttablaðsins, hefur undir höndunum.

Gert ráð fyrir 500 starfsmönnum næstu 12 mánuði

Til stendur að WAB air hefji rekstur í haust og verði með sex vélar í rekstri fyrsta árið. Gert er ráð fyrir að flug­fé­lagið muni fljúga til fjórtán áfanga­staða í Evrópu og Banda­ríkj­unum og að ein milljón far­þega ferð­ist með flug­fé­lag­inu. Þá er stefnt að því að fimm hund­ruð starfs­menn verði ráðnir til flug­fé­lags­ins næstu tólf mán­uðum. Jafn­framt er gert ráð fyrir að velta félags­ins nemi tutt­ugu millj­örðum króna á næsta ári.

Upplýst er um áform fjár­festa­hóps­ins í minn­is­blaði sem Mark­að­ur­inn hefur undir höndum. Samkvæmt því hefur hóp­ur­inn leitað til að minnsta kosti tveggja hér­lendra banka, Arion banka og Lands­bank­ans, og óskað eftir láni upp á 31 milljón evra, jafn­virði tæp­lega fjög­urra millj­arða króna, til eins árs fyr­ir­greiðslu. Til standi að nýta láns­féð sem eigið fé til þess að slá lán hjá ónefndum sviss­neskum banka.

Sveinn Ingi verður forstjóri WAB air ef allt gengur eftir

Avianta Capital sem er í eigu Aisilinn Whittley-Ryan, dóttur eins af stofn­enda Ryan air, hefur skuld­bundið sig til að tryggja félag­inu 40 millj­ónir dala, eða um fimm millj­arða króna, í nýtt hlutafé, sam­kvæmt minn­is­blað­inu. Sem end­ur­gjald mun Avianta Capital eign­ast 75 pró­senta hlut í félag­inu.

Þá verður 25 pró­sent flug­fé­lags­ins í eigu félags­ins Neo. Það félag er í eigu Arnars Más Magn­ús­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra flug­rekstr­ar­sviðs WOW, Sveins Inga Stein­þórs­sonar, úr hag­deild WOW, sem sat í fram­kvæmda­stjórn flug­fé­lags­ins, Boga Guð­munds­sonar, lög­manns hjá Atlantik Legal Services og stjórn­ar­for­manns BusTra­vel, og Þórodds Ara Þór­odds­sonar, ráð­gjafa í flug­véla­við­skiptum.

Gangi áformin um WAB air eftir verður Sveinn Ingi for­stjóri flug­fé­lags­ins og Arnar Már mun gegna starfi aðstoð­ar­for­stjóra og fram­kvæmda­stjóra flug­rekstrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár