Rúmlega þúsund kröfur vegna Gaman ferða

Alls bár­ust Ferða­mála­stofu 1.038 kröfur vegna Gaman ferða sem hættu starf­semi fyrr á árinu í kjöl­far gjald­þrots WOW air. Ferða­skrif­stofan var í 49 pró­sent eigu WOW air.

Alls bár­ust Ferða­mála­stofu 1.038 kröfur vegna Gaman ferða en ferða­skrif­stofan hætti rekstri í apríl síð­ast­liðnum. Frestur til að gera kröfu í trygg­ing­arfé ferða­skrif­stof­unnar rann út þann 20. júní síð­ast­lið­inn. Gaman ferðir var í 49 pró­sent hlut í eigu WOW air.

Hættu starfsemi í kjölfar gjaldþrots WOW air

Ferða­skrif­stof­an Gaman ferðir var stofnuð árið 2012 af Þór Bær­ing Ólafs­syni og Braga Hinrik Magnús­syni en árið 2015 keypti flug­fé­lagið WOW air helm­ings­hlut í ferða­skrif­stof­unni en fyr­ir­tæk­in höfðu unnið sam­an frá stofn­un WOW air. 

Tveimur vikum eftir fall WOW air skil­aði fyr­ir­tækið inn ferða­skrif­stofu­leyfi sínu og hætti rekstri. Ferða­skrif­stofan skipu­lagði að mestu leyti ferðir í kringum flug félags­ins og í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu í apríl kom fram að ljóst væri að lausa­fjár­staða félags­ins næstu sex mán­uð­ina yrði ekki nægj­an­lega sterk til þess að rétt­læta áfram­hald­andi starf­semi. Því hafi ákvörð­unin verið tekin um að hætta rekstri.

Gaman ferðir báru lög­bundnar trygg­ingar sem ferða­skrif­stofum er skylt að hafa og gátu far­þegar því leitað til Ferða­mála­stofu vegna end­ur­greiðslna.

Yfir þús­und kröfur bár­ust Ferða­mála­stofu en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem stofn­unin veitti RÚV í apríl eru tæp­lega 200 millj­ónir króna í trygg­inga­sjóði Gaman ferða. Í til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu segir að nú taki við yfir­ferð og vinnsla krafna hjá Ferða­mála­stofu en í ljósi fjöld­ans megi búast við að nokkurn tíma taki að fara yfir og taka afstöðu til þeirra. Því megi í fyrsta lagi búast við mál fari að skýr­ast með haustinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár