Hlutfall kjörinna kvenna í sveitarstjórnum aldrei verið hærra

Alls voru kjörnir 502 sveit­ar­stjórn­ar­menn á land­inu öllu árið 2018, 266 karlar og 236 konur. Kosn­inga­þátt­taka kvenna var meiri en karla og var hún breyti­leg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjós­enda.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykja­víkur Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tala fram­bjóð­enda í sveit­ar­fé­lögum í kosn­ingum sem fram fóru þann 26. maí 2018 þar sem kosn­ing var bundin var 3.482, 1.797 karlar, eða 51.6 pró­sent, og 1.685 konur, eða 48,4 pró­sent. Kjörnir voru 420 sveit­ar­stjórn­ar­menn í þessum sveit­ar­fé­lögum en 82 í sveit­ar­fé­lögum þar sem kosn­ing var óbundin. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Alls voru kjörnir 502 sveit­ar­stjórn­ar­menn á land­inu öllu, 266 karlar eða 53 pró­sent og 236 konur eða 47 pró­sent. Hefur hlut­fall kvenna af kjörnum full­trúum aldrei verið hærra. Í kosn­ing­unum var 59 pró­sent kjör­inna full­trúa nýkjörnir en 41 pró­sent höfðu einnig verið kjörnir í kosn­ing­unum 2014.

Samkvæmt Hag­stof­unni var kosið til 72 sveit­ar­stjórna í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Bundin hlut­falls­kosn­ing var í 56 sveit­ar­fé­lögum þar sem 99 pró­sent allra á kjör­skrá voru búsettir og 198 fram­boðs­listar boðnir fram. Þar af var sjálf­kjörið í einu sveit­ar­fé­lagi þar sem aðeins einn listi var í boði. Kosning var óbundin í 16 sveit­ar­fé­lögum þar sem 1 pró­sent kjós­enda var á kjör­skrá. Á kjör­skrá fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 voru 247.943 eða 71,2 pró­sent lands­manna.

Kosningaþátttaka kvenna meiri en karla

Kosn­inga­þátt­taka í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem kosn­ing fór fram árið 2018 var 67,6 pró­sent, heldur meiri en þátt­takan 2014, eða 66,5 pró­sent, sem er sú dræm­asta til þessa. Kosn­inga­þátt­taka kvenna var meiri en karla og var hún breyti­leg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjós­enda.

Þátttaka nýrra kjós­enda sem sökum ald­urs voru að kjósa í fyrsta sinn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum var 51,5 pró­sent. Þátttaka kjós­enda með erlent rík­is­fang var 18 pró­sent, rúmt 51 pró­sent meðal nor­rænna kjós­enda en 15 pró­sent meðal ann­arra erlendra rík­is­borg­ara.

Gild atkvæði voru 162.587. Auðir seðlar voru 4.225 og aðrir ógildir 774 eða sam­an­lagt 3 pró­sent greiddra atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár