SMS skilaboðum fjölgaði í fyrsta sinn í mörg ár

Þrátt fyrir stór­aukna sam­keppni frá öðrum staf­rænum sam­skipta­for­ritum þá fjölg­aði SMS skila­boða­send­inum sem send voru innan íslenska far­síma­kerf­is­ins í fyrra. Það var í fyrsta sinn frá 2012 sem slíkt ger­ist.

Samskiptaforritum hefur fjölgað hratt á síðustu árum.
Sam­skipta­for­ritum hefur fjölgað hratt á síð­ustu árum. Mynd: Pexels

Sendum SMS skila­boðum innan íslenska far­síma­kerf­is­ins fjölg­aði í fyrra. Alls voru send um 180 millj­ónir slíkra skila­boða á árinu 2018, eða um sex millj­ónum fleiri en árið áður.

[links]Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2012 sem fjöldi sendra SMS skila­boða eykst milli ára. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn á árinu 2018.

SMS-ið hefur átt undir högg að sækja sem sam­skipta­máti á und­an­förnum árum í kjöl­far þess að önnur sam­skipta­for­rit, á borð við t.d. Messen­ger og WhatsApp, hafi rutt sé til rúms og orðið meg­in­leið margra not­enda til að eiga staf­ræn sam­skipti og bjóða upp á mun fleiri mögu­leika í sam­skiptum en gömlu góðu SMS-in hafa gert.

Ferðamönnum fjölgaði en SMS-um fækkaði

Sendum SMS-um fjölg­aði ár frá ári á fyrstu árum staf­rænu bylt­ing­ar­innar. Þannig sendu Íslend­ingar rúm­lega 143 millj­ónir slíkra árið 2008 en tæp­lega 216 millj­ónir árið 2012. Fjöldi smá­skila­boð­anna jókst því um 51 pró­sent á tíma­bil­inu.

[adspot]Þá tók hins vegar að halla undir fæti hjá SMS-unum. Þeim fækk­aði jafnt og þétt ár frá ári og í lok árs 2017 voru þau send SMS hér­lendis orðin 174 millj­ónir. Þessi þróun átti sér stað sam­hliða því að ferða­mönnum á Íslandi fjölg­aði gríð­ar­lega – þeir fóru úr um hálfri milljón í rúm­lega tvær millj­ónir á örfáum árum – og not­endum íslenska fjar­skipta­kerf­is­ins sömu­leiðis.

Í fyrra gerð­ust þó þau tíð­indi að SMS-unum fjölg­aði aftur í fyrsta sinn frá árinu 2012 þegar alls 180 millj­ónir slíkra voru send.

Þá vekur það líka athygli í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar að MMS mynd­skila­boðum fjölgar líka eftir sam­drátt árin á undan. Alls sendu lands­menn 4,1 milljón slíkra skila­boða á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár