Farþegum til Íslands mun fækka um 388 þúsund í ár

Farþegar sem heim­sækja Ísland heim í ár verða færri en tvær millj­ónir og skiptifar­þegar sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl mun fækka um 1,7 milljón í ár. Ástæðan: Gjald­þrot WOW air og óvissa vegna Boeing MAX-véla Icelandair.

Samkvæmt upp­færðri far­þeg­a­spá Isavia, sem birt var í dag, mun fjöldi erlendra far­þega sem koma til Íslands verða 1.927 þús­und á þessu ári. Það eru 388 þús­und færri far­þegar en komu hingað til lands í fyrra, sem var metár.

Til sam­an­burðar voru allir íbúar lands­ins sam­an­lagt 358.780 tals­ins í lok mars síð­ast­liðnum. Því mun ferða­mönnum sem sækja Ísland heim fækka um rúm­lega mann­fjölda lands­ins milli áranna 2018 og 2019.

Þá mun skiptifar­þegum sem koma til Íslands fækka um 43 pró­sent milli ára, úr tæp­lega 3,9 millj­ónum í tæp­lega 2,2 millj­ónir.

[adspot]Helsta ástæða þessa er gjald­þrot WOW air 28. mars síð­ast­lið­inn og óvissa vegna stöðu Boeing MAX flug­véla Icelandair, sem óvíst er hvenær muni kom­ast aftur í gagnið.

Í tillkynn­ingu frá Isavia segir að far­þeg­a­spáin sé unnin út frá upp­lýs­ingum um afgreiðslu­tíma sem flug­fé­lögin hafa tryggt sér. „Far­þeg­a­spáin byggir á upp­lýs­ingum úr kerfum Isavia, til við­bótar við þær fréttir sem borist hafa af flug­fé­lögum. Spáin er að því leyti unnin með öðrum hætti en áður.

Isavia telur hins vegar að fyrir liggi nægar upp­lýs­ingar til að gefa út upp­færða far­þeg­a­spá og svara þannig ákalli mark­að­ar­ins. Breytist for­sendur verður þessi spá upp­færð.“

Þar segir einnig að fjölgun far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl hafi verið afar hröð á síð­ustu árum og í sumum til­vikum hafi það kallað á upp­færða far­þeg­a­spá þegar liðið hefur á árið, hvort sem far­þegum hafi fjölgað eða fækkað. „Í lok mars hætti WOW air, einn stærsti við­skipta­vinur Isavia á Kefla­vík­ur­flug­velli, starf­semi. Þá var ljóst að gera yrði breyt­ingar á far­þeg­a­spá fyrir árið 2019. Því til við­bótar hefur verið nokkur óvissa vegna stöðu Boeing MAX flug­véla Icelandair.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár