Nítján starfsmönnum sagt upp hjá Isavia

Isavia hefur sagt upp 19 starfs­mönnum og til við­bótar boðið 15 starfs­mönnum lægra starfs­hlut­fall. Upp­sagn­irnar koma til vegna brott­hvarfs Wow air í mars síð­ast­liðnum og breyttri flug­á­ætl­un Icelandair í kjöl­far kyrr­setn­ingar á Max vél­u­m ­Boeing.

Isavia til­kynnti á fundi með starfs­mönnum félags­ins í dag að 19 starfs­mönnum hefur verið sagt um hjá félag­inu og til við­bótar býðst 15 starfs­mönnum lægra starfs­hlut­fall. Um er að ræða starfs­menn sem starfa meðal ann­ars við örygg­is­leit og far­þega­þjón­ustu. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að upp­sagn­irnar komI aðal­lega til vegna brott­hvarfs WOW air í mars síð­ast­liðnum.

Kyrrsetning á Max vélum Boeing einnig haft áhrif

Í til­kynn­ing­unni segir að áður hafi verið dregið úr sum­ar­ráðn­ingum hjá Isavia ásamt því að fjöl­mörgum fyr­ir­hug­uðum ráðn­ingum hefur verið frestað og breyt­ingar hafa verið gerðar á fyr­ir­komu­lagi vakta­kerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfs­stöðva Isavia, þar á meðal til skrif­stofu­starfa.

Umsvif í þjón­ustu vegna milli­lands­lands­flugs er minni en áætl­anir Isavia gerðu ráð fyrir vegna gjald­þrot WOW air fyrr á árinu en einnig hefur breytt flug­á­ætlun Icelandair í kjöl­far kyrr­setn­ingar á Max vélum Boeing haft áhrif. Því segir félagið að óhjá­kvæmi­legt sé að grípa til þess­ara aðgerða.

Laun forstjóra félagsins hækkað um rúm 43 prósent

[links]Í mars greindi Kjarninn frá því að heild­­ar­­laun ­Björns Óla Hauks­­son­­ar, for­­stjóra Isavia, hafi hækkað um 43,3 pró­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði árið 2017 til stjórn­ar ­fyr­ir­tæk­is­ins á ný.

Mán­að­ar­laun for­stjór­ans hækk­uði úr 1.748.000 krónum á mán­uði í nóv­em­ber 2017 í 2.504.884 í maí 2018 eða um rúm 750 þús­und á tæpu ári. Þetta kom fram í svari Isavia við fyr­ir­­spurn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um hvernig fyr­ir­tækið hefði brugð­ist við til­mælum sem beint var til fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu í jan­úar 2017 er varðar launa­á­kvarð­anir og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár