Björgólfur Thor tók þátt í skuldabréfaútboði WOW air

Félag í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar keypti skulda­bréf fyrir þrjár millj­ónir evra í skulda­bréfa­út­boði WOW air í haust. Yfir helm­ingur þess fjár­magns sem safn­að­ist í útboð­inu kom frá aðilum sem stóðu WOW air eða Skúla Mogensen nærri.

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son Mynd: Revista Capital

Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir, tók þátt í skuldafjárútboði flugfélagsins WOW air síðasta haust. Reliquum, félag í hans eigu, skráði sig fyrir þrem milljónum evra í útboðinu en alls söfnuðust 50,15 milljón evrur í útboðinu. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag en þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri bók Stefáns Einars Stefánssonar, fréttastjóra viðskipta á Morgunblaðinu, um ris og fall flugfélagsins.

Segir gögn benda til þess að helmingur þess sem safnaðist hafi farið í skuldir

Í bókinni er greint frá því að helmingur þess fjármagns sem safnaðist í skuldafjárútboðinu, eða 51 prósent, kom frá einstaklingum og fyrirtækjum sem stóðu flugfélaginu og Skúla Mogensen stofnanda þess nærri, ýmist persónulega eða vegna viðskiptahagsmuna. 

Jafnframt segir í bókinni að þau gögn sem Stefán hefur undir höndunum bendi sterklega til þess að ríflega helmingur þeirra 50,15 milljóna evra sem WOW air náði að safna í útboðinu hafi fengist á þeim forsendum að skuldabréfakaupendur myndu breyta skammtímaskuldum flugfélagsins, sem sumar voru gjaldfallnar, í langtímaskuld í formi skuldabréfs.

Þeir fjárfestir sem höf­und­ur seg­ir að hafi tekið þátt í skulda­fjárút­boðinu á þess­um for­send­um eru Arion banki, viðskiptabanki flugfélagsins, félag Björgólfs Thors, flugvélaleigufyrirtækin Avolon og AirLease Corporation, flugvélaframleiðandinn Airbus, REA ehf., móðurfélag Airport Associates, og S9 ehf., félag Margrétar Ásgeirsdóttur, fyrrverandi eiginkonu Skúla Mogensen.

Í útboðinu skráði Avolon sig fyrir fimm milljónir evra, ALC skráði sig fyrir 2,5 milljónum evra og Airbus fyrir 2,5 milljónum evra. Arion banki skráði sig fyrir 4,3 milljónir evra og félag Margrétar tók 1,5 milljónir evra. REA ehf., móðurfélag Airport Associates sem þjónustaði WOW air á Keflavíkurflugvelli, keypti skuldabréf fyrir milljón evrur og Öryggismiðstöðin keypti fyrir 500.000 evrur.

Eaton Vance stærsti einstaki kaupandinn

Líkt og greint hefur verið áður frá keypti Skúli Mogensen sjálf­ur skulda­bréf fyrir 5,5 millj­ónir evra í út­boð­in­u. Aðrir sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu voru inn­lend fjár­mála­fyr­ir­tæki og erlendir fjár­festar og sjóðir. Þá keyptu tveir sjóðir í stýr­ingu GAMMA keyptu sam­an­lagt skulda­bréf fyrir tvær millj­ónir evra, annar þó stærri hlut­ann eða fyrir 1,8 millj­ónir evra. Kvika banki lagði svo eina milljón evra í útboðið.

Banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Eaton Vance var stærsti ein­staki kaup­and­inn í skulda­bréfa­út­boð­inu og keyptu þrír vog­un­ar­sjóðir félags­ins sam­tals skulda­bréf fyrir 10 millj­ónir evra og nam fjár­fest­ing Eaton Vance því um 20 pró­sent af heild­ar­um­fangi útboðs­ins. Ýmsir evr­ópskir fjár­fest­ing­ar­sjóðir, alls 20 tals­ins, keyptu svo skulda­bréf fyrir sam­an­lagt 11,4 millj­ónir evra. Norski líf­eyr­is­sjóð­ur­inn MP Pensjon lagði þeirra mest til, eða 2 millj­ónir evra. Sjóður sænska bank­ans Swedbank, sem stýrt er frá Lúx­em­borg, lagði svo til 1,5 millj­ónir evra og sænska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Peak AM lagði til sömu fjár­hæð. Aðrir evr­ópskir fjár­festar lögðu minna til, eða á bil­inu 0,1-1 milljón evra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár