Telur flugvöllinn verða farinn úr Vatnsmýrinni fyrir 2030

Borg­ar­full­trúi telur engan vafa á því að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýr­inni. Borg­ar­stjóri segir Hvassa­hraun besta kost­inn en ekki þann eina sem sé raun­hæfur.

Mun síðasta flugvélin lenda í Vatnsmýrinni á næsta áratug?
Mun síð­asta flug­vélin lenda í Vatns­mýr­inni á næsta ára­tug? Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ég myndi telja að um 2030 verði flug­völl­ur­inn far­inn, eða svo gott sem far­inn. Ég er sann­færður um það.“ Þetta segir Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi for­maður skipu­lags- og umhverf­is­ráðs borg­ar­innar í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag.

Hjálmar var á meðal þeirra full­trúa Reykja­vík­ur­borgar sem sótti ráð­stefn­una Framtíð borg­anna sem haldin er í Osló. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sótti hana einnig.

Hjálmar segir að upp­bygg­ingin á fyrr­ver­andi helg­un­ar­svæðum nærri Reykja­vík­ur­flug­velli, til að mynda á Hlíð­ar­enda, sé hluti af umbreyt­ingu Vatns­mýr­ar­innar og vísir að breyttri notkun svæð­is­ins í fram­tíð­inni. „Helg­un­ar­svæði flug­vall­ar­ins er smátt og smátt að minnka og ég tel engan vafa á því, sér­stak­lega eftir að hafa séð hvernig menn hér í Osló hafa end­ur­nýtt gömul og úr sér gengin iðn­að­ar­svæði, eða svæði fyrir atvinnu­starf­semi sem taka gríð­ar­legt pláss en skapa kannski ekki mörg störf, að flug­völl­ur­inn mun fara úr Vatns­mýri.“ Hann von­ist til þess að lagður verði borg­ar­flug­völlur í Hvassa­hrauni.

Dagur segir við Morg­un­blaðið að Hvassa­hraun sé ekki eini raun­hæfi kost­ur­inn fyr­ir nýj­an inn­an­lands­flug­völl en að at­hug­an­ir hingað til bendi til þess að það sé besti kost­ur­inn. Á ráð­stefn­unni í Osló ræddi Dagur meðal ann­ars hátt hlut­fall ferða með bíla­leigu­bíl­um frá Kefla­vík­ur­flug­velli, en 55 pró­sent allra ferða þaðan eru með slíkum. Hann sagði að verið væri að skoða mögu­leika á flug­lest til að efla almenn­ings­sam­göngur á leið­inni og draga um leið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár