Stefán Einar gefur út bók um gjaldþrot WOW air

Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morg­un­blað­inu, gefur út bók um ris og fall flug­fé­lags­ins WOW air um næstu mán­aða­mót.

Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stef­áns­son Mynd: Aðsend mynd

Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morg­un­blað­inu, hefur að und­an­förnu unnið að bók um gjald­þrot flug­fé­lags­ins WOW air. Bókin kemur út um næstu mán­aða­mót á vegum For­lags­ins en í henni er farið yfir aðdrag­and­ann að stofnun flug­fé­lags­ins, ris þess og falls. Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins, greinir frá þessu í dag.

Nýjar upplýsingar um fall WOW air

Stefán Einar hefur stafað á Morg­un­blað­inu frá því í árs­byrjun 2015. Hann var for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, um tveggja ára skeið 2011 til 2013 þegar hann beið lægri hlut í for­manns­kosn­ingu fyrir Ólafíu B. Rafns­dótt­ur. Stefán Einar er með meist­ara­gráðu í við­skiptasið­fræði frá Háskóla Íslands.

Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins koma nýjar upp­lýs­ingar fram í bók­inni um fall WOW air en þær eru sagðar varpa nýju ljósi á þær ítrek­uðu til­raunir sem gerðar voru til að forða flug­fé­lag­inu frá gjald­þroti. Bókin er ríf­lega 300 síður að lengd og byggir á opin­berum heildum en einnig óbirtum skjölum.

Jafn­framt hefur bók­ar­höf­undar rætt við fjölda ein­stak­linga sem tengst hafa WOW air með einum eða öðrum hætti í þau rúm­lega sjö ár sem flug­fé­lagið starf­aði. Þá á Stefán að hafa leit­aði eftir sam­starfi við Skúla Mogensen, stofn­anda og for­stjóra flug­fé­lags­ins, um ritun bók­ar­innar en Skúli gaf ekki kost á því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár