Á Íslandi eru fimm einmennings flugvellir, þ.e.a.s. flugvellir með einn starfsmann í vinnu. Litlir flugvellir með lítið af flugumferð sem gegna þó gríðarlega mikilvægu hlutverki í nærsamfélagi þeirra. Hagnaðurinn af þessum völlum er ekki mældur í peningum heldur mannslífum.
Þó flugumferð sé ekki mikil um þessa velli þá eru þessir fimm einstaklingar sem á þeim vinna, svo að segja alltaf í vinnunni. Því hvert geta einstaklingar farið eða hvað geta þeir leyft sér í sínum frítíma þegar sú staða gæti komið upp hvenær sem er, að flytja gæti þurft einhvern úr þeirra samfélagi með sjúkraflugi?
[adspot]Þeim er ekki skylt að sinna útköllum en hver getur hugsað sér að vera ástæðan fyrir því að einhver úr þeirra litla samfélagi komist ekki undir læknishendur í tæka tíð? Svo rík er ábyrgðin hjá þeim að þeir mæta fárveikir í vinnu til þess að halda flugsamgöngum opnum. Veikindarétturinn er bara lúxusvara sem þeir geta ekki leyft sér.
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins skorar á samgönguráðherra að bæta þarna úr. Veita meira fé á þessa velli þannig að einmennings flugvellir á Íslandi tilheyri fortíðinni. Kostnaðurinn er ekki mikill, rétt um 50 milljónir á ári.
Fólk á að geta stimplað sig úr vinnu og gert það sem því dettur í hug í sínum frítíma. Við hljótum öll að vera sammála um þá lágmarks kröfu.
Höfnudur er formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir